Víkurfréttir - 26.08.1999, Side 7
Oldungar í námsferð til Berlínar
Þann 11. maí sl. héldu tíu
konur af Suðurnesjum í 10
daga námsferð til Þýskalands.
Guðbjörg Jónsdóttir kennari
við Fjölbrautaskóla Suður-
nesja skipulagði námsferðina
fyrir nemendur í Þýsku 403 í
Oldungadeild skólans í sam-
vinnu við Volkshochschule
Steglitz í Berlín. í ferðinni
fengu nemendur tækifæri til
að nota þá kunnáttu sem þeir
höfðu öðlast í þýskumælandi
landi og bæta við sig.
Menningarsjokk á farfugla-
heimilinu
Fyrstu nóttina var gist á hóteli
í Hamborg og daginn eftir var
farið með lest til Berlínar.
Thelma Jónsdóttir (Keflvík-
'ingur með meiru) systir kenn-
arans og dóttir eins nemand-
ans tók á móti okkur á braut-
arstöðinni í Berlín. Hún var
okkur síðan innan handar all-
an tfmann á meðan dvölinni
stóð. Dvalið var í átta nætur
á farfuglaheimili í Austur-
Berlín. Sumir fengu reyndar
vægt menningarsjokk þegar
þangað var komið en jöfnuðu
sig fljótt. Fjóra morgna var
farið í Volkshochschule
Stegiitz á þýskunámskeið. A
námskeiðinu var lögð áhersla
á talþjálfun og gekk það frá-
bærlega. Einn daginn fóru
nemendur í starfskynningu á
ýmsa vinnustaði í Berlín. Þar
fengu þeir tækifæri til að
kynnast mismunandi störfum
sem tengjast þeirra eigin
störfum hér á Islandi.
Hertha Herlín og Svana-
vatnið
Ýmsir merkir staðir voru
skoðaðir í borginni. Farið var
á Ólympíuleikvanginn í
Berlín og fylgst með leik
Hertha Berlin og Hansa
Rostock í þýsku bundeslig-
unni. Þar voru um 80000
áhorfendur og stemmningin
var gífurleg. Eyjólfur Sverris-
son leikur með Hertha Berlín
og fannst okkur meiriháttar að
fá að sjá hann á leikvanginum
og vorum við mjög stoltar af
því að vera íslendingar þetta
kvöld. Þessi leikur mun seint
líðaokkurúrminni. Farið var
á Svanavatnið (ballett) og
gyðingatónleika sem voru frá-
bærir. Dómkirkjan í Berlín var
skoðuð og er það ein sú glæsi-
legasta kirkja sem við höfum
augum litið, að utan sem að
innan. 1 Berlín minnir margt á
seinni heimsstyrjöldina og þar
á meðal safn sem heitir
Checkpoint Charlie sem er
staðsett á landamærum Aust-
ur- og Vestur Berlínar. Þangað
fórum við og var það mjög
áhrifamikið. Þar var m.a. sýnt
frá byggingu Berlínarmúrsins
og hvernig fólk reyndi að
flýja yfir hann á mismunandi
vegu. Einnig fórum við að sjá
það sem eftir er af Berlfnar-
múrnum og gengum í gegn-
um Brandenburger Tor en þar
var einmitt Berlínarborg skipt
í tvo hluta með hinum fræga
Berlínarmúr á árunuml961-
1989.
I kastala í Vestur-Berlín
Síðasta daginn færðum við
okkur yfir í vesturhluta
Berlínar og gistum í kastala. I
ferðinni kynntumst við því
bæði borgarlífinu ásamt sveit-
inni og náttúrunni í Berlín og
vorum við alsælar með ferð-
ina.
Til Berlínar vorið 2001
Nemendur ferðarinnar höfðu
flestir verið 4 annir í þýsku f
Öldungadeild F.S og fannst
þeim þeir læra mjög mikið í
þessari ferð. Við hvetjum
Suðumesjamenn sem áhuga
haf á að læra þýsku til að
koma og læra þýsku í Öld-
ungadeild Fjölbrautaskóla
Suðurnesja en skráning fer
einmitt frarn þessa dagana.
Hver veit nema að farið verði
með hóp til Berlínar vorið
2001! Að lokum langar okkur
að þakka þeim aðilum sem
veittu okkur stuðning vegna
ferðarinnar.
Astkær eiginkona mín, módir,
tengdamódir og amma
Rut Vestmann Bjarnadóttir
Vatnsholti 18, Keflavík
Lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur föstudaginn
13. ágúst. Útförin hefur farid fram í kyrrþey
ad ósk hinnar látnu
Hámundur Jón Björnsson
Ragna Peta Hámundardóttir, Helgi Arnarson
Ásta Bjarnéy Hámundardóttir, Kristinn Arnarson
Rakel Hámundardóttir, Ólafur Höskuldsson
VörubíU með krana
Útvega
Gróðurmold
Skrautmöl
Bjarni Magnús Jóhannesson
Akstur - efnissala - hífingar
Símar 868 3274 - 421 6558
Júdó í Vogum
Hefst af fullum krafti
í íþróttamidstödinni í Vogum.
Innritun fer fram 31. ágúst
ísíma 424-6545.
Byrjendur, meistaraflokkur og
OLD BOYS. Látid sjá ykkur.
Maggi Hauks þjálfari
W * * * 1 * 4
- L UUT Lý
SÓL o g Þrek
opro
lcl. 10 -18
iiue qÝiiAUiuc
' m.............
X. 15
Forsala aðgöngumiða í
Perlunni 28. ágúst
Ljósís- qg) þrelcleortl
• EflS - fæðubótaefni kynnt
frá kl. 13 - ÍB
ORKfl # Mathákurinn kynntur
• 5 einkaþjálfarar í sdl
Víkurfréttir