Víkurfréttir - 30.03.1999, Page 11
LIF MITT BREYTTIST
Fyrir nokkrum árum lifði
ég ósköp hversdagslegu
J m lífi sem ég var að mestu
Í1 tfl leiti ánægð með, en fann
samt að eitthvað vantaði .
Innra með mér var tóma-
rúm, sem ég reyndi eftir
bestu getu að fylla á ýms-
an hátt. En ég fann ekki
gildi lífsins á skemmti-
stöðum og ekki sannleikann þar sem ég leit-
aði hans.
Ég var á endanum komin á þá skoðun að
það væri bara eitthvað að hjá mér. Engin af
mínum nánustu virtist skilja þetta tómarúm
mitt, þvj líf mitt var ekkert frábrugðið lífi
annara. Ég átti allt sem ég þurfti. Nema Jesú.
Svo var það kvöld eitt að ég ákvað að kíkja
á samkomu hjá Hvftasunnukirkjunni. Það
sem ég sá og heyrði þar.var einmitt það sem
ég þuifti og án þess að hugsa mig um tók ég
á móti Jesú. Strax þá fylltist hjarta mitt af
gleði og ffiði og ég fann að ég hafði fundið
það sem ég hafði leitað svo lengi að. Ég
byrjaði síðan að kynnast Guði með því að
lesa biblíuna, biðja og fara á samkomur.
Þetta gerðist fyrir einu og hálfu ári síðan og
enn í dag er ég að kynnast föður mínum á
himnum, kærleika Hans og umhyggju og
vilja hans með líf mitt. Tómarúmið er orðið
yfirfullt. Margir halda, að fylgja Jesú sé bara
boð og bönn. En þegar við byijum að elska
hann, eyða tfma með honum, verða þeir
hlutir sem áður voru skemmtun, einskis
virði í samanburði við það sem Guð gefur.
Er það ekki svo að þegar einhver elskar, þá
vill hann þeim aðila hið besta. Þannig er
Guð. Hann er alltaf til staðar fyrir mig og þó
að allt mannlegt bregðist þá er Guð ávallt
mér við hlið til að mæta öllurrí rnínuin þörf-
um. Hann er sá eini sem aldrei bregst. Mitt
líf í dag er yndislegt og ég myndi ekki skipta
á því sem ég á í dag og öllu heimsins gulli.
Jesús dó fyrir okkar syndir svo við gætum
eignast eilíft líf. Þess vegna hef ég ákveðið
að gefa honum alla mína ást, öll mín hjart-
ans fylgsni. eða bara allt nritt líf. Drottin
blessi þig.
Guðrún Erla Gunnlaugsdóttir.
www.qospel.is
Þeir sem vilja kynnast
Hvítasunnukirkjunni Veginum í
Reykjanesbæ betur og hafa aðgang að
internetinu er bent á heimasíðuna
http://www. gospel. is
Hvítasunnukrikjan Ve?urinn
Hafnargötu 84 • 230 Keflavík
www.gospel.is
Auglýsing
FYRIR UNGUN6A?
Tómas Davíð Tómasson 15 ára.
Tómas, ertu ekki alltofungur til aðfara lifa fyrir Guð?
Tómas: Nei, Guð er fyrir alla á öllum aldri og vill taka þátt í
lífi okkar.
Eru þó margir á þinum aldri sem vilja virkilega jylgja Jesá?
1 omas: Veit ekki um mjög marga, mættu vera fleiri.
Hrað viltu segja við unglinga sem halda að trúin sé leiðinleg?
Tómas: Trúin er langt frá því að vera bara boð og bönn, mað-
ur eignast gleði og frið. Svo veit ég líka að Guð er með mér f
öllu sem ég geri.
Auður Adda Halldórsdóttir 14 ára:
Auður, nú man ég að þú harðneitaðir að koma á samkomur
og sagðir að trúin vœri leiðinleg. Afhverju byrjaðirþú síðan
að koma í kirkju og það á hverja einustu samkomu?
Auður: Ég frelsaðist og það breytti öllu mínu lífi. Ég var
þunglynd, átti erfitt með svefn, var leiðinleg, einmana og smá-
borgari og hafði takmarkað skopskyn. En núna er ég svo til
alltaf glöð, líður mikið betur, ekki lengur smáborgari, heldur
konunglegur ríkisborgari í hinrninum.
Nú ert þú bara 14 ára þaiftu ekki að prófa að lifa lífinu fyrst?
