Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.02.1998, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 12.02.1998, Blaðsíða 18
Spinning kynnt byrjendum Líkamsræktarstöðin Perlan hefur tekið miklum breyt- ingum á síðustu vikum og hefur stöðin stækkað um eina 200 fermetra. Opnaður hefur verið sérstakur Spinningsalur og tækjaslaurinn hefur jafn- framt verið stækkaður. Þeir sem aldrei hafa prófað spin- ning gefst kostur á að kynna sér þetta nýja íþróttaæði á Perlunni laugardaginn 21. febrúar kl. 13:30 en þá verð- ur boðið upp á tvo ftía kynn- ingartíma. Tuttugu manns komast í hvom tíma. Jafn- framt getur fólk kynnt sér aðra starfsemi Perlunnar. Helgina þar á eftir verður síðan boðið upp á frían kynnigartíma í eróbikk. Perlan hefur áhuga á að komast í samband við íþróttahópa sem hafa áhuga á að nýta sér eróbikk- og spinningsal ásamt tækjasla sem er að sögn frábær. Þjálfarar eru beðnir að hafa samband við Perluna. Stúlkur vantar í Fegurð 1998 Enn vantar stúlkur úr Garði, Sandgerði og Grindavík í Fegurarðsamkeppni Suðurnesja 1998. Ábendingar um stúlkur úr þessum byggðarlögum berist til Ágústu í síma 4216362 eða 421 5099. lul Fundur um fjárhags- áætlun og fjölnota íþróttahús í kvöld! Kynningarfundur um fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar verdur haldinn í Félagsheimili framóknarmanna, Hafnargötu 62, fimmtudaginn 12. febrúar 1998 kl. 20.30. Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins, Drífa Sigfúsdóttir og Steindór Sigurðsson, munu kynna fjárhagsáætlunina. Einnig mun Gísli Jóhannsson kynna tillögu að fjölnota íþróttahúsi. Allir velkomnir og þeir sem sitja í nefndum fyrir Framsóknarflokkinn eru sérstaklega hvattir til að mæta. Stjórn fulltrúaráðsins Leikur ísfirðinga og Grind- vfldnga ætti að vera peningana virði. Grindvflcingar hafa leikið best allra framan af vetri og eru langefstir í DHL-deildinni. ísfirðingar hafa kontið mjög á óvart, leikið geysivel og verið með efstu liðum allt tímabilið. Leiðir liðanna í úrslitaleikinn voru mjög ólíkar, Grindvíkingar fengu einn erfiðan leik, Hauka á heimavelli, en hinir leikirnir voru gegn liðum í neðri deild- um. Isfirðingar hafa haft lukku- na sín megin og einungis fengið heimaleiki. Heimaleikimir hafa ekki verið af verri endanum, Tmdastóll, Keflavík, Njarðvík. Leikskipulag liðanna: sóknarleikur. ísfirðingar leika rólega og skipulagt. Þeir einbeita sér að því að koma boltanum inn í vítateiginn til Bevis og Friðriks sem eru þar erfiðir viðureignar. Ekki má þó gleyma skyttunum Ólafi og Baldri sem og leik- stjórnandanum Salas. Af bekknum kemur síðan þjálf- arinn, margreyndur bikarúrslita- maður, Guðni Ó. Guðnason sem ekki má gleyma eitt andar- tak. Lykillinn er þó Bevis sem smitar liðið allt með áræði sínu og hæfileikum. Grindvflcingar leika hratt og á tíðum óskipu- lega. Þeir treysta á að geysilegir sóknarhæfileikar stjarnanna þriggja Darryls Wilson, Helga Jónasar Guðfinnssonar og Konstantíns Tsartsaris beri liðið sóknarmegin. Pétur Guðmunds- son, Guðlaugur Eyjólfsson, Bergur Hinriksson og Bergur Eðvarðsson eru traustir leik- menn sem refsa fljótt reyni varnarmenn þeirra að hjálpa gegn stjömunum. Hver um sig geta þremenningarnir gert út