Víkurfréttir - 21.09.2000, Side 9
Vistvernd í verki í Reykjanesbæ
Ert þú ein(n) þeirra sem hefur
áhuga á umhverfisvænu heim-
ilishaldi en vantar leiðsögn til
að koma þér af stað? Vistvemd
í verki er íslenskt vinnuheiti
yfir alþjóðlega verkefnið
„Global Action Plan” en
Landvemd sér um framkvæmd
verkefnisins á íslandi.
Hugmyndin á bak við þetta
verkefni er sú að með ýmsum
einföldum breytingum í
daglegu lífi megi gera lífsstíl
vistvænni án þess að draga úr
lífsgæðum. Margt smátt gerir
eitt stórt og víðtæk þátttaka í
slíkum aðgerðum getur bæði
leitt til umtalsverðs ávinnings
fyrir umhverfið, og fjár-
hagslegs spamaðar fyrir sam-
félagið og þær fjölskyldur sem
í hlut eiga.
Skráið ykkur til starfa
I Reykjanesbæ er mikil vakn-
ing í umhverfismálum og
bæjarfélagið er að marka
stefnu til lengri tíma í þeim
málum í tengslum við gerð
Staðardagskrár 21. Mikilvægur
liðir í því er að heimilin vakni
til vitundar um hvað þau geti
lagt af mörkum. Bæjaryftrvöld
em því að skoða hvort grund-
völlur sé fyrir því að hefja sam-
starf við Landvemd til að virk-
ja bæjarbúa til þátttöku í GAP-
verkefninu. Ef af verður munu
fyrstu visthóparnir í Reykja-
nesbæ taka til starfa í október
og nú er lýst eftir áhugasömum
frumherjum. Þeir sem hafa
áhuga á að taka þátt í þessu
verkefni eru beðnir um að hafa
samband við formann stýri-
hóps staðardagskrár 21 sem
fyrst með því að senda
tölvupóst á kjartanm@ice-
landair.is eigi síðar 29. septem-
ber nk.
Þátttaka í visthóp - leið til
árangurs
GAP-verkefnið byggist á hóp-
starfi þar sem fulltrúar 5 til 8
fjölskyldna koma reglulega
saman til fræðslufunda yfir
tiltekið tímabil. Hópamir, sem
kallaðir eru visthópar halda
nokkra fundi til að fara yfir
ýmis atriði í rekstri fjölskyld-
unnar og til að finna leiðir til
úrbóta. Hverjum hópi fylgir
einn leiðbeinandi og allir þátt-
takendur fá handbók þar sem
finna má góð ráð og skrá
árangur starfsins á þar til gerð
eyðublöð.
HEKLA afhendir
háþróuð röntgentæki
HEKLA afhenti nýlega
sjúkrahúsi flotans á Keflavík-
urflugvelli (U.S. Naval Hospi-
tal, Keflavík) ný háþróuð
röntgentæki frá GE Medical
Systems í Bandaríkjunum.
Tækjasamstæðan, sem er af
gerðinni Advantx Legacy, er
alstafræn, og gefur möguleika
á að skoða röntgenmyndir á
skjá og jafnframt að prenta
þær út á fullkominn litaprent-
ara.
Stafræna tæknin er bæði fljót-
virkari og nákvæmari, þar
sem ekki þarf að bíða eftir
framköllun á filmum til að
skoða myndimar. Tæknin gef-
ur einnig möguleika á því að
hægt sé að skoða myndir sam-
tímis á mörgum stöðum. Með
tilkomu þessarar nýju tækja-
samstæðu er sjúkrahús flotans
komið með ein fullkomnustu
röntgentæki á landinu.
General Electric Medical
Systems er leiðandi í þróun og
framleiðslu á háþróuðum
myndgreiningarbúnaði fyrir
sjúkrahús. Mesta nýjungin
varðandi þennan nýja tækja-
búnað frá GE Medical Syst-
ems er að nýju tækin eru
sveigjanlegri í notkun en þau
röntgentæki sent þekkst hafa
fram að þessu, hægt er að taka
myndir af stærra svæði í einu
og síðast en ekki síst þarf mun
minni skammt röntgengeisla
við hverja myndatökur, sem er
stór kostur fyrir sjúklinga og
starfsmenn.
