Víkurfréttir - 12.02.1998, Blaðsíða 7
VlQSKljfFtl I Guðni Grátarsson hefur veríð ráðinn
.atvmnulíf I forstöðumaðurTölvuskóla Suðumesja:
SKEMMTILEG VERKEFNIFRAMUNDAN
Guðni Grétarsson er nýráðinn forstöðu-
maður Tölvuskóla Suðumesja en hann
hefur starfað við verslunarrekstur undan-
farin ár og starfað mikið að þjónustu í
matvöruverslunum.
Um þessar mundir eru miklar annir hjá
skólanum og álag mikið sem hefur bitnað
aðeins á þjónustu skólans við nemendur.
Vill skólinn nota tækifærið til þess að biðj-
ast afsökunar á því en vonast er til að þau
mál séu komin í lag.
Mörg skemmtileg verkefni eru framundan
og verður boðið upp á ný námskeið þar
sem skólinn vonast eftir góðu samstarfi
við Miðstöð símenntunar á Suðumesjum.
Skólinn hefur einnig verið að markaðs-
setja kennslugögn skólans á landsbyggð-
inni og eru bækur skólans nú víða notaðar
í kennslu m.a. við fjölbrautaskóla.
Helstu námskeið tölvuskólans eru
Windows 95, Word, Exel og einnig er
Internetið mjög vinsælt. Yfir hundrað
manns sækja nú hin ýmsu námskeið skól-
ans og meðal nýjunga má nefna þema-
námskeið. í þeim er fólgið að í stað
saumaklúbba getur fólk nýtt sér tölvuna til
þess að tvinna saman hin ýmsu hugðarefni
sín og má þar nefna líkamsrækt. förðun,
spákonur og ýmislegt fleira.
Prófkjör
jp sjálfstæðismanna
í Reykjanesbæ
Böðvar
Jónsson
3. sæti
Nýþáherslurímktaka-og
lítbodsmálum ■ aukin útboð
Stuðningsmenn
Gott atvinnulíf - Betri þjónusta
Sérhvert bæjar-
félag hefur stóru
þjónustuhlutverki
að gegna sem við
alltaf viljumnjóta
þegar við á. I
____________ þeirri umræðu
sem ffam kemur fýrir prófkjör má
sjá Ianga lista frá frambjóðendum
um hvað ætti og mætti gera í
bættri þjónustu við bæjarbúa. Fátt
hef ég séð sem ekki má til sanns
vegar færa í þeirri upptalningu.
Forsenda þjónustu eru tekjur sem
nær eingöngu verða til með
sterku og öflugu atvinnulífi sem
er í raun forsenda blómlegrar
byggðar. Okkur ber skylda til að
nýta þau tækifæri og þær
náttúruauðlindir sem bjóðast í
umhverfinu á hveijum tíma.
Tækifærin hér em í mörgu fleiri
og meiri en annars staðar á land-
inu. Nálægð bæjarins við eina
millilandaflugvöll landsins er til
að mynda forsenda fjölda at-
vinnutækifæra í hinum ýmsu
greinum. Þá er eitt stærsta
markaðssvæði landsins, höfuð-
borgarsvæðið, steinsnar ffá bæn-
um okkar. Vegna þessara tveggja
þátta em tækifæri bæjarins til
atvinnuuppbyggingar nær tak-
markalausir. Hér vantar góða
einstaklinga til koma með nýjar
og ferskar hugmyndir og
framkvæma þær.
Efla þarf hlut sjávarútvegs, ferða-
iðnaðar, þjónustu- og iðnfyrir-
tækja um leið og horft er til stærri
verkefna s.s. magnesíumverk-
smiðju á Reykjanesi o.s.frv. Með
góðu aðhaldi og skipulagi getum
við skapað atvinnuöryggi lyrir
alla bæjarbúa og opnað um leið
nýja möguleika fyrir aukna bú-
setu.