um leikinn slflcir em sóknarhæ- fileikamir og ef allir þrír „detta í stuð“ verður liðið ekki stöðvað. Leikskipulag liðanna: varnarleikur: Isfirðingar em gríðarlega sterkir undir körfunni þar sem Bevis og Friðrik stjóma málum. Þeir frákasta og loka almennt teignum mjög vel. Vöm bak- varðanna var akkilesarhæll liðsins í upphafi tímabils og skomðu bakverðir andstæðing- anna mikið, tölur eins og 54 stig og 48 stig sáust. Þeir hafa sfðan verið stöðugt að stoppa í gatið en þetta verður að teljast helsti veikleiki liðsins. Grindvíkingar leika á tíðum geysisterka liðsvöm. Pétur og Konstantín ná vel saman undir körfúnni, sá fyrmefndi niðri en hinn uppi. Álgengt er að leikmenn bijótist framhjá hinum hávaxna Konstantín aðeins til að fá mðn- ing dæmdan fyrir að ryðjast yfir Pétur sem er skyndilega kom- inn í veg fyrir þá. Bakverðimir Wilson, Helgi Jónas og Guð- laugur leika fasta maður á mann vöm. Þeir pressa boltann stíft út vitandi af Konstantín fyrir aftan sig tilbúnum til að verja skot andstæðingana. Þetta veldur því að þeir stela oft boltanum og fá ódýrar körfur. Veikleikinn er að svona stíf vöm kostar oft marg- ar villur ásamt því að takist and- stæðingnum að vemda tuðmna kemur vömin sér oft úr jafn- vægi sem kostar auðveldar körfur. Hvernig lýst þér á leikina? Hrannar Hólm, körfuknattleiksspekúlant: Grindvíkingar em mun sigurstranglegri. Bakvarðaparið Wilson og Helgi Jónas mun reynast fsfirðingum þungt í skauti. Wilson kann ömgglega vel við stemminguna í höllinni og komist hann í “gott grúv” er voðinn vís. Isfirðingurinn Bevis er einn 3 bestu erlendu leikntannana í ár, skynsamur, stöðugur og jákvæður. Hann ásamt Friðriki Stefánssyni gætu reynst ofjarlar Grikkjans unga. Annars verður taugastyrkur lykilatriði, falli sjálfstraustið fer sigurinn á sama tíma. Líkurnar eru Grindvíkinga, tvímælalaust. Kvennaleikurinn verður eign Keflvíkinga frá upphafi til enda. Búnar að kaupa kampavín. NYR BANDARIK JAMAÐUR Keflvíkingar hafa fengið nýjan banda- ríkjamann í stað Dana Dingle sem fór heim í vikunni. Piltur er nefndur Maurice Spillers og lék hann með Utah State háskólanum á síðustu leiktíð. Hann mun vera 23 ára blökkumaður, u.þ.b.* 200 cm á hæö og u.þ.b.* 100 kg. Að sögn fróðra manna á Spillers aö vera fjölhæfur leikmaður, duglegur og drífandi. (**U.þ.b er ailtaf sett þegar verið er að meta nýja banda- ríska leikmenn sem enginn hefur séð nema á pappír vegna þess að loftþrýstin- gurinn yftr Islandi á það til að minnka og þyngja þes- sar stjörnur). Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, sagði val erlendra leikmanna oft ákvaröast af tölulegum staðreyndum og svo væri einnig að þessu sinni. „Ég rakst á þá staðreynd að við Spillers eigum sameigin- legan afmælisdag og sá þá að hann hlyti að búa yfir miklum mannkostum, í raun ekki hægt að velja annan leikmann. Ef hann reynist 110 cm og 220 kg verður bara að hafa það, örugglega pottþéttur karakter” ,bætti Siggi kokhraustur við. Mánudagsfundur Félagar munið eftir mánudagsfundi sem haldinn verður n.k. mánudag 16. febrúar kl. 20.30 að Hafnargötu 31. í Keflavík Bæjarmálafélag jafnaðar- og félagshyggjufólks vXv gt. 18 V íkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.