Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 30.03.1999, Side 9

Víkurfréttir - 30.03.1999, Side 9
W & sykurlaust Loðiðlífí undirheimum! I síðustu viku fór skólpið á tveimur salern- uin hjá Verka- lýðs- og sjó- mannafélagi Keflavíkur og nágrennis. Þegar hugað var að viðgerðum og bæjar- starfsmenn hófu að mynda holræsin komu að linsunni kunnugleg trýni og ljóst varð að ekki er minna líf undir Hafnargötunni en á henni. Rottur hafa alltaf skotið upp kollinum öðru hvoru í Reykjanesbæ, þar sem gömlu skólplagnirnar eru enn við lýði, og þarna hafa blessaðar skögultenn- urnar séð sér færi á að koma sér upp fjölskyldu í bilinu sem myndaðist er leiðslurn- ar brugðust. Litlu loðnu kið- fættu greyin með langt skott og höktandi göngulag, leiftr- andi augnaráð og óbilandi vinnuþrek. Mmm. Friðum Framsokn! Pistlaskrifari hefur um stund ætlað aðljúka úttekt á léttu nótunum um flokka- flóruna á Islandi.Aðeins nú- verandi stjórnarflokkar áttu eftir aðfá sitt.En erfitt revndist þrátt fyrir góðan vilja aðfinna nokkuð- skemmtilegt eða fyndið við- Sjálfstæðisflokkinn.Hvað er fyndið við flokk sem lætur einn mann segja sér um hvað má tala og hvað ekki og livaða mál eru yfirhöfuð á dagskrá. Er eitthvaðf ynd- ið viðráðherra sem líkir borgarstjóra viðalræmdasta fjöldamorðingja ( Pol Pot) síðan Hitler og Stalín lögðu upp laupana.Hreint ekki. Framsókn aftur á móti, Það- er huggulegur og skemmti- legur flokkur. Pabbi heitinn og hinir bændurnir í Bjarnafirðinum voru Fram- sóknarmenn, enda lítið vit í öðru. Framsókn „reddaði” Farmölum og öðru slíku, réði oftast landbúnaðarmál- um og stjórnaði af alkunnri snilld.Bjarnafjörðurinn er aðvísu að mestu kominn í eyði núna líkt og fleiri Fram- sóknarsveitir.Þaðer sjálfsagt ástæðan fvrir því að Fram- sókn hefur revnt að ná af sér Hrafnkels saga sveitabragnum á síðustu árum og sækja fram í þétt- bylinu. I stað Blesa er komið mótorhjól.badmintonspaði kemur í stað kevris og leð- urgalli í staðinn fyrir gömlu grænu Sambandsúlpuna. Fvrir síðustu kosningar tókst nokkuðvel að plata þéttbylingana og pistlaskrif- ari sem er vonlaus sveitaróm- antíker hafði áhyggjur af að gamli kúffélags sjarminn væri að hverfa, en sem betur fer Þá nær gamli Framsóknarand- inn alltaf yfirhöndinni. Við skulum ekkert minnast á ræðu Páls Péturssonar um litasjónvarpið hér um árið Það er gömul lumma, en ný- ustu og framsæknustu Framsóknarmennirnir sýna góða takta með tillögum um t.d. úrvalssveit hestamanna, sem ríða skuli fylktu liði á tyllidögum um bæi og héruð ekki síst viðkomur þjóðhöfð- ingja.Pistlaskrifara þætti líka við hæfi að haldnar vrði skrautsýningar samfara Þessu ineð þátttöku sauð- kindarinnar og íslcnska hundsins. Best var þó tillaga uni verndun íslenskra bæjar- nafna.Allir vita, að til er nefnd sem hefur vit fyrir fá- vísum og illa uppöldum al- menningi þegar kemur að því að gefa krakka- skömmun- um nafn.Færri vita aðfram kom tillaga um nefnd er styrði hvaða nöfn- um menn gætu nefnt bæina sína, ófært væri aðnienn skýrðu Þá t.d. Southfork eða Starlight. Af einhverjum ástæðum vakti þessi þjóð- þrifa tillaga ekki tilætlaðan áhuga. Þaðer engin ástæða til aðláta hér staðar numið.Verndum þjóðleg gildi og skipum nefndir sem fylgjast meðöll- um nafngiftum í sveitunum. Einhverjir söngleikjaaðdá- endur gætu tekið upp á því aðkalla traktorinn Starlight Express, hundinn Evitu og köttinn Cats. Þetta gæti jú riðið íslenskri sveitamenn- ingu að fullu.Ein nefnd í hverjum hrepp væri nokkuð passlegt og veitti nýju lífi í sveitirnar og ekki van þörf á.Voru ekki líka gefin loforð- um 12.000 ný störf hér ein- hvern tímann. Reyndar er búið aðs verfa þannig að sauðfjárbændum aðkalla mætti samtök þeirra „Les Miserabbles” en það er önnur saga. En nú eru erfiðir tímar. Þrátt fyrir að vera áberandi skemmtilegasti flokkurinn á Framsókn undir högg að- sækja.