Víkurfréttir - 06.09.2001, Blaðsíða 2
VF FRETTIR
Þessar myndir voru teknar við löndun í Keflavíkurhöfn sl.
mánudagskvöld. Björgvin Færseth, skipsstjóri og einn
skipverja á Baldi lyfta sandkolanum fyrir Ijósmyndarann. *
.... * . Wa x
i ,
l V: J (
y-r:,.
þr 1 j f j '/ //-
■ Vertíöin byrjar vel hjá dragnótabátunum í Keflavík:
Brjálað í Bugtinni
að var handagangur í
öskjunni við Keflavík-
urhöfn sl. mánudags-
kvöld, þegar dragnótabát-
arnir komu í land með góðan
afla. Bátamir voru við veiðar
í Garðsjónum og komu með
á bilinu 10-18 tonn, mest
sandkola.
„Það er ekki annað hægt að
segja en að vertíðin fari vel af
stað. Þetta er kannski ekki eins
gott og á árum áður, en þó betri
byrjun en í fyrra“, segir Guð-
rún Gunnarsdóttir vigtarmaður
hjá Hafnarsamlagi Suðumesja.
Bátarnir komu hver á fætur
öðrum að bryggju frá kl. átta
um kvöldið og voru að landa
fram á nótt. Sumum skipverj-
um þótti nóg um og létu sig
hverfa að löndun lokinni. „Þeir
komu hingað tveir að vestan til
að fara á snurvoð en létu ekki
sjá sig aftur í morgun þegar
bátamir voru að fara að leggja
af stað. Það varð því að redda
nýjum mönnum í snarhasti.
Þetta er reyndar gömul saga og
ný en við auglýsum hér með
eftir þessum ungu mönnum“,
segir Guðrún og hlær.
Öminn var aflahæstur eftir túr-
inn á mánudaginn eða með
rúm 18 tonn, Benni Sæm kom
með rúm 17, Eyvindur með
rúm 15, Farsæll með tæp 13,
Ami með uni 13 tonn og Bald-
ur með 10 tonