Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 24.08.2000, Qupperneq 5

Víkurfréttir - 24.08.2000, Qupperneq 5
Asta sýnip í Hafnarborg Nú stendur yfir sýning á vatnslitamyndum í Hafnarborg, hún ber heitið Akvarell ísland 2000. Sýningin er opin 11. til 27. ágúst. Ásta Árnadóttir frá Keflavík er meðal þeirra sem eiga verk á sýningunni. Aðrir listamenn eru Eiríkur Smith, Gunnlaugur Stefán Gíslason, Torfi Jónsson, Daði Þor- grímsson, Pétur Friðrik, Kristín Þorkelsdóttir og fleiri. „Mér var boðin þátttaka í sýn- ingunni ásamt þessum ffábæra hópi listamanna, og er það mikill heiður fyrir mig“, segir Ásta. Hún hefur fengist við myndlist í áratugi en hún var við nám í Handíða og myndlistaskóla fs- lands á árunum 1942-43. Kenn- arar hennar þar vom Þjóðverj- inn Kurt Zier og Þorvaldur Skúlason. Árið 1980 hóf Ásta nám hjá Eiríki Smith í Baðstof- unni í Keflavík og hefur síðan þá einbeitt sér að vatnslitum. ,Já, það er rétt, ég lærði með- ferð vatnslita hjá Eiríki, en hann er afskaplega góður kenn- ari og fremstur á sínu sviði“, segir Ásta. Ásta hefur haldið fjölda einka- sýninga víða um land og árið 1987 hélt hún sýningu í Kaup- mannahöfn ásamt Sólveigu Eggerz Pétursdóttir og Sigríði Gyðu. „Sú sýning tókst ágæt- lega og það var mjög gaman að fá að sýna á erlendri grundu." Sýningunni í Hafnarborg lýkur 27. september en Ásta mun að henni lokinni sýna verk sín á Hrafnistu. Þeir sem vilja skoða verk hennar geta hringt í sírna 421-1605 og fengið að koma í heimsókn á vinnustofuna. STOR-UTSALA 30-50% afs I áttu r Rýmum fyrir nýjum vörum, allt á aðseljast. Allt að50% afsláttur af undirfötum, náttfötum, veskjum, skarti og slæðum. Opið mánud.-fimmtud. 10-18 föstudaga 10-19 laugardaga 10-14 ^snonpf ► Hólmgarði 2, sími 421 5415 Auglýsingasíminn er 4214717 Daglega á Netinu • www.vf.is 5

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.