Víkurfréttir - 05.08.1999, Síða 4
Skattakóngar Reykjaness eru af Suðurnesjum
Útgerðarmenn lang-
gjaldahæstir þetta árið
1. Garðar Brvn jólfsson, Krossholti 15, Keflavík kr. 24.053.832
2. Reynald Þorvaldsson, Skólavegi 42, Keflavík kr. 22.012.344
3. Benóný Þórhallsson, Baðsvöllum 7, Grindavík kr. 19.145.889
4. Reynir Jóhannsson, Ránargötu 3, Grindavík kr. 14.969.974
9. Arnbjörn Oskarsson, Heiðargarði 8, Keflavík kr. 9.167.216
„Ætli maður læri
ekki bara að prjóna“
Opinber gjöld 55.806 einstak-
linga í Reykjanesumdæmi
voru gerð opinber í síðustu
viku og eigum við Suður-
nesjamenn fjóra gjaldhæstu
einstaklingana og 5 af 10
gjaldhæstu einstaklingum að
þessu sinni. Fjórir efstu menn
eru útgerðarmenn að selja
kvóta og skip en Arnbjörn
Óskarsson, verktaki, sem
endaði í níunda sæti varð
fómarlamb áætlunar og brosti
hann ekki þegar álagn-
ingarseðillinn kom inn um
lúguna. „Það kom mér mjög á
óvart að lenda í þessari stöðu
enda áætlunin engan veginn í
samræmi við reksturinn. Það
vill svo til að vegna mistaka
hjá bókhaldara mínum barst
skattframtalið ekki inn á rétt-
um tíma. Við munum að sjálf-
sögðu ekki una þessari nið-
urstöðu og á ég von á að
gjöldin verði á undir einni
milljón. Á jákvæðu nótunum
má segja að það hefði verið
óskandi ef afkoman hefði
verið svona góð. Eg hefði þá
eflaust verið á hærri launum
er margir forstjórar stór-
fyrirtækja á landsvísu. Ætli ég
innrammi ekki þennan seðil,
svona fyrir barnabörnin"
sagði Ambjöm.
„Hvað segirðu? Ætlar þú að
fara að gera eithvað
blaðamál úr þessu“ sagði
Reynald Þorvaldsson þegar
VF náði í skottið á honum.
„Þetta er ekki mjög flókið.
ég er orðinn 74 ára gamall
og verð sjötíu-og-fimm
bráðum þannig að það var
kominn tími til að draga sig
út úr þessu svo ég seldi
Hafþór KE og þann kvóta
sem honum fylgdi og
söluhagnaðurinn varð 46
milljónir. Ég er í sjálfu sér
alveg sáttur við skattinn og
vissi alltaf að þegar ég seldi
þyrfti að borga skatt af öllu
saman. Það var búið að
segja mér að skatturinn yrði
eitthvað á milli 19-20
milljónir en hann endaði í
22 m.kr.“
I_________________________
Hvað tekur nú við?
„Ég hef verið á sjó síðan ég
man eftir mér svo einhverjar
breytingar verða á lffinu.
Síðastliðna tvo mánuði hef
ég verið að dytta að sumar-
bústaðnum mínum að utan
og hyggst dúkleggja hann á
næstunni. Nú mér ætti að
gefast meiri til að jagast í
kerlingunni og snúast í
kringum barnabörnin og
barnabarnabörnin. Ætli
maður læri ekki bara að
prjóna og selji þær afurðir
svo í Kolaportinu. Annars
ættir þú að jagast meira í
svila mínum. Garðari
Brynjólfssyni, hann hefur
ömgglega meira að segja en
ég“ sagði útgerðarmaðurinn
fyrrverandi Reynald Þor-
valdsson.
Aðeins
einn stútun
Lögreglan í Keflavík
þurfti aðeins einu sinni
að draga fram öndun-
arsýnisgræjurnar um
verslunarmannahelgina. Það
var klukkan 01:40 aðfaramótt
laugardagsins að hartnær þrí-
tugur karlmaður af Suður-
nesjum var stöðvaður á Flug-
vallarvegi. Öndunarsýnis
sýndi rúmlega 2,0 prómill (á
fagmálinu) og verður við-
komandi því kærður fyrir
meinta ölvun við akstur.
Geymslu-
skúr brann
í Sandgerði
Um miðjan dag síðast-
liðinn miðvikudag vom
slökkviliðið í Sand-
gerði og lögreglan í
Keflavík kölluð að Hlíðarvegi
24 þar í bæ en þar brann
geymsluskúr sem staðsettur
var á lóðinni. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn en grunur
leikur á að um íkveikju hafi
verið að ræða.
A baðfotum
í Sandvík
Soffía Erla Einarsdóttir, 19
ára Keflavíkurmær, naut
veðurblíðunnar í Sandvík á
Reykjanesi í fyrradag. Veðrið
hefur leikið við okkur á
Suðumesjum síðustu daga og
þegar þetta er skrifað er ekki
von til þess að breyting verði
á veðurhorfum næstu daga.
Opinberir hitamælar í næsta
nágrenni höfuðstöðva Víkur-
frétta sýndu +18°C síðdegis á
þriðjudag og þegar litsíður
Víkurfrétta fóru í prentun í
hádeginu í gær brostu hita-
mælamir við sólinni og
stefndu hátt!
Það er af Soffíu Erlu að frétta
að hún starfar við þjónustu-
störf á Café DUUS við
smábátahöfnina í Keflavík en
tók sér frí um stund á
þriðudaginn til að skella sér í
sjóinn í Sandvík. Svört sand-
fjaran er kjörin til sólbaða og
ótrúlegt nokk - sjórinn er
heitur. Baðfötin em frá versl-
uninni B-wear í Keflavík sem
selur Billabong vömr. Veðrið
í sumar hefur kannski ekki
verið mjög hvetjandi til að
selja bikiní en kaupmaðurinn
í B-wear og aðrir sölumenn
sundfata ættu að geta glaðst
yftr veðurspánni næstu daga.
Það gemm við alla vega á
Víkurfréttum.
VF-mvnd: Kristín Stefánsd.
4
Víkurfréttir