Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 21.12.2000, Page 32

Víkurfréttir - 21.12.2000, Page 32
(rS/\œm œttingjar orj vinir á WHriumesjwm oj um /arwf u/á. mifcjar jóia orj nýjárs/verjjur mer) óSKum wm farswm fmmtir). áj/rrsfaÁar /vedjur orj ftri/ir ti/ afcttSvcitar C()ón/isfarsfó/a S/crj/jaiws/ajar/jrir /icimsó/tnina ti/ /a S/Zariiwr s/. vor. //Ji<) vomr) frá/rcr/ Ásdís og Högni, Spáni. Jolabækunnan 2000 Út er komin bókin Nœrmynd af Nóbelsskáldi. Halldór Kiljan Laxness í augum samtíma- manna. Þetta er mikil bók, ríf- lega 400 síður að stærð þar sem fjölmargir einstaklingar rifja upp kynni sín af Halldóri og eru allir á persónulegum nót- um. Þrjú af fjórum bömum Hall- dórs taka til máls. Af öðmm sögumönnum má nefna fyrr- verandi tengdason Halldórs, Jón Gunnar Ottósson, hinn víðkunna sjónvarpsmann í Skotlandi, Magnús Magnús- son, Ama Bergmann rithöfund, Svein Einarsson leikstjóra, Matthías Johannessen ritstjóra, Jón á Reykjum og Gunnar Eyj- ólfsson leikara. Jón Hjaltason sagnfræðingur ritstýrði. Útgefandi er Bókaútgáfan Hól- ar. Út er komin bókin I órólegum lakli, skáldsaga eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur, blaðakonu hjá Morgunblaðinu. Þetta er áleitin saga og djörf um Margréti Hannesdóttur. Miklir örlaga- þræðir em ofnir; Maigrét tekur upp ástarsamband við Alfreð Jónsson ráðherra, jafnframt því að hún reynir að bjarga land- flótta Kúrda frá bráðum bana. Margrét glímir við íslenska embættismannakerfið, eigin- konu Alfreðs og síðast en ekki síst eigin samvisku enda gift kona. Undir niðri kraumar gamalt leyndarmál eins og nomapottur. Að lokum neyðist Margrét til að gera upp líf sitt og velja - og val hennar kemur sannarlega á óvart.Útgefandi er Bókaútgáfan Hólar. Út er komin bamabókin Bestu barnabrandararnir. Geggjað grín. Þetta er fimmta bókin í þessum sívinsæla bókaflokki þar sem bömin sjálf fá öllu að ráða. Þau velja skrýtlumar í bókina og hafa foreldrar haft á orði að þeir fái vart betri lestr- arbækur handa bömum sínum. Stuttar sögur og skemmtilegar sem halda bömunum við efnið og em lestrarhvetjandi. Útgef- andi er Bókaútgáfan Hólar. Út er komin Kœri kjósandi. Gamansögur af íslenskum al- þingismönnum. Þetta er 6. bók- in í þessum geysivinsæla bóka- flokki. Sem fyrr er lögð áher- sla á að segja sögur af nafn- greindum þingmönnum, núver- andi og fyrrverandi, annað býður ómarkvissum kjafta- gangi heim. Fyrir vikið koma þeir allir fram undir nafni; Davíð Oddsson, Guðni Agústs- son, Steingrímur J. Sigfússon, Össur, Jón Baldvin og ótal fleiri. Bókaútgáfan Hólar gefur út. Út er komin bókin Rauðu djöjlarnir. Knattspymustjöm- umar i sögu Manchester United. Höfundar em Agnar Freyr Helgason og Guðjón Ingi Eiríksson en í fyrra sendu þeir ífá sér sögu Manchester United sem naut mikilla vinsælda. Nú fjalla þeir um helstu hetjumar í sögu felagsins, svo sem George Best, Eric Cantona og David Beckham, auk 83 annarra leik- manna er gert hafa garðinn frægan hjá félaginu. Útgefandi er Bókaútgáfan Hólar. Út er komin bókin Stoke City, í máli og myndum, Guðjón Ingi Eiríksson tók saman. Þar grein- ir frá helstu viðburðum í sögu félagsins og er sérstök áhersla lögð á hinn íslenska kafla í henni og meðal annars birt við- tal við Guðjón Þórðarson þar sem hann ræðir fortíð, nútíð og framtíð félagsins. Tónlistarfólk tónlistarskólanna á Suðurnesjum hafa haldið uppi skemmtilegri jólastemmningu í desember. Þessar myndir voru teknar í Kirkjulundi á tónleikum hjá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar þar sem fram komu strengjasveitir, kórar og blásarar! 32 GLEBILEGA H Á T í E

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.