Víkurfréttir - 18.11.1999, Page 14
Nýr sýslumaður á Keflavfloirflugvelli íVflcurfréttaviðtali:
Ba ia íkj ai er þjálfi
íslenska lögreglumenn
Þann 1. apríl s.l. tók Jóhann
R. Benediktsson við embætti
sýslumanns á Keflavíkurflug-
velli. Hann fæddist árið 1961
og ólst upp í vesturbænum í
Kópavogi. Leið hans lá svo
yfir lækinn og í Háskóla ís-
lands en þaðan lauk hann
embættisprófi í lögfræði árið
1987. Hann er kvæntur Sig-
ríði Guðrúnu Guðmunds-
dóttur, viðskiptafræðingi, og
þau eiga þrjú börn á aldrin-
um 3ja, 6 og 7 ára.
Eldskírn í
utanríkisráðuneytinu
Jóhann starfaði um tíma hjá
Húsasmiðjunni við innheimtu
og samningagerð en hóf síðan
störf hjá Utanríkisráðuneytinu.
„Starfið í ráðuneytinu var mjög
fjölbreytt og skemmtilegt”, seg-
ir Jóhann. „A þessum tíma var
m.a. unnið að gerð EES samn-
ingsins, sem ég tók þátt í ásamt
fjölmörgum öðrum og var það
mín eldskím í erlendum samn-
ingaviðræðum. Starf mitt fólst
aðallega í því að vera samræm-
ingaraðili milli ráðuneyta og
undirstofnana vegna þess hluta
samningsins sem fjallaði um
frjálsa för fólks og sjálfstætt
starfandi aðila innan EES svæð-
isins. ísland barðist fyrir að fá
ákveðin öryggisákvæði inní
samninginn og af þeim sökum
gekk ýmislegt á í samningavið-
ræðum.”
Starfaði í alþjólegu umhverfi
Að þremur árum liðnum hélt
Jóhann til Frakklands ásamt
eiginkonu sinni. A tímabilinu
1991-1993 starfaði hann í
sendiráði Islands í París og sem
einnig sér um samskipti við
OECD og UNESCO. Árið
1994 starfaði Jóhann aðallega
hjá Evrópuráðinu í Strassborg.
„Við fluttumst síðan til starfa
við sendiráðið í Brussel árið
1994 en það sendiráð sinnir
samskiptunum við Evrópusam-
bandið. Þar bjuggum við í 4 ár.
Við hjónin tókum síðan þá
ákvörðun að flytja aftur heim.
Eg fór að vinna á viðskipta-
skrifstofu Utanríkisráðuneytis-
ins og helstu verkefni þar voru
samningaviðræður EFTA-rikj-
anna við Kanada um gerð frí-
verslunarsamnings. Eg vann
þar í tæpt ár áður en ég tók við
embætti sýslumanns”, segir Jó-
hann.
Mörg verkefni bíða úrlausna
Jóhann segir margt vera á döf-
inni hjá embættinu þessa stund-
ina og hann hefði jafnvel kosið
að á fá lengri tíma til að setja
sig inní starfið. „Eg var m.a.
skipaður í byggingarnefnd
Flugstöðvarinnar og verkefni
embættisins em að vaxa vegna
stækkunar Flugstöðvarinnar og
hertra alþjóðlegra flugöryggis-
reglna. Schengen-samkomulag-
ið mun einnig krefjast skipu-
lagsbreytinga og fjölgunar
starfsfólks”, segir Jóhann þegar
hann er beðinn um að lýsa
starfsumhverfi sínu.
Vill auka samstarf tolls
og lögreglu
Jóhann hefur hug á að breyta
ákveðnum áherslum varðandi
stjórnun, samstarf deilda og
stofnana og allt skipulag á störf-
um lögreglu- og tollembættisins
í heild sinni. „Tveir starfshópar
eru nú að skoða mál embættis-
ins ofaní
k j ö 1 i n n ,
annar inn-
an lög-
reglunnar og
hinn innan tollsins.
Þeirra hlutverk er að end-
urskilgreina störf, skoða
vaktafyrirkomulag, símenntun,
vinnureglur, aðbúnað, tækja-
búnað o.fl.”, segir Jóhann.
Hann segir að niðurstaða af
vinnu þessara starfshópa muni
liggja fyrir um næstu áramót.
„Þá þurfum við að endurskipu-
leggja starfshætti okkar, en við
erum reyndar byrjuð á því að
mörgu leyti”, segir Jóhann og
bætir því við að hann vilji legg-
ja sérstaka áherslu á að auka
samstarfs tolls og lögreglu, gera
störfin fjölbreyttari og vinnu-
umhverfið jákvæðara.
Þjálfun íslenskra
lögreglumanna á vegum
Bandaríkjahers
Jóhann segir gagnkvæman vilja
vera fyrir auknu samstarfi Vam-
arliðsins og lögreglunnar og
verið sé að leggja drög að því.
