Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 18.11.1999, Page 12

Víkurfréttir - 18.11.1999, Page 12
KONRÁÐ LÚÐVÍKSSON SKRIFAR Ný aðgerð við þvagleka Þvagleki er algengur kvilli meðal kvenna. Samkvæmt könnun sem gerð var hér í Keflavík á árunum 1984 - 1987 er talið að um 14 % kvenna á öllum aldri leki þvagi. Onnur liver kona verður fyrir því á lífs- leiðinni að leka þvagi að því marki að það valdi henni verulegum óþægindum. Að leka þvagi hefur í för með sér mikla tak- mörkun á lífsgæðum. Að þurfa stöðugt að ganga með bleyjur og hafa á tilfinningunni að rnaður lykti, veldur því gjaman að þessu konum finnst þær vera annars flokks. Tvær tegundir þvagíeka eru algengastar. Annars vegar áreynsluþvagleki sem er tengdur skyndilegri áreynslu eins og hósta, hnerra, burði o.s.frv.. Líkamsálag á konuna gegnum tíðina eins og barnsburður, erfiðisvinna og stöðugur hósti geta verið undirról kvillans. Einnig er talið að arfgengur veikleiki í bandvef einstaklingsins veiki grindarbotninn sem heldur uppi neðri þvag- vegunum. Þess vegna er þvagleki algengari í sumum ættum. Hin tegundin nefnist bráðaleki og einkennist af því að þvagblaðran dregst saman án þess að konan fái við nokkuð ráðið. Fylgir oft mikii þvaglátaþörf eins og flestir þekkja sem fengið hai'a blöðrubólgu. Sýkingar, æxli og rýrar slímhúðir í neðri þvagvegum eru oft orsök lekans enda er hann sérstaklega algengur hjá eldri konum þegar áhrifa kven- hormóna gætir ekki lengur. Bráðaleka má meðhöndla með viðeigandi lyfjum og æfingum. Ný lyf hafa nú komið á mark- aðinn sem ntenn binda vonir við, þótt engin séu alveg laus við aukaverkanir. Areynsluleka má meðhöndla með grindar- botnsæfinum ef lekinn er lítill. Æfingar þarf að stunda reglulega allt lífið því annars kemur lekinn til baka. Lýst hefur verið a.m.k. 120 mismunandi skurðaðgerðum til að lækna kvillann. Flestar þessara aðgerða krefjast lengri eða skemmri sjukrahúsvistar og a.nt.k. 6 vikna fjarveru frá vinnu á el'tir. A H.S.S. hefur nú verið tekin upp aðgerð sem gerð er í staðdeyfingu og konan getur yfirgefið sjúkrahúsið strax á eftir eða í síð- asta lagi daginn eftir. Komið er fyrir fínu neti undir þvagrásina og það leitt upp bak við lífbeinið með sérstökum nálum þar sem það er Iátið liggja laust strax undir húðinni. Netið er þannig riðið að vefirnir veita því nægjanlega festu án þess að það sé sérstak- lega saumað. Þannig minnkar verulega hættan á því að viðkomandi geti ekki tæmt blöðruna et'tir aðgerð sem stundum var vandantál við aðrar tegundir aðgerða. Rétt á meðan deyf- ingin er lögð er konan svæfð stutta stund en er síðan vakandi á meðan sjálf aðgerðin er gerð. Þannig getur maður stillt nákvæmlega með bjálp frá konunni hversu mikið tog á að vera á netinu. Konurnar þurfa ekki þvaglegg á eftir sem er mikill kostur og geta farið að vinna þegar eftir tvær vikur. Einu merkin eftir aðgerðina eru tveir smá skurðir ofan við lífbeinið. Arangur við aðgerðina er mjög góður og fylgikvillar fáir. Þó eru þeir til, eins og við allar aðgerðir. Við höfunt þegar framkvæmt 14 slíkar aðgerðir sem allar lofa ntjög góðu. Þannig er stöðugt verið að þróa nýjar aðferðir til að bregðast við þessum leiða kvilla. Góðar stundir Konráð Lúðvíksson BergnrVigfiis GK 53 seldur Barðsnes ehf., sem er í eigu Síldarvinnslunnar í Nes- kaupsstað og KEA, hefur að undanförnu staðið í viðræð- um við eigendur Bergs Vig- fúss GK 53 um kaup á skip- inu með tveimur síldarkvót- um og veiðileyfi skipsins í norsk-íslenska síldarstofnin- um. Frétt um þetta birtist í síðasta tölublaði Fiskifrétta. Bergur Vigfús GK hét áður Keflvíkingur KE. Skipið er 35 ára gamalt og alls 280 brúttórúmlestir að stærð. Skipið hefur verið í eigu Njáls ehf. í Garði undanfarin ár og hefur m.a. verið gert út til netaveiða auk þess sem það hefur tekið þátt í veiðunt á norsk-íslensku síldinni. Kaupverð með síldarkvótum og veiðileyfi í norsk-íslensku síldinni liggur ekki fyrir en samkvæmt heimildum blaðs- ins verður hluti kaupverðsins greiddur með hlutabréfum í Barðsnesi ehf. Það fyrirtæki gerir nú út nótaveiðiskipið Birting NK og starfrækir fiskimjölsverksmiðju í Sand- gerði sem áður var í eigu Njarðar hf. NÝBURAR á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Arnar