Víkurfréttir - 14.10.1999, Blaðsíða 8
BT opna í
Reykjanesbæ á
laugardaginn
Akveðið hefur verið að
opna fjórðu BT verslun-
ina í Reykjanesbæ, að
Hafnargötu 31 Keflavík,
þar sem verslun Tölvuvæðingar
var áður til húsa.
Keflvíkingurinn galvaski Skarp-
héðinn Jónsson tekur þar við starfí
verslunarstjóra. BT Reykjanesbæ
ntun bjóða upp á gott vöruúrval á
hinu landskunna BT verði. Að-
spurður sagðist Skarphéðinn
fagna þessu tækifæri og komu BT
í bæinn. Hann segir fulla þörf á
verslun af |)essi tagi á staðnum því
aukin santkeppni muni eins og
alltaf á endanum skila sér í vasa
neytenda.
Opnunardagurinn verður 16.
október klukkan 10:00 stundvís-
lega og að vanda verða ótrúleg
opnunartilboð á boðstólum. Af
þessu tilefni vill BT músin bjóða
alla íbúa Reykjanessbæjar hjartan-
lega velkomna.
BT verður til húsa að Hafnargotu
31 þar sem Tölvuvæðing var áður.
Opnun BT er þekkt fyrir langar
biðraðir þar sem góð tilboð eru í
gangi. Nýja bakaríið, sem er við
hliðina á BT ætlar á opnunar-
daginn að opna snemma og bjóða
frítt kaffi og kleinuhring á 40 kr.
I__________________________________I
Tímarit Vikurfrétta kemur út um næstu mánaðarmót.
Stórt og litskrúðugt metsölutímarit sem fjallar um mannlífið
á Suðurnesjum og Suðurnesjafólk á líflegum nótum.
Hefur þú tryggt þér auglýsingapláss?
Hafðu samband við auglýsigadeild og kynntu þér spennandi tiiboð.
GASÍMINN ER 421 4717
Gallery förðun opnar stærri verslun:
VF- Hilmar Bragi Bárðarson
Keflavík eða Kringlan
Snyrtivöruverslunin
Gallerv förðun í
Keflavík liefur opn-
að nýja og glæsilega
verslun að Hafnargötu 25.
Gamla verslunin sem stóð
á saina stað var fyrir
löngu húin að sprengja
utan af sér allt pláss og
því var ráðist í stækkun.
Brevtingar á versluninni
hafa lengi staðið til en
fvrirtækið fagnar fimm
ára afmæli um þessar
mundir. Eigendur Gallery
förðunar hugleiddu alvar-
lega að flvtja verslunina
frá Keflavík og opna í
Kringlunni en ákváðu að
vera kvrr.
Það eru lijónin Rúna
Oladóttir og Oli Garðarsson
sem eiga Gallery förðun.
Rúna hefur annast verslun-
arreksturinn frá upphafi.
Hún segir þau fimm ár sem
hún hafi stundað verslunar-
rekstur í Keflavík haft verið
ánægjuleg. Suðurnesja-
menn og konur séu góðir
viðskiptavinir og verslunin
hafi vaxið jafnt og þétt og
vöruúrval aukist. Þegar
verslunarrými við hlið
Gallery förðunar losnaði
skapaðist tækifæri til að
stækka verslunina.
Baldvin Baldvinsson innan-
liússarkitekt var fenginn til
að teikna nýja verslun
Gallery förðunar. Einvalalið
iðnaðarmanna af Suður-
nesjum kom að innréttingu
verslunarinnar. Þannig
smíðaði Trésmiðja Héðins
og Asgeirs allar innréttingar
og Húsabygging ehf. í
Garði smíðaði stiga, milli-
veggi og fleira. Rafþjónsuta
Þorsteins annaðist raflögn
og lýsingu og Radíó-
kjallarinn lagði til allan
tækjabúnað er kemur að
hljóði og mynd. Margir
aðrir komu að breytingu
verslunarinnar og vildu þau
Rúna og Óli sérstaklega
nefna Þorstein Arnason
þúsundþjalasmið sem hefur
unnið að breytingunum dag
og nótt. Öllum þessum
aðilum eru þau afar þakklát.
í versluninni er sérhannað
verslanahljóðkerfi og einnig
er stafrænt sjónvarpskerfi
sem sjónvarpar tískusjón-
varpi allan sólarhringinn.
Einnig verður sett upp
myndavélakerti í verslunni
þannig að myndir úr versl-
unni verða á sjónvarps-
skjám frammi í búðinni.
Það verður að teljast til
tíðinda að einungis þurfti að
loka Gallery förðun í þrjá
daga vegna breyinganna.
Iðnaðarmenn byrjuðu fyrst
að innrétta þann hluta sem
telst til stækkunar. Þegar því
var lokið voru milliveggir
rifnir niður og innréttingum
komið fyrir í eldri hluta og
gólfefni lögð.
Vöruúrval f Gallery förðun
hefur verið aukið frá því
sem áður var, auk þess sem
sú vara sem áður var á
boðstólum fær meira og
betra rými. Úrvalið af
undirfötum hefur aldrei
verið meira. Þá hefur nýtt
heimsþekkt merki í snyrti-
vörum verið tekið til sölu í
Keflavík. Það er snyrti-
vörulína frá Japan sem
heitir Shiseido. Þetta vöru-
merki er t.a.m. eingöngu
selt í höfuðborgum þjóð-
landa og því telst það til
tíðinda að varan sé til sölu í
Reykjanesbæ. Það verður
því að teljast gæðastimpill
fyrir Galleiy förðun að fá að
vera einn af þremur sölu-
aðilum Shiseido á íslandi.
Eigendur Gallery förðunar
stóðu frammi fyrir þeirri
ákvörðun þegar ákveðið var
að breyta versluninni. hvort
lialdið yrði áfram verslunar-
rekstri í Kefiavík og versl-
unin þar stækkuð eða fiytja
búferlum til höfuðborgar-
innar og opna Gallery
förðun í Kringlunni, en þá
var ljóst að Kringlan væri
að stækka. Keflavík varð
fyrir valinu enda „Reykja-
nesbær á réttu róli“ sem
þeim Rúnu og Óla finnst
uppbyggilegt að laka þátt í.
„I Keflavík er gott umhverfi
til að ala upp böm", sögðu
þau Rúna og Óli sem eiga
fjögur böm.
Texti og mynd:
Hilntar Bragi Bárðarson
8
Víkurfréttir