Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 24.08.2000, Page 19

Víkurfréttir - 24.08.2000, Page 19
Léku með sorgarbönd Keflvíkingar léku með sorgarbönd í leiknum gegn Fram. Það gerðu þeir í minningu Vilhjálms Vilhjálmssonar, tvítugs Keflvíkings sem lést 15. ágúst sl. Guðmundur með þrennu Þrenna Guðmundar Stein- arssonar, markahæsta leikmanns Landssímadeildarinnar í knattspyrnu dugði ekki Keflvikingum til sigurs á Fram í leik liðanna í Keflavík sl. sun- nudag. Lokatölur urðu 3:3. Guðmundur kom heimamönnum yfir með marki úr víti en Framarar svöruðu með tveimur mörkum og leiddu í leikhléi. Innkoma Kristjáns Brooks hafði góð áhrif á heimamenn í byrjun síðari hálfleiks og hann átti þátt í tveimur mörkum Guðmundar Steinarssonar. Allt leit út fyrir langþráðan sigur Keflvíkinga sem hafa aðeins unnið fjóra sigra í deildinni en Sigurvin Ólafsson gerði þann draum að engu ftegar hann jafnði fyrir Fram rétt fyrir leikslok. Guðmundur er markahæstur ídeildinni með tólf mörk og sagði eftir leikinn stefna að því að verða markakóngur en bæði faðir hans, Steinar og „Marka“- Jón föðurbróðir hans voru markakóngar þegar þeir voru upp á sitt besta. Guðmundur hefur vakið athygli erlendra liða og hafa umboðsmenn frá Englandi, Hollandi og Noregi haft samband við forráðamenn Keflavíkur. Gert er ráð fyrir að tilboð berist í Guðmund fljótlega. Einnig hefur hollenska liðið Heerenveen gert tilboð í hinn 18 ára Keflvíking, Magnús Þorsteinsson en hann dvaldi hjá liðinu í tvo mánuði í fyrra. Félögin hafa einnig haft í vinnslu samstarfssamning og eru líkur á því að gengið verði frá honum í haust. Samningurinn felst m.a. í skiptum á leikmönnum. Leikurinn gegn Fram sl. sun- nudag verður í minnum hafður hjá Gunnari Oddssyni því þetta var í fyrsta sinn í heilan áratug sem hann missir úr leik, allt frá 15. júlí 1990 en þá lék hann með KR. Gunnar hafði spilað 276 leiki í efstu deild, 159 með Keflavík, 81 hjá KR og 36 með Leiftri. Gunnari vantaði aðeins 12 leiki til að jafna leikjametið sem er 198 leikir en það á markvörðurinn Birkir Kristinsson í ÍBV. Grindvíkingar góðir Grindvíkingar unnu góðan sigur á Blikum í Kópavogi í fyrrakvöld. Lokatölur urðu 3:4 en heimamenn skoruðu tvö síðustu mörkin. Mörk UMFG skoruðu Sinisa Kekic, (2), Sverrir Þór Sverrisson og Paul Mcshane. VíðirogUMFN í góðum múlum Víðismenn unnu góðan sigur á Leikni sl. fimmtudag í Garði og eru í 4.-5. sæti í 2. deildinni í knattspymu, aðeins 3 stigum frá KS sem er í 2. sæti. Þórsarar eru lang efstir með 42 stig. I 3. deild vann Njarðvík ömggan sigur á Bruna 0:4 á útivelli og em langefstir í a-riðli 3. deildar. Sandgerðingar eru í 3. sæti b- riðils en þeir unnu GG 2:6. Siuidæfingar hefjast 4. september í Simdhölliimi Sundæfingar hefjast í Simdhölliiini 4. septemher nk. Skráð verður inn á æfingarnar laugardaginn 26. ágúst kl. 13-151K- húsinu að Skólavegi 32, eírihæð. Þeir sem syntu hjá sunddeildiniii í Supdhölli] síðasta tímabili, geta f^kráöfsjg á $ama st .. ^föstudaginií^. ágúst RL 17J Neill Mí-cnll { * \r 1 u Ub A II! Ul LbGilil . .O.L í vclOUl a Gear it 50 r* i G J £ .livSí'liölvOídKi óKKvU'Uí1 ,10 JJOt’U jjóo Ivv sorba Cros - Skór í miklu úrvali frá 0 Neill og LA Gear - Falleg barnaföt frá Absorba, OshKosh og Confety - Sundfatnaður í mörgum stærðum og gerðum - Dömu jogginggallarfrá Matinbleu - aðeins kr. 5.980, - Tvískiptir útigallar og heilgallar frá Ketch - úlpur og skíðabuxurá 50% afslætti U|*| Hafnargötu 23 Keflavlk Sími 421 4922 Daglega á Netinu • www.vf.is 19

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.