Víkurfréttir - 26.08.1999, Qupperneq 13
Islenska sjávarútvegssýningin 1999:
Stsersta syning á Islandi
opnar eftir viku
Stærsta sýning sem nokkurn tíma hefur verið
haldin á íslandi, íslenska sjávarútvegs-
sýningin 1999, verður opnuð með viðhöfn
miðvikudaginn 1. september. Undir-
búningur er á lokastigi en m.a. hafa verið tluttir
inn þrír stórir sýningarskálar svo unnt sé að
mæta eftirspurn um sýningarrými.
Undirbúningur Islensku sjávarútvegssýningarinnar
1999, sem haldin verður í Smáranum í Kópavogi
dagana 1.-4. september nk., er á lokastigi. Um er
að ræða stærstu sýningu sem nokkru sinni hefur
verið haldin á Islandi en heildarstærð sýningarrýmis
undir þaki er um 13 þúsund fermetrar og einnig er
stórt sýningarsvæði utandyra. Sýningin er haldin í
Tennishöllinni og í íþróttahúsinu Smáranum, en eins
og á fyrri sýningum hafa verið fluttir inn sérstakir
sýningarskálar, þrfr að þessu sinni en voru tveir á
sýningunni 1996, enda er umfang sýningarinnar nú
um 45% meira en fyrir þremur árum. Fjöldi sýnenda
er um 900 íslensk og erlend fyrirtæki í sjávarútvegi,
vinnslu- og þjónustugreinum o.tl. Þetta er í fyrsta
sinn sem Islenska sjávarútvegssýningin er haldin í
Smáranum í Kópavogi og hafa bæjaryfirvöld lagt
ríka áherslu á undirbúning svæðisins fyrir sýninguna,
m.a. gerð þægilegra aðkomuleiða, stórra bflastæða
og fegrun svæðisins.
Gert er ráð fyrir að um 17 þúsund gestir sæki sýn-
inguna heim en skipuleggjendur telja þó raunhæft að
vænta allt að 20 þúsund gesta. Nú þegar er nánast
allt gistirými á vegum sýningarinnar uppbókað en öll
If l lWDK I lMII KII S EXIIIIIITION
1999
1 - 4 SEPTEMBER 1999
Snuírinn, Kó/uivoi/in■, hclitiul
ferða- og gistijijónusta er í höndum ferðaskrifstof-
unnar Úrvals-Utsýnar.
Islensku sjávarútvegsverðlaunin verða veitt í fyrsta
sinn á hátíðarkvöldi á hótel íslandi þann 3. septem-
ber nk. í tengslum við íslensku sjávarútvegssýning-
una, en verðlaun verða veitt einstaklingum og
fyrirtækjum sem þykja hafa náð framúrskarandi
árangri á ýmsum sviðum sjávarútvegs, fiskvinnslu,
framleiðslu tæknibúnaðar og markaðsátaks.
Islenska sjávarútvegssýningin 1999 verður opnuð
nteð viðhöfn að morgni I. september og verður
forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heiðurs-
gestur við opnunina en hann mun að athöfn lokinni
skoða sýninguna í fylgd aðstandenda hennar.
Frekari upplýsingar:
Bjarni Þór Jónsson,
Alþjóðlegum vörusýningum sf.
S: 896-6363/564-0120
Ellen Ingvadóttir,
blaðafulltrúi
562-6588
LAUCARDACSKVOLD
STÆRSTA
BALL
SUMARSINS
Á
SUÐURNESJUM
20 ÁRA ALDURSTAKMARK
2* íi.
i-m
Víkurfréttir
13