Um leið og við hvetjum til ný-
junga í atvinnulífinu þurfum við
að hlúa að þeim sem fyrir em og
skapa nýtt og betra umhverfi fyrir
alla bæjarbúa, unga sem aldna.
Samhliða allri atvinnuuppbygg-
ingu þarf að koma til aukin
þjónusta frá bæjarfélaginu. Það er
brýnt að byggja nýjan leikskóla,
tryggja einsetinn gmnnskóla og
bæta íþróttaaðstöðu til muna. Eg
mun styðja byggingu fjölnota
íþróttahúss af þeirri forsendu
gefni að nýting og rekstrargrund-
völlur sé fyrir hendi.
Sem fjölskyldumaður og faðir
veit ég af eigin raun að fjölskyld-
an er einn af homsteinum samfé-
lagsins. A tímum hraða og spen-
nu er nauðsynlegra en nokkm
sinni fyrr að uppeldismál séu í
hávegum höfð. I samvinnu við
skóla og íþróttahreyfingu þarf nú
þegar að efla til muna allar for-
vamir gegn reykingum og öðmm
vímuefnagjöfum enda em bömin
það mikilvægasta sem við eigum
og okkur ber því skylda til að
skapa þeim ömggt umhverfí.
Kæm bæjarbúar. Ef þið teljið
reynslu mína og ffamtakssemi
geta komið góðu til leiðar í
bæjarmálum skora ég á ykkur að
veita mér brautargengi í baráttu-
sætið.
Gerum góðan bæ betri.
Steinþór Jónsson,
framkvæmdar- og hótelstjóri
stefnir í 5. sæti í prófkjöri
sjálfstæðismunna.
Fundur með frambjóðendum
Framsóknarflokksins
Fundur, með væntaniegum frambjóðendum
Framsóknarflokksins, verður haldinn í Félagsheimili
Framsóknarmanna í Reykjanesbæ,
þriðjudaginn 17. febrúar nk. kl. 20.00.
Þeir sem gefið hafa kost á sér í skoðanakönnunina,
vegna bæjarstjórnarkosninganna í maí, munu á
fundinum kynna sig og sín stefnumál.
Hver frambjóðandi fær 5-10 mínútur til umráða.
Dregið verður um röð ræðumanna.
Skoðanakönnunin fer síðan fram í Félagsheimilinu,
dagana 19., 20., 21. og 22. febrúar nk. þar sem
aðal- og varamenn fulltrúaráðsins greiða atkvæði.
Allir aðal- og varamenn fulltrúaráðsins eru hvattir til
að mæta vel á fundinn og síðan að taka þátt í
skoðanakönnunni.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Styðjum stelpurnar okkar
á laugardaginn í úrslitaleik þeirra
í körfuknattleik.
Áfram Keflavík!
STYÐJUM
ÞORSTEINERLINGSSON
í 3. ■ 4. SÆTI í PRÓFKJÖRI
SJÁLFSTÆDISFLOKKSINS
LAUGARDAGINN
21. FEBRÚARN.K.
Eflum bæinn okkar!
Varnarliðið
LAUST STARF
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
óskar að ráða bifvélavirkja til starfa
á Bifreiðaverkstæði Stofnunar
verklegra framkvæmda.
Starfið felst í vélastillingum ásamt
öllum almennum viðgerðum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi
þekkingu á bílarafmagni og
reynslu af notkun tölvustýrðra
vélastillingatækja.
Góð enskukunnátta nauðsynleg.
Umsóknir berist til Ráðningar-
deildar Varnarmálaskrifstofu,
Brekkustíg 39, Reykjanesbæ,
sími 421-1973,
eigi síðar en 20. febrúar 1998.
Starfslýsing liggur þar frammi til
aflestrar fyrir umsækjendur og er
þeim bent á að lesa hana áður en
sótt er um.
Umsóknareyðublöð fást
á sama stað.
Víkurfréttir
7