Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 24.08.2000, Page 4

Víkurfréttir - 24.08.2000, Page 4
Söngperlur í Keflavíkurkirkju Söngtónleikar verða haldnir í Keflavíkur- kirkju nk. sunnudag kl.16. Þar koma fram Auð- ur Gunnarsdóttir sópran, Sigríður Aðalsteinsdóttir mezzusópran sem búsett er í Keflavík, Björn Jónsson tenór og Olafur Kjartan Sigurðarson baritón. Jónas Ingimundarson leikur und- ir á píanó. Tónleikagestir eiga von á góðu því efnisskráin er ekki af verri endanum, en þar má finna söngperlur eftir meist- arana Beethoven, Gluck, Mozart, Rossini, Bizet, Puccini, Verdi og Gershwin. Suðumesjafólk ætti ekki að láta þessa tónleika fram hjá sér fara, en þeir sem eiga ekki tök á að mæta á sunnu- daginn geta hlustað á dag- skrána flutta í Salnum í Tón- listarhúsi Kópavogs nk. þriðjudagskvöld kl. 20. Fréttavakt Víkurfrétta allan sólarhringinn í síma 898 2222 Laugardaginn 26. ágúst nk. hvetur Stýrihópur Staðardagskrár 21 í Reykjanesbæ, íbúa í skólahverfi Heiðarskóla til þess að efna til bílskúrssölu í bílskúrum og geymslum sínum. Um leið hvetur Stýrihópurinn aðra íbúa Reykjanesbæjar og Suðurnesjamenn til þess að leggja leið sína um hverfið frá kl. 10.00-18.00 og kanna hvað er í boði. Stýrihópurinn Ástkær módir okkar, tengda- móðir, amma og langamma Nanna Baldvinsdóttir frá Þórshöfn, til heimilis ad Heidarvegi 23a, Keflavík, andadist á hjúkrunarheimilinu Vídihlíð í Grindavík, sunnudaginn 20. ágúst. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 31. ágúst kl. 14. Baldvin Elís Arason, Hilmar Arason, Annie Sigurðardóttir, Guðlaugur Arason, Snjólaug A. Baldvinsdóttir, Sólrún Aradóttir, Anton H. Antonsson, Kolbrún Aradóttir, Gísli K. Wium, Birgir Arason, Sigurbjörg Jónsdóttir, Þóra Aradóttir, VaJurÁ Gunnarsson, Þórdís Aradóttir, Óskar S. Ingvarsson, Björk Aradóttir, Bjarkar S. Adolfsson, Reynir Arason, Stefanía Guðmundsdóttir, Svanfríður Aradóttir, Ragnar Einarsson, barna- og barnabarnabörn. Rafrænn bankaheimur opnaður jmm fólki Islandsbanki-FBA liefur opnað nethanka sem er sérsniðinn að þörfum unglinga, 12 ára og eldri. Um leið var stofn- aður nýr unglingaklúbbur íslandsbanka en í honum balá unglingar aðgang að nútímalegum banka- viðskiptum í rafrænu formi. XY.is drcgur nafn sitt af litn- ingakerli mannslíkamans og vísar í það að unglinga- klúbburinn sc jafnt fyrir bæði kynin. Unglingar sem eru komnir á 12. aldursár lá hraðbankakort sem er jafn- franil félagskort klúbbsins og þeir sem eru komnir á 14. ár la debetkort sem gildir jafnt í verslunum og hraðbönkum. Bæði kortin gilda á santa hátt í útlönd- um. Netbanki fyrir unglinga Þeir sem ganga í klúbbinn fá aðgang að netbanka þar sem hægt er að lá yfirlit, skoða stöðu reikninga, millifæra, lylla á TAL l'relsi, stofna sparireikninga og fleira. Þessi möguleiki hefur ekki staðið unglingum lil boða til þessa, I lægt er að senda ókeypis SMS skilaboð af síðunni og auk þess verður TAL með sérkjör fyrir þá sem kaupa áfyllingu í Netbankanum. I Netbankanum eru ýmsar fróðlegar upplýsingar um Ijármál og reiknivél sem reiknar út sparnað og eyðslu. Eins geta XY.is lelagar fylgst þarna með gengi hlutabréla og gjald- miðla. Þá er á XY.is síðunni skemmtilegur fróðleikur um margvíslega málefni. iPulse-hugbúnaður fylgir með iPulse er nýr samskiptahug- búnaður frá OZ sem brúar bilið milli Netsins og þráðlausra samskipta. iPulse leitar fólk uppi og sendir skilaboð í GSM síma ef móttukandi er ekki við tölvuna sína, segir í frétt frá íslandsbanka FBA í Kefla- vík.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.