Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 26.08.1999, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 26.08.1999, Blaðsíða 13
Islenska sjávarútvegssýningin 1999: Stsersta syning á Islandi opnar eftir viku Stærsta sýning sem nokkurn tíma hefur verið haldin á íslandi, íslenska sjávarútvegs- sýningin 1999, verður opnuð með viðhöfn miðvikudaginn 1. september. Undir- búningur er á lokastigi en m.a. hafa verið tluttir inn þrír stórir sýningarskálar svo unnt sé að mæta eftirspurn um sýningarrými. Undirbúningur Islensku sjávarútvegssýningarinnar 1999, sem haldin verður í Smáranum í Kópavogi dagana 1.-4. september nk., er á lokastigi. Um er að ræða stærstu sýningu sem nokkru sinni hefur verið haldin á Islandi en heildarstærð sýningarrýmis undir þaki er um 13 þúsund fermetrar og einnig er stórt sýningarsvæði utandyra. Sýningin er haldin í Tennishöllinni og í íþróttahúsinu Smáranum, en eins og á fyrri sýningum hafa verið fluttir inn sérstakir sýningarskálar, þrfr að þessu sinni en voru tveir á sýningunni 1996, enda er umfang sýningarinnar nú um 45% meira en fyrir þremur árum. Fjöldi sýnenda er um 900 íslensk og erlend fyrirtæki í sjávarútvegi, vinnslu- og þjónustugreinum o.tl. Þetta er í fyrsta sinn sem Islenska sjávarútvegssýningin er haldin í Smáranum í Kópavogi og hafa bæjaryfirvöld lagt ríka áherslu á undirbúning svæðisins fyrir sýninguna, m.a. gerð þægilegra aðkomuleiða, stórra bflastæða og fegrun svæðisins. Gert er ráð fyrir að um 17 þúsund gestir sæki sýn- inguna heim en skipuleggjendur telja þó raunhæft að vænta allt að 20 þúsund gesta. Nú þegar er nánast allt gistirými á vegum sýningarinnar uppbókað en öll If l lWDK I lMII KII S EXIIIIIITION 1999 1 - 4 SEPTEMBER 1999 Snuírinn, Kó/uivoi/in■, hclitiul ferða- og gistijijónusta er í höndum ferðaskrifstof- unnar Úrvals-Utsýnar. Islensku sjávarútvegsverðlaunin verða veitt í fyrsta sinn á hátíðarkvöldi á hótel íslandi þann 3. septem- ber nk. í tengslum við íslensku sjávarútvegssýning- una, en verðlaun verða veitt einstaklingum og fyrirtækjum sem þykja hafa náð framúrskarandi árangri á ýmsum sviðum sjávarútvegs, fiskvinnslu, framleiðslu tæknibúnaðar og markaðsátaks. Islenska sjávarútvegssýningin 1999 verður opnuð nteð viðhöfn að morgni I. september og verður forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heiðurs- gestur við opnunina en hann mun að athöfn lokinni skoða sýninguna í fylgd aðstandenda hennar. Frekari upplýsingar: Bjarni Þór Jónsson, Alþjóðlegum vörusýningum sf. S: 896-6363/564-0120 Ellen Ingvadóttir, blaðafulltrúi 562-6588 LAUCARDACSKVOLD STÆRSTA BALL SUMARSINS Á SUÐURNESJUM 20 ÁRA ALDURSTAKMARK 2* íi. i-m Víkurfréttir 13

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.