Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 21.12.2000, Page 38

Víkurfréttir - 21.12.2000, Page 38
Listræn jól í Sandgerði Þessar skemmtilegu jólafígúmr prýða garðinn við Suðuigötu 38 í Sandgerði. Víða má sjá áhrif listasmiðjunnar Nýrrar- Víddar í Sandgerðisbæ og vel þess virði að taka jólarúnt um bæinn. VF-myndir: Marta Eiríksdóttir Látið þrífa bílinn fyrir jólin! Þrif og léttbón frá kr. 1.300,- Teflon húö fyrir veturinn GT bón og filmuísetningar Framnesvegi 23, Keflavík - 421 8888. Jóla gospelgleði Fjórir kórar komu saman og héldu tón- leika í Ytri Njarðvík- urkirkju fyrir nokkru. 1 sönghópnum eru alls 160 manns, þ.e. Regnbogakórinn og Sönghópurinn Léttur sem Klettur (starfsfólk Rauða Kross íslands), Brintkórinn frá Grindavík og Kvennakór Suðumesja. Einnig kont byrj- endahópur Söngseturs Esther Helgu fram og hópur frá For- eldrafélagi einstakra bama. Stjómandi á tónleikunum var Esther Helga Guðmundsdóttir. Efnisskráin var fjölbreytt og skemmtileg og gestir kunnu vel að meta það sem boðið var upp á. Einnig stóðu einsöngv- arar á tónleikunum sig með stakri prýði.l 14 ára ungmenni í Keflavík og Sandgerði spurð: Hvað viltu fá íjólagjöf frá mömmu og pabba? Helga Gunnólfsdóttir, Myliubakkaskóia: Mig langar mest í föt og geisladiska. Sigurrós Ösp Rögnvaldsdóttir, Myllubakkaskóla: Stóran mjúkan bangsa til að kúra hjá því ég er svo myrkfælin. Bryndís Brynjólfsdóttir, Myllubakkaskóla: Skó og snyrtidót svo ég verði fín. Halidór Berg Harðarson, Grunnskóla Sandgerðis: Playstation 2 tölvu og Monkey Island 4 tölvuleik. Góður leikur. Bolli Thor Boilason, Grunnskóla Sandgerðis: Panasonic hljómflutnings- græjur því mínar em úreltar. 38 GLEÐILEGA HÁTÍB

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.