Víkurfréttir - 29.04.1999, Blaðsíða 31
Keflvíkingar iögðu Njarðvíkinga í æsispennandi oddaleik í úrslitum íslandsmótsins í körfuknattleik:
Keflvíkingar Islandsmeistarar
Sigurður Ingimundarson þjálf-
ari Keflvíkinga stóð uppi sem
sigurvegari að lokum, ekki
óvanur því pilturinn. Hann lof-
aði Keiívíkingum titlinum og
stóð við stóru orðin.
„Leikurinn að mínu mati ffábær
skemmtun fyrir áhorfendur,
jafn og spennandi allan tímann.
Mér fannst liðsheild okkar
virkilega sterk í þessari úrslita-
keppni og reyndar í allan vetur.í
þessum síðast leik þá spiluðum
við virkilega saman sem lið.“
Var það ákvörðun þín að láta
sóknarleikinn í hendurnar á
Fal og Damon en þeir báru
sóknarleik liðsins upp í seinni
hálfleik?
„Ekki var það nii ákveðið held-
ur þróast leikir á alla vegu og
þetta er nú ekki í fyrsta skipti
sem Falur spilar vel á úrslita-
stundu."
Hvers vegna beiðstu svona
Iengi með að láta Danion
reyna sig við Brenton - einvígi
sem margir höfðu beðið með
eftirvæntingu?
„Það að Damon gætti ekki
Brenton meira í vöminni á sér
sínar skýringar. Við spiluðum
reyndar svæðisvöm megnið af
leikjunum en einnig var Damon
oft kominn snemma í villu-
vandræði og því ekki fysilegur
kostur að setja hann á Brenton
sem keyrir mikið inn í vöm-
ina.“
Áttu von á óbrevttu liði Kefl-
víkinga á næsta tímabili?
„Eg á von á því að Keflavíkur-
liðið verði svona að mestu
óbreytt á næsta ári, en tæpast á
ég von á að Damon leiki aftur
hér á landi.“
„Það kemur dagur
eftir þennan dag
(.(•
- segir Friðrik Rúnarsson þálfari Njarðvíkinga
Friðrik Rúnarsson þálfari
Njarðvíkinga óskaði Keflvík-
ingunt til hamingju með titil-
inn og sagði jafnframt Njarð-
víkinga geta borið höfuðið
liátt. „Oddaleikurinn segir í
raun allt sem þarf. Serían var
jöfn og Ijóst að leikið yrði til
þrautar í þessum leik. Við
hófum leikinn illa, hittum
ekki úr sömu færum og Kefl-
víkingar voru að setja niður.
1‘annig komum við okkur í
ákveðna krísu en í hálfleik
sagði ég mínum mönnum að
hafa minni áhyggjur af sókn-
arlilið leiksins og einbeita sér
að vörninni. Það skilaði sér í
afslappaðri sóknarleik og
betri vörn og við jöfnuðum og
komumst yfir. Þá kom að
þætti Fals Harðar hann tók
bara sjénsinn á að láta vaða á
súðum í sókninni. Það gekk
upp hjá honum og voru
margar körfur hans ótrúlega
góðar. Eftir stendur að það er
sárt að annað liðið þurfl að
tapa - en það kentur dagur
eftir þennan dag.“
Falur Harðarson réði lögum og
lofum á vellinum í seinni hálf-
leik og hreinlega bar uppi
sóknarleik Keflvíkinga ásamt
Damon Johnson en þeir tveir
áttu þátt í hverri einni og ein-
ustu körfu Keflvíkinga í seinni
hálfleik. Hann skoraði alls
staðar af vellinum og hver
glæsikarfan á fætur annarri dró
máttinn úr Njarðvíkingum
hægt og rólega þar til þeir áttu
ekki lengur svör og sigurinn
því Keflvíkinga.
Var það ákvörðun þjálfarans
að láta sóknarleikinn með
þesswn hœtti í hendur ykkar
Damons?
„Nei, þetta þróaðist bara
svona. Ég reyndi ekki mikið
fyrstu fimm mínútumar en síð-
an hrökk allt í gang.“
Nú breyttu Njarðvíkingar um
varnarmenn t gríð og erg án
þess að hœgja nokkuð á þig.
Skipti það þig engu hver var
varnarleikmaðurinn ?
„Sem betur fer skipti það ekki
F
FYRIR
FRÁBÆR
máli í jDessum leik.“
Efaðist þú einhvern tíma um
að þið mynduð halda þetta út?
„Aldrei. Ég vonaðist til að við
myndum bæta við forskotið í
seinni hálfleik og þrátt fyrir að
Njarðvík næði að jafna hafði
ég alltaf trú á að við ættum
eina góða rispu eftir."
