Víkurfréttir - 29.04.1999, Blaðsíða 10
Guðmundur Kjartansson
Alvönu
lesning!
Blaðinu hefur borist
eintak af bókinni
„Allt sem karlnicnn
vita um konur“ eftir
(luðmund Kjartansson
endurskoðanda. I bók-
inni miðlar (iuðmundur
af áralangri reynslu sinni.
Gagnrýnendur fara lof-
samlegum orðum um
bókin ni.a. segir Hall-
grímur T „Hókin var bók-
staflega límd við mig, gat
ekki með nokkru móti
fcu'liíienn
vitn iuii
koiHir
lagt hana frá mér“ og
Jónína sjálf segir uin bók-
ina „Kvennafræðari fyrir
karla".
Hér er greinilega á ferö-
inni bók sem engin sann-
ur karlmaöur ætti að láta
ólesna. Höfundur mun
gcfa eign handar áritun í
safnaðarhcimilinu Innri
Njarðvík föstudaginn 30
apríl eftir kl 20:00.
Útgáfan KI’.
REYKJANESBÆR
Leikskólafulltrúi
Stada leikskólafulltrúa Reykjanes-
bæjar er laus til umsóknar
sbr. 7 7. gr. laga nr. 78/1994.
Starfssvið:
Leikskólafulltrúi hefur yfirumsjón
og eftirlit með faglegu starfi og
rekstri leikskóla, sinnir ráðgjöf og
stuðlar að samstarfi leikskóla
bæjarins innbyrðis.
Menntun:
Leikskólafulltrúi skal hafa
leikskólakennaramenntun.
Stjórnsýsla:
Leikskólafulltrúi starfar á
Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar
og næsti yfirmaður er skólamála-
stjóri. Laun eru skv. kjarasamningi
Félags ísl. Leikskólakennara og
Launanefndar sveitarfélaga.
• • •
Allar nánari upplýsingar veitir
skólamálastjóri Eiríkur Hermanns-
son í síma 421 6700. Umsóknir
þurfa að berast skrifstofu bæjar-
stjóra eigi síðar en mánudaginn
17. maí 1999, póstáritun:
Tjarnargata 12,
230 Keflavík, Reykjanesbæ.
Bæjarstjóri
r
TONLEIKAR KARLA-
KÓRS KEFLAVÍKUR
Karlakór Keflavíkur, sem verður 45 ára á ár-
inu, hefur tónleikahald ársins í Grindavíkur-
kirkju 2. maí kl. 20:30. Tónleikar verða síðan
í Njarðvíkurkirkju 4, 6 og 11. maí kl. 20:30
og í Fella og Hólakirkju þann 9. maí kl.
17:30. Flutt verða hefðbundin karlakóralög,
óperukóralög og dægurlög, íslensk sem er-
lend, undir stjóm Vilbergs Viggósonar. Und-
irleikarar em Agota Joó, Asgeir Gunnarsson
á harmonikku og Þórólfur Þórsson á bassa.
Einsöngvarar eru Steinn Erlingsson barinton
og Guðbjörn Guðbjömsson tenór en hann
hefur raddæft kórinn á þessu ári.
VERÐIIR KUOTfl-
KERFINU BREYTT?
Hér fyrrum tengdu
kjósendur Framsókn-
arflokkinn einkum
troðjúgra kúm er
fetuðu traðirnar heim til
bæja þar sem fornar hetju-
sögur af Hriflu-Jónasi
runnu ofaní bændur og
búalið með spenvolgri
nýmjólkinni.
En nú er kveðinn annar óður.
Engir ku nú draga þorska úr
sjó með hagkvæmari hætti en
Framsóknarmenn enda trúa
þeir þvf að árgæska fyrir
tilstilli kvótakerfisins sé nú
meiri til lands og sjávar en
áður hafi þekkst.
Því er það að mér finnst að
höggvi nú sá er hlífa skyldi er
Hjálmar Amason skrifar grein
í Suðumesjafréttum undir
fyrirsögninni “Kvótakerfinu
verður breytt.”
Að vísu finnst lesanda að
fyrirsögnin boði kannski ekki
stórtíðindi því höfundur segir
í upphafi að á kvótakerfmu
hafi þegar verið gerður tugur
breytinga.
Hitt er öllu merkilegra að
samkvæmt skoðun Hjálmars
hefur umræddur tugur breyt-
inga allur verið til þess gerður
að skapa um kvótakerfið sátt.
Afleiðingar þessarar sátta-
gerðar em þær að í öllum
kjördæmum landsins kraumar
óánægja og nú hefur verið
stofnaður flokkur til höfuðs
þessari kvótakerfisómynd.
En sem betur fer er það svo að
þegar gjörvallur landslýður
liggur meinvilltur myrkrunum
í er ennþá von spámanna. Og
Hjálmar segir í grein sinni:
Kjami málsins er sá að
ríkissjóður, fólkið í landinu,
fái hagnaðinn af verslun með
heimildimar einar og sér.”
Nú var það svo að þegar
kvótakerfið var sett var
tilgangurinn ekki sá að skapa
tekjustofn fyrir ríkið heldur að
koma í veg fyrir ofveiði
fiskistofna. Framkvæmd kerf-
isins hefur hinsvegar klúðrast
með þeim hætti að menn hafa
neyðst til þess að kasta sífellt
stærri hluta af veiddum
þorski. Allir þeir er til þekkja
vita að fiski sem drepst í
netum er kastað, þorski sem
er undir þrem til fjórum
kílóum er kastað, sé þorskvóti
uppurinn er öllum þorski kast-
að. Brottkast afla leiðir
augljóslega til jress að lan-
daður afli, sem er grundvöllur
útreikninga, er önnur stærð en
veiddur fiskur. Brottkast afia
skekkir því ekki aðeins alla
útreikninga heldu er hann
einnig siðlaus sóun verðmæta.
Þessi sóun hverfur ekki þótt
nú, kortéri fyrir kosningar, sé
boðuð skattheimta af þeim
milljarðahagnaði sem kvóta-
eigendum hefur verið gefinn
undanfarin ár.
Hjálmar Amason segir um
Samfylkinguna að erfitt sé að
vita hver ræður för tals-
maðurinn Margrét eða stjóm-
armaður Granda, Agúst
Einarsson.” Um hitt blandast
engum hugur liver ræður för í
Framsóknarflokknum Halldór
Asgrímsson formaður og
kvótaeigandi eða Hjálmar
Ámason.
Sigríður Jöhannesdóttir
alþingismaður.
Víkurfréttir