Víkurfréttir - 30.03.1999, Page 14
Stærsta grafa Evrópu
á leið til Grindavíkur
Samningur um dýpkun
innsiglingarinnar í
Grindavík var á dög-
unuin undirritaöur af
Haildóri Blöndal sain-
gönguráðherra, Einari Ein-
arssyni bæjarstjóra, Mar-
gréti Gunnarsdóttur for-
manni hafnarnefndar og
Lennart Henrikson fram-
kvæmdarstjóri Skanska
Dredging AB. Einnig voru
viðstaddir Kjell Helgesson
sem verður verkefnastjóri
og Hans Lindström en hann
sá um alla samningagerð
fyrir fyrirtækið. Að sögn
Lennarts Henrikson mun
fyrirtækið koma með sín
bestu tæki til verksins og
koma þeir með stóran
pramma sem mun standa á
löppum og verður hann
notaður við boranir. Grafan
sem verður notuð til
verksins er stærsta grafa
sinnar tegundar í Evrópu.
Skanska mun koma með
allan sinn búnað í endaðan
apríl og verður verkið hafið
um miðjan maí og er áætlað
að dýpkun verði lokið í
endaðan ágúst. Meöal gesta
sem fögnuðu þessum áfanga
voru nokkrir þingmenn
kjördæmisins starfsmenn
siglingastofnunar ásamt
bæjarstjórn og hafnar-
nefnd.
Grindavík „openu
Fyrir skemmstu var
haldið Opna Grinda-
víkurmótið í pílukasti í
Festi í Grindavík.
Barna voru mættir allir
bestu pílukastarar landsins
en 28 þátttakendur voru á
mótinu fró nokkrum píluk-
lúbbum. I undanúrslitum
mættust þeir Guðjón
Hauksson frá Pílufélagi
Grindavíkur og Oli Sigurðs-
son frá Pílukastfélagi
Reykjanesbæjar annar
vegar og Jóhannes Harðar-
son og Kristinn Magnússon
báðir frá Pílukastfélagi
Reykjanesbæjar. Guðjón og
Jóhannes mættust svo í
úrslita leik og eftir mjög
harða og spennandi keppni
stóð Jóhannes uppi sem sig-
urvegari. Itæjarstjóri
Grindavíkur afhenti svo
verðlaunin og glæsilegan
farandbikar sem Grinda-
víkurbær gaf til keppninar í
fyrra. Þótti mönnum mótið
takast mjög vel og vel að
öllu staöiö. Mótstjóri vildi
taka fram að það væri helst
að þakka styrktaraöilum
hvernig hefði til tekist en
þeir eru Stakkavík, Fiska-
nes, Bílaþjónusta Halldórs,
Vélsmiðja Þorsteins, Vísir,
Þorbjörn og Grindavík-
urbær.
Landssamband slökkviliðsmanna efndi til
Eldvamarviku í desember sJ. og heimsóttu
slökkviliðsmenn nær alla grunnskóla
landsins hver í sínu starfssvæði og lögðu
fyrir nemendur þriðja bekkjar sérstakt verkefni
ásamt eldvamargetraun og ræddu unt eldvamir.
Dregið var úr innsendum lausnum og í
Grindavík var það Lilja Ósk Sigmarsdóttir sem
fékk afhent áritað viðurkenningarskjal frá
Landssambandi slökkviliðsmanna ásamt pakka
sem í var m.a. fjölskylduspil, reykskynjari. eld-
vamarteppi og fl. Asmundur Jónsson slökkvil-
iðsstjóri bauð svo Lilju Ósk í ökuferð á
slökkvibíl og hafði hún mjög gaman af.
Undirbúningur
stendur yfir-
Lndirbúningur l'yrir Fegurðarsamkeppni Suðurnesja
1999 stendur sem hæst. Meðfylgjandi myndir voru tek-
nar í undirbúningi keppninnar. Um hárgreiðslu sjá
Bjarklind Gísladóttir og Aldís Sigurðardóttir. Förðun
annast Stefanía Björnsdóttir, Ciuðrún Osk
(junnlaugsdóttir og Guðleif Arnardóttir. Þá sér Guðný
Osk Hauksdóttir um neglur stúlknanna.
VF-myndir: Páll Ketilsson
M 99
Hvítar nærbuxur
í Sandgerði!
Umfjöllun tímarits Víkurfrétta
um fjölda jeppa í Garðinum
miðað við höfðatölu fór misvel í
fólk og bárust blaðinu skeyti,
skop og níð að því tilefni. Þar á
meðal var símbréf frá óþekkt-
um aðila sem lagði til að „pap-
arazzar" blaðsins eltust við
flöktandi fatasnúrur Sand-
gerðinga næst, þar væri að
finna flestar hvítar nærbuxur.
Gmnar Víkurfréttir að þama
hafi verið á ferð harður and-
stæðingur sameiningar, á 35
tommu Krúser hið
minnsta...
Víkurfréttir