Þriggja stiga skotið ótrúlega,
yfir hinn rúmlega 2 metra
Friðrik Stefánsson, gott sem
úti á miðjttm velli. Sástu yfir-
leitt körfttna?
„Jú, jú, annars hefði ég varla
skotið. Biggi setti upp góða
hindrun og ég hafði nægan
tíma til að athafna mig og setja
skotið ofaní.“
Hvenær varst þú orðinn ör-
uggttr um sigur?
„I stöðunni 88-80 með tíu sek-
úndur eftir, ekki fyrr.“
A Falur Harðarson þennan tit-
il?
„Nei, þetta er liðsíþrótt, við
urðum íslandsmeistarar saman
og töpuðum líka bikarúrslita-
leiknum saman. Maður tekur
engan einn fram yfir annan,
við erum með frábæra leik-
menn, þjálfara og stjórn og
þegar allir leggjast á eitt er
hægt að korna ýmsu í verk.“
Verða þeir Falur Harðarson
og Damon Johnson áfram með
Keflavík nœsta vetur?
„Eg verð örugglega Keflvík-
ingur áfram en vinur minn
Damon Johnson á það skilið
að fá tækifæri í betri deild fyrir
meiri peninga og vonandi tekst
honum jjað jrótt ég vildi glaður
hafa hann hér áfram."
Brenton Birmingham var
að vonum óánægður með
að hat'a tapað og tók á sig
ábyrgðina þrátt fyrir að haf'a
skilað 20 stigum, 16 frá-
köstum og 9 stoðsending-
um. „Ég klikkaði út mikil-
vægum skotum á krítískum
augnablikum í seinni háif-
leik. Annars verður að segja
að betra liðið sigraði í kvöld
eins og í seríunni allri, betra
liðið vinnur. Þetta voru tvö
bestu lið deildarinnar að
kljást um titilinn í 5 leikja
serfu, barist liverja mínútu
fyrir hverjum Irolla og synd
að annað liðið þurfti að
tapa. Ketlvíkingar eiga hrós
skilið, |reir eru með mjög
goit lið og frábæran útlend-
ing í Damon Johnson."
Eiga körfiiknattleiksunn-
endttr von á að sjá Brenton
Birmingliam leika mcð
Njarðvík á næsta tímabili?
„Ég veit ekki Itvort Njarð-
víkingar hafa áhuga á |)jón-
ustu minni eftir þennan leik.
Ég vildi gjaman koma aftur
og tel mig enn eiga ýmis-
legl ógert með Njarðvíkur-
liðinu."
Gunnar mikilvægur
Gunnar Einarsson sérlega vel í
úrslitaleiknum og var einn fjög-
urra leikmanna meistaranna
sem ekki fékk hvíld síðustu 20
mínútumar. Gunnar var út um
allan völl og sá t.d.til þess að
Njarðvíkingum auðnaðist ekki
að minnka muninn á lokasek-
úndunum með því að verja tví-
vegis þriggja stiga skottilraunir
Friðriks Ragnarssonar. „Damon
tönglaðist á því að við yrðum
að leika eins og um síðasta leik-
inn á ferlinum væri að ræða svo
engin eftirsjá yrði í leikslok
sama hver úrslitin yrðu. Við
vissum að Njarðvíkingar
mundu ná einum góðum spretti
og jjegar okkur tókst að hægja á
jDeim, þétta vömina aftur, þá var
ég ekki í vafa um að við mynd-
um sigra. Damon sýndi það
gegn Brenton í seinni hálfleik
að hann getur leikið fantavöm
og að hann er sá besti sem hefur
komið hingað til lands og leikið
körfuknattleik. Spennufallið í
leikslok var gríðarlegt og sigur-
víman sæt.
Er sigurinn einhverjum ákveðn-
um frekar að þakka en öðrum?
„Nei, alls ekki. Sigurinn er
Keflvíkinga allra, Iiðsins,
stjórnarinnar og stuðnings-
mannanna."
Ljósmyndir úr úrslitaleiknum
Þar sem stækka þurfti blaðið eftir að prentun á litsíðum
hófst þá breyttist litmyndaopna úr úrslitaleiknum í tvær
stakar síður í blaðinu. Vonum að það komi ekki að sök
þó svo körfuboltaumfjöllun sé á þrentur stöðum í
blaðinu í dag.
Ritstj.
i----------------------------------------j
Pökkum stuðningsmönnum frábæra
hvatningu og Njarðvíkingum drengilega keppni.
Stjórn og leikmenn
körfuknattleiksdeildar Keflavíkur
V íkurfréttir