Auður: Ég er að lifa lífinu, búin að lifa í heiminum og það er
ekkert stuð miðað við þetta.
Hvað viltu segja við unglinga?
Guð gefur eilífan frið og gleði og ef þið viljið það, þá fylgið
Guði.
ERUM VIÐ SERTRUARSÖFNUÐUR?
Árið 1993 voru Hvítasunnu-
menn og aðrar skyldar
kirkjudeildir yfir 420 millj-
ónir í hciminum, en eru um-
talsvert fleiri í dag.
Lútherskir eru í dag taldir
61,5 miiljónir.
Allar þessar kirkjur játa
Jesúm Krist sem frelsara,
upprisu mannsins, endur-
komu Krists og eilífan dóm.
Kenningarmunur hvíta-
sunnunianna og lútherskara
felst í því að Lútherskir
skíra barnaskírn en hvíta-
sunnumenn og flestar aðrar
kirkjur skíra fólk eftir að
það tekur trú, og þá niður-
dýfingarskírn, sem er sú
skírn sem viðhöfð var í upp-
hafí kristni á Islandi.
Égvarleitandi
Allt mitt líf hef ég verið leitandi. Mig vantaði
innri frið, og líf mitt var hamingjusnautt. Ég
lærði innhverfa íhugun í leit minni að innri
friði, en ekkert gekk . Á unglingsárunum fór
ég að nota áfengi, tóbak, og önnur eiturlyf, en
ekki fann ég hamingjuna í eiturlyfjunum. Ég
varð aðeins þræll þeirra til margra ára. Fyrir
tveimur og hálfu ári síðan eignaðist ég lifandi
trú á Guð. Jesús Kristur kom inn f líf mitt og
frelsaði mig. Á einum degi hætti ég að nota
áfengi, tóbak og önnur eiturlyf. Öll löngun
hvarf. Ég fór ekki í meðferð, missti ekki dag úr vinnunni og
þetta kostaði ríkið ekki krónu. Það besta var að þetta er löglegt.
Ég fékk ekki fráhvarfseinkenni, |xtta var eias og ég hefði aldrei
notað eiturlyf. I dag er ég hamingjusamur á innri frið og þekki
sannleikann. Málið er einfalt. Jesús Kristur er svarið.
Guðmundur Árnason.
Víð verðum að velja
Hver er ég, hvaðan er ég komin, hvað verður
um mig þegar ég lýk þessu jarðlífi?
Er líf eftir dauðann, er til einhver andlegur
heimur? Hvemig varð þetta allt saman til og
hver er tilgangurinn? Á unglingsárunum fór
ég að velta íyrir mér tilgangi lífsins. Leit mín
að sannleikanum var hafin. Ég vissi ekki þá
að ég yrði svo heppin sem raun ber vitni.
Sannleikann fann ég án þess að lenda í meiri-
háttar hremmingum. Ég fann Jesú Krist og
svörin við spurningum mínum komu eitt af
öðru. Síðan á unglingsárunum hefur Jesús verið besti vinur
minn. Hann hefur fylgt mér gegnum súrt og sætt og staðið mér
við hlið allar götur síðan. Eftir þessa reynslu mína gæti ég ekki
hugsað mér að fara í gegnum lífið án Jesú enda er hann sá vinur
sem í raun reynist.
Lífið í þessum heimi er síbreytilegt, þau gildi sem í dag standa
eru fallin á morgun. Þess vegna er nauðsynlegt að eiga eitthvað
sem er öruggt og óbreytanlegt, eitthvað sem ekki fylgir tísku-
straumum, breytist vegna viðhorfa manna eða nýjustu uppgötv-
ana vísindanna. Þannig er Jesús. Hann er sú festa sem ég hef
fundið í lífinu og ekki bara í mínu jarðneska lífi heldur nær kær-
leikur hans út yfir gröf og dauða . Biblían , sem er Guðs orð lof-
ar okkur því að ef við tökum við Jesú Kristi sem okkar persónu-
lega frelsara munum við lifa með honum um alla eilífð . Biblían
talar skýrt og ákveðið um lífið eftir dauðann síðan er það okkar
að velja og hafna. Ég valdi að fylgja Jesú, trúa honum og
treysta fyrir lífi mínu og hef aldrei séð eftir því vali. Hann er
góður Guð sem þráir persónulegt, daglegt samband við okkur ,
sköpun sína.
María Magnúsdóttir.
V íkurfréttir
11