„Hugmyndin er að okkar menn
fái markvissari þjálfun í að um-
gangast her og hermenn. Þetta
er þjálfun sem Bandaríkjamenn
bjóða þýskri og ítalskri lög-
reglu. Á sama hátt vil ég líka
taka þá í læri og þjálfa í sam-
skiptum við okkur. Eg vonast til
að Utanríkisráðuneytið setji
fljótlega á laggimar vinnuhóp
til að undirbúa þessi verkefni”,
segir Jóhann.
Sérhæfð störf á
Keflavíkurflugvelli
Jóhann hefur ekki eingöngu
áhuga á að efla samstarf við
Varnarliðið, hann hefur líka
fullan hug á að auka samvinnu
við Lögregluskóla ríkisins.
„Okkar störf em að mörgu leyti
frábmgðin störfum annarra lög-
reglu- og tollgæslumanna. Við
viljum skerpa þessar áherslur
og bæta alla þjálfun varðandi
öryggismál, vopnaleit,
sprengjuleit, landamæragæslu
o.þ.h. og að þessi sérhæfing
verði viðurkennd, þar sem
þessi störf em ffábmgðin
störfum annarra
tollgæslu- og lög-
reglumanna.” Jó-
hann bætti við að
nú standi til að
skoða almanna-
vamaáætlun fyrir
Keflavíkurflug-
völl sem sé orðin
úrelt, og mun sú vinna
fara af stað eftir áramót.
Fjármagnsskortur og
mögulegar úrlausnir
Jóhann viðurkennir að enn sé
vöntun á mannskap hjá embætt-
inu. Hann segir mannfæðina þó
vera anga af mun stærra vanda-
máli, m.a. vegna mikillar fjölg-
unar verkefna og fjárskorts.
„Nú eru væntanlega að fara af
stað nefndir sem munu skoða
tekjumyndun á flugvellinum,
þ.e. hvaða kostnað flugvöllur-
inn á í rauninni að bera. Eg bind
miklar vonir við að Flugstöðin,
í einni eða annarri mynd, komi
meira inní rekstur embættisins í
framtíðinni. En það er of fljótt
að tjá sig um það hvemig þessi
mál fara, eða hvaða fjármuni
við munum fá til að spila úr.”
Jóhann segir Schengen-sam-
komulagið, sem kemst senni-
lega í gagnið árið 2001, eiga
eftir að spila stóra mllu í starfs-
mannamálum en aðalatriðið sé
að bætt verði úr núverandi
vanda varðandi undirmönnun
áður en tekist verður á við ný
verkefni. „Við verðum að vera
kornin með þann mannskap
sem á að sinna þessum nýju
verkefnum ekki seinna en um
áramótin 2000-2001. Ég tel því
að fjölgunarþörfm muni skýrast
mjög fljótlega”, segir Jóhann en
segist ekki geta nefnt neinar töl-
ur enn sem komið er.
Alþjóðlegt samstarf
„Ég er búinn að vinna lengi í al-
þjóðlegu umhverfi og er því á
heimvelli varðandi alþjóðleg
samskipti. Sú reynsla er mér
mjög dýrmæt. Vitaskuld mun
ég reyna að tengja mitt embætti
betur við aðra alþjóðlega flug-
velli. Við emm t.d. að mynda
vinnusamband við Kastrup-
flugvöll og erum að senda
menn í þjálfun þangað. Við
munum fljótlega senda fíkni-
efnadeildina til Kanada og
vegabréfa- og landamæragæsl-
an fór nýverið til New York á
námskeið. Svo eru menn að
fara frá okkur núna til Kaup-
nrannahafnar. Hér á sér stað
mjög mikið uppbyggingarstarf
vegna breyttra tíma og aukinna
verkefna.”
Mörg áhugamál
En liver er maðurinn á bakvið
embœttið?
Þegar að er gáð kemur í ljós að
Jóhann hefur áhuga á fjölmörg-
um hlutum. Hann segist sprikla
reglulega í fótbolta með sínum
gömlu félögum úr lögfræðinni
og hann sé líka tiltölulega virk-
ur í skákklúbbi.„Ég hef verið að
stíga mín fyrstu skref í veiði frá
því við fluttum heim til Islands
og veiddi Maríulaxinn minn í
fyrrasumar. Ég hef líka mjög
gaman af því að ferðast og hef
gert mikið af því í gegnum
árin”, segir Jóhann. Hann játar
þó að hann hafi ekki fylgst
nógu vel með körfunni en
fylgdist betur með framgangi
Keflvíkinga og Grindvíkinga í
boltanum í sumar. Að lokum
segir Jóhann að markmið sitt í
starfi sé fyrst og fremst að
skapa jákvæðan og metnaðar-
fullan vinnustað, þar sem fólk
vill vinna og finnst gott að vera.