Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 26.10.2000, Qupperneq 9

Víkurfréttir - 26.10.2000, Qupperneq 9
Júdó er íþrótt sem ekki hefur farið mikið fyrir á Suðurnesjum á und- antórnum árum en hér áður áttu Suðurnesjamenn marga góða júdómenn. Þá fóru æf- ingar fram í gamla Ungó en síðan fluttust æfingarnar í íþróttahúsið við Sunnubraut og þá harðnaði í ári og flestir gömlu jálkarnir hættu í íþróttinni. Áhugi fyrir íþrótt- inni virðist samt aldrei hafa verið langt undan en haustið 1998 byrjaði Magnús Hauks- son júdómaður að þjálfa í Vogunum. Aðstaðan þar er frábær og íþróttin virðist nú vera að rísa upp úr öskustón- ni eftir nokkurra ára lægð. Silja Dögg Gunnarsdóttir kíkti í heimsókn í Vogana og spjallaði við Magnús Hauks- son, þjálfara um stöðu og framtíð júdósins á íslandi. ■ Júdó vinsælt í Vogum: Byggist á lipurð og herkænsku -segir Magnús Hauksson þjálfari í viðtali við Víkurfréttir Vartekið opnum örmum í Vogunum Magnús bjó í Danmörku um skeið en flutti heim árið 1996. Þá höfðu nokkrir piltar sam- band við hann og báðu hann um að þjálfa sig. Hann gerði það og þeir fengu aðstöðu í Æfingastúdeói Bertu í Njarð- vík. „Haustið 1998 fengum við toppaðstöðu í Vogunum. Mér finnst mikill áhugi vera fyrir íþróttinni og það vantaði júdó á Suðumesin. Okkur var tekið opnum örmum í Vogunum, sal- urinn er góður og aðstaðan sömuleiðis. Viðhorfið gagnvart íþróttinni er jákvætt og það skiptir öllu máli“, segir Magn- ús. Hópurinn sem æfir reglulega júdó telur nú um tuttugu manns. Æfingar eru þrisvar í viku, á mánudögum og föstu- dögum kl. 19 og kl. 18:30 á fimmtudögum. Júdó byggist ekki á afli „Æfingamar felast í upphitun, teygjum og síðan förum við í tækniæfingamar, þá læra menn brögðin. Eg hef mikið verið að kenna þeim mjúkar hreyfingar, hálfgerðar þykjustuhreyfingar til að fá mýktina inn í brögðin. Margir halda að júdó byggist á afli en það byggist á tækni og á að blekkja andstæðinginn. Lip- urð og snerpa skipta máli og að nota kollinn. Það má kannski líkja júdói við skák, þetta bygg- ist á herkænsku. Maður þaif að ná andstæðingnum þangað sem maður vill fá hann og þá getur maður klárað dæmið. Þeir sem em klárastir í því ná lengst", segir Magnús. Vil mýkja upp júdóið Meirihluti þeina sem æfa júdó eru strákar en Magnús segir íþróttina vera fyrir alla, stelpur og stráka. Það sem hafi hins vegar skemmt fyrir júdóinu á Islandi sé harkan. Erlendis sé mýktin hins vegar að koma meira inní júdóið. Þannig sé hægt að laða fjöldann að og úr þeim hópi koma kannski nokkrir keppnismenn. „Það er kominn upp góður hópur af stelpum sem æfa í Júdófélagi Reykjavíkur og Ár- manni, þær em hins vegar fáar hér hjá okkur. Ég vil mýkja júdóið upp. Þá er æfð tækni og fléttur, sem kallast kötur, en í þeim vinna tveir saman. Þá lærir viðkomandi fullkomnun- ina í öllum brögðum en er ekki að keppa og ekki í hörkunni. Þetta er rosalega hörð íþrótt sem keppnisíþrótt. Ég hef stundum fengið tíu stráka inn og það er kannski einn sem heldur áfram, hinir gefast upp“, segir Magnús. Fólk á öllum aldri æfir júdó hjá Magnúsi, frá 13^10 ára. „Strák- amir sem byrjuðu hjá mér íyrir þremur ámm em orðnir þrettán ára í dag. Flestir sem byrjuðu þá hættu en þessir drengir héldu áfram og standa sig gríð- arlega vel. Þeir em með okkur á fullorðinsæfingunum og skemmta sér konunglega." Daglega á Netinu • www.vf.is 9

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.