Ég vil því aðf lokkur- inn verði friðaður áður en það er um seinan og tryggt að hann fái alltaf tvo menn á þing. Þar af annan á Norð- urlandi vestra. Sú kvöð mætti gjarnan fylgja, að þeir klæddust sauðskinnsskóm í þingveislum og kvæðu rím- ur.a.m.k. algjört lágmark að þeir geti komiðsaman fer- skeytlu. Fleiri en tvo þing- menn spyr einhver.Ja til hvers? Meðkveðju frá Southfork Hrafnkell. Af vitfimngum og öðrum bæjarfulltrúum Hátt á annað ár hafa bæjar- búar og aðrir landsmenn fyl- gst með undirbúningi og framgangi varðandi byggingu fjölnota íþróttahúss í Reykja- nesbæ. Eins og oft þegar stór mál eða framtíðarfram- kvæmdir eru í vinnslu í bæjar- félaginu eru ekki allir sam- mála. Útaf fyrir sigerekkert óeðlilegt við slíkt, bæjarfull- trúar sjá hlutina í misjöfnu ljósi og haga þá málflutningi sínum og atkvæðagreiðslu í samræmi við það. A undanfömum árum hefur farið fram nijög málefnaleg og fagleg umræða í bæjar- stjóm Reykjanesbæjar um hin fjölmörgu verkefni sem á dagskrá hafa verið hverju sinni. Bæjarfulltrúar verið sjálfum sér samkvæmir jafnt fulltrúar meirihluta sem minnihluta og gætt virðingar í hvívetna. Nú bregður svo við að með tilkomu J-listans við síðustu kosningar hafa menn þar á bæ tamið sér ann- að orðbragð, óvandaðra og gæta ekki virðingar sinnar. En nýir siðir koma með nýj- um herrum og er sjálfsagt ekkert við því að gera. Tjarnargata 12 Árið 1989 gerði Keflavíkur- bær samkomulag við fslenska Aðalverktaka um að taka á leigu til 20 ára óuppsegjanlegt og síðan forleigurétt á efri- hæðinni að Tjamargötu 12. Um áramótin 1990-91 þegar byggingu lauk voru samning- ar undirritaðir. Ekki vom allir sáttir með þá gjörð, meðal annarra kom þá til bæjarstjór- ans jafnaðarmaður sem lýsti andúð sinni á leigusamning- inn og sagði að það ætti ekki að leigja,, bærinn ætti að kaupa. Honum var tjáð að þessi leið væri hagstæð bæn- um, hann hristi hausinn og fór. Nú nýlega var stofnað eignarhaldsfélagið Tjamar- gata 12 ehf. af Víkum ehf., Lífeyrissjóði Suðumesja og Reykjanesbæ. Félagið keypti af fslenskum Aðalverktökum allt húsið, og leigir síðan Sparisjóðnum, Lífeyrissjóðn- um og bænum sama húsnæði og þeir hafa til næstu 20 ára óuppsegjanlegt. Sami jafnað- armaður kom nú í heimsókn og óskaði bænum til ham- ingju með að vera búinn að kaupa bæjarskrifstofumar og sagði í leiðinni. „Þetta sagði ég alltaf, þú áttir að kaupa húsið í upphafi en ekki leigja”. Við þessi orð reiknaði ég út hvað húsið hefði kost- að í upphafi með láni til 35 ára. Heildar kaupverð hefði orðið um 2.2 milljarðar og hlutur Keflavíkurbæjar tæpar 700 milljónir kr. Leigugjald á sama tíma er rúmar 230 milljónir kr. allt á sama verðlagi. Þegar ég sýndi þessum ágæta jafnað- armanni niðurstöðuna og benti honum vinsamlega á að húseigandinn hefði nú af ýmsum ástæðum talið heppi- legt að selja og við að kaupa þar sem verðið væri hagstætt, þá viðurkenndi hann að valin hefði verið rétt leið í upp- hafi að leigja til langs tíma og vera síðan reiðubúinn í kaup þegar rétta tækifærið gafst. Spamaður skiptir hundruðum milljónum króna. Fjölnota íþróttahús „Fyrst ég er nú kominn í heimsókn á annað borð langar mig að fá skýringar á þessu íþróttahúsi” hélt gestur minn áfram. „Vinsamlegast settu það fram í nokkrum áherslu- þáttum! Mín er ánægjan svar- aði ég. I fyrsta lagi er mjög góð reynsla af leigufyrirkomulag- inu sem bærinn hefur liaft vegna Tjamargötu 12 sl. 9 ár. I öðru lagi mjög vönduð mannvirkjagerð íslenskra Að- alverktaka. I þriðja lagi hagstætt verð miðað við gæði, glæsileg bygging. í fjórða lagi hefur bæjarsjóð- ur nú lagt um 1,7 milljónir kr. í undirbúning en með hefð- bundnum útboðshætti má áætla að 26 milljónir kr. hefði þurft frá bænum til að hanna og bjóða út. I fimmta lagi sér eigandinn um viðhald utandyra fyrstu fimm árin. í sjötta lagi er verð á fer- metra helmingi lægra en í venjulegum íþróttahúsum. f sjöunda lagi er hægt að kaupa húsið hvenær sem er t.d. eftir 5-7 ár eða síðar. í áttunda lagi eru mjög miklar líkur á að EVRAN verði kom- in sem gjaldmiðill á íslandi innan 10 ára og þá lækka vextir. I níunda lagi eykst rými í íþróttahúsum bæjarins með hagkvæmum hætti, með því að ýmsar íþróttagreinar sem nú eru þar inni flytjist til. í tíunda lagi að bæta eins og kostur er æfinga og keppn- isaðtöðu ungra stúlkna í fþróttum, en brottfall þeirra er mikið áhyggjuefni. Marg sannað er að besta forvöm gegn vímu- og fíkniefnum er aukin íþróttaiðkun ungs fólks. Agæti lesandi, mér þótti rétt að setja á blað stutt brot úr viðtali mfnu við þennan ágæta jafnaðarmann, sem fór mjög sáttur til síns heima og sagði um leið og hann kvaddi „segðu fleirum en mér, það þarf að margsegja sumum”. Ellert Eiríksson bœjarstjóri Víkurfréttir 9

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.