Óskarsson og Fanncy Doróthe Halldórsdóttir eignuðust dreng þann 14. okt. s.l. Hann var 4780 gr. og 57 sm. Anna Guðbjörg Kristinsdóttir og Sigurpáll Eðvarsdóttir eignuðust stúlku þann 21. okt. sl. Hún var 5200 gr. og 59 sm. Guðlaug Einarsdóttir og Hafsteinn Ingibergsson eignuðust dreng þann 18. okt. s.l. Hann var 4080 gr. og 57 sm. Gunnhildur Ása Sigurðardóttir og Júhann Þórlindsson eignuðust dreng þann 23. okt. s.l. Hann var 3360 gr. og 51 sm. Guðmunda Sigurðardóttir og Ólafur Þór Gylfason eignuðust dreng þann 18. okt. sl. Hann var 4040 gr. og 54 snt. Hafrún Anna Sigurjörnsdóttir og Marteinn Guðjónsson eignuðust drcng þann 23. okt. sl. Hann var 3410 gr. og 50 sm. Elísa Baldursdóttir og Ingþór Karlsson eignuðust stúlku þann 17. okt. sl. Hún var 3880 gr. og 54 sm. Rakel Erlingsdóttir og Jóhannes G. Sveinsson eignuðust stúlku þann 23. okt. sl. Hún var 3630 gr. og 51 sm. SMAAUGLYSINGAR greiðslukortaþjónusta TIL LEIGU Herbcrgi Uppl. í síma 421-3295 eftir kl. 18. 2ja herb. íbúð í Heiðarhvammi. Amerískt king size rúm til sölu ásamt rúmteppi og koddum á kr. 70 þús. Nýleg þvottavél til kr. 18 þús. Uppl. í síma 421-2778 eftirkl. 19. Frítt herbergi Rúmgott herbergi í Njarðvík í skiptum fyrir barnapössun. Baðaðstaða og sérútgangur. Áhugasamir hafið samband í síma 421-5218. 2ja herb. íbúð í Keflavík. Uppl. í síma 863- 7057 eftirkl. 17.30. ÓSKAST TIL LEIGU 3ja herb. íbúð má vera í Keflavík eða Njarðvík, get borgað 3 mán. fyrirfram. Uppl. í síma 864-1599 eða 423- 7995. Bráðvantar cinstaklings eða 2ja herb. íbúð til leigu í Keflavík eða Njarðvtk. Skii- vísum greiðslum heitið. Uppl. í síma 863-3432. s.o.s. 3-4ra herb. íbúð sem fyrst. Leiga greidd í gegnum greiðsluþjónus- tu. Uppl. í síma 421-1584 og 423-7619 á kvöldin. Emma. Bandaríkjamaður reglusamur og reyklaus óskar eftir sér hæð eða einbýlishúsi með bílskúr eftir 10. jánúar 2000 n.k. Nafn og símanúmer leggist inn á skrifstofu Víkurfrétta merkt „öruggar greiðslur“ Barnlaust ungt par óskar eftir 2-3ja herb. íbúð til leigu í Keflavík-Njarðvík. Erum reyklaus, heitum skilvísum greiðslum. Uppl. í síma 421- 5399 eftir kl. 19. 2-3ja herb. íbúð óskast til leigu í Keflavík eða Njarðvík. Greiðsla í gegnum greiðsluþjónustu. Á sama stað óskast sófasett, ísskápur og nátt- borð, ódýrt eða gefins. Uppl. í síma 421-7522. TILSÖLU Sicmcns ísskápur og þvottavél, einnig svartur leðursófi. Uppl. í síma 421-7088 og 697-7677. Barnasvefnbekkur með 2 skúffum verð 5 þús. Uppþvottavél Siemens 6 ára verð 5 þús. Isskápur 2ja ára með sér frystihólfi verð 20 þús. Stór eld- húsvaskur með 3 hólfum verð 3 þús. Uppl. í síma 421-3671. Eldhúsinnrétting nteð öllu til sölu 2ja metra hvít eldhúsin- nrétting efri og neðri skápar + skúffur, vaskur og blöndunartæki ásamt ofni með keramik eldavél og viftu, allt sem nýtt. Selst allt saman eða í sitt hvoru lagi. Uppl. í síma 422-7928 eða 893-3887. Subaru 1800QPRX Turbo ‘89. Skoda 120L ‘88 á góðum nagladekkjum. Selst ódýrt. Uppl. í síma 421-4542. Sófasett 3+2+1 plussáklæði, lítur mjög vel út, einnig sófaborð og homborð lítur mjög vel út. Uppl. í sírna 421- 2516. Hjónarúnt 153x203 selst á kr 10 þús. Uppl. í^íma 421-4898 eftirkl. 18. OSKAST Óska eftir græjuskáp. Uppl. í síma 421-1491 eftir kl. 17. ÝMISLEGT Athugiðl! Vantar 7 manns sem vilja missa 10 kg eða meira á næstu mánuðum. Frí sýnishorn! Hringdu núna í síma 552-4513. Hausttilboð á nýjum tölvum verð frá 68.500.- Sé einnig um upp- færslur. Kem í heimahús ef óskað er. Tölvuþjónusta Vals, verslun og verkstæði, Hafnar- götu 68a, sími 421-7342 og 863-0142. Opið frá 13-18 mánud-laugard. ATVINNA Subway óskar eftir starfsfólki 18 ára og eldra. Kvöld og helgarvaktir í boði. Umsóknareyðublöð á staðnum. Nánanari uppl. gefur Krisztina í síma 421-7701 TAPAÐ/FUNDIÐ Halló halló!! Tók einhver svartan herrajakka í misgripum á árshátíð Sand- gerðisbæjar í samkomuhúsinu Sandgerði laugard. 06.11. síðastliðinn, ef svo er vinsam- legast hafið samband í síma 423- 7781. Gullhringur týndist við Ránna á föstudaginn 5. nóv Hringurinn er með tveimur áletununum. ein að innanverðu og önnur að utnverðu. Finnandi vinsamlegast hafa samband í síma 421-2126. Mjög góð fundarlaun.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.