Með kaupunum á þessum
nýju tækjum er farið inn á
nýja leið, því fram að þessu
hefur sjóherinn þurft að kaupa
allann sinn tækjabúnað beint
frá Bandaríkjunum og þurft
að sæta því að sækja þjónustu
á búnaði þangað. Þar eð
HEKLA er milliliður í þessum
kaupum, ásamt því að hafa al-
farið annast uppsetningu bún-
aðarins, er unnt að þjónusta
tækin héðan, sem gerir það að
verkum að viðbragðstími er
mjög stuttur og hægt að veita
mun betri þjónustu.
I
Gagnlegt og skemmtilegt
Það er Landvemd sem unnið
hefur að því að koma þessu
verkefni af stað og sl. ár hafa
um 60 fjölskyldur unnið með
Landvemd að gerð handbókar
sem á að létta heimilum leitina
að leiðum til vistvænna heimil-
ishalds. M.a. þeirra sem tóku
þátt í þessu starfí sl. vetur var
fjölskylda Kristínar og
Hólmkels sent búsett er á
Akureyri ásamt tveimur böm-
um, Huldu 7 ára og Sveini 11
ára.
I nýlegu viðtali um þátttöku
fjölskyldunnar í þessu verkefni
segir Kristín, „Þær efasemdir
sem ég hafði í upphafi hurfu
fljótt. Verkefnið er sett upp á
mjög skemmtilegan hátt, þann-
ig að eitt ákveðið efni er tekið
fyrir í einu.” Þau Kristín og
Hólmkell segja hópastarfið
mikilvægan hluta verkefnisins
og í umræðum á fundum kom
ýmislegt fram sem ekki var að
fínna í bókinni. Sumir áttu t.d. í
pokahomingu sniðug ráð til að
spara orku, einhver gat miðlað
þekkingu sinni um moltugerð,
annar var sérfróður um skipu-
lagsmál og svo framvegis.
Árangursríkt og skemmtilcg
Visthópamir taka fyrir 5 mis-
munandi viðfangsefni: sorpið,
innkaup heimilisins, samgöng-
ur, orkumálin og vatnið. Um
hvert efni er fjallað á einum
fundi og beinist athyglin
einkum að því livað hver fjöl-
skylda getur gert til að stuðla
að betra umhverfi. Markmiðið
er að taka einföld og raun hæf
skref sem hafa jákvæð áhrif á
umhverfið og draga á engan
hátt úr lífsgæðum heimilis-
manna. Markmiðið er ekki að
gera róttækar breytingar sem
leysa öll mál í einum vetfangi.
I handbókinni er að finna
fjölmörg dæmi um aðgerðir og
heimilin velja sér þær sem
þeim hentar best. Starfið stend-
ur í unt tvö mánuði og hver
visthópur heldu 7 fundi.
Reynslan af þessu verkefni sl.
vetur bendir til þess að íslensk-
ar fjölskyldur geti lagt nokkuð
af mörkum með þátttöku í
Vistvemd í verki. Hólmkell á
Akureyri hafði m.a. þetta að
segja um reynslu sína: „Eitt af
því sem kom mér á óvart var
hvað við erum mikil neysludýr.
I samanburði við okkur var
fólk í hópnum sem eyðir eins
og saumavélar.” Á sumum
sviðum var samanburðurinn þó
þeirra fjölskyldu í hag. Sem
dæmi má nefna er notkun á
heimilisbílnum í lágmarki og
bæði ganga í vinnuna. Og
þegar Hólmkell var spurður
um áhrif verkefnisins svaraði
hann „Eg held að verkefnið
hafi haft töluverð áhrif á þessu
heimili. Eg hugsa t.d. að sorpið
sem fari út í ruslatunnu sé ekki
nema þriðjungur eða jafnvel
fjórðungur af því sem áður var.
Það ættu allir að geta gert það
sem við höfum gert. Þetta
verður strax svo lítið mál.”
Þess má geta að á heimasíðu
Landverndar
www.landvernd.is/landvernd
(sjá undir GAP) er að finna
ýmsar upplýsingar um
verkefnið Vistvemd í verki.
Kjartan Már Kjartansson.
Stelpur sem voru að æfa blak
í Myllubakkaskóla síðasta vetur,
nú er komið að því.
Mæting í kvöld á sama tíma.
Til sölu keilubrautir
Til sölu keilubrautir ásamt búnaði.
Upplýsingar í síma 695 6400.
Brúðubíllinn
í Keflavík
Brúðubíllinn sýnir í Frumleikhúsinu,
Vesturbraut 17, Keflavík
sunnudaginn 24. september kl. 14.
Daglega á Netinu • www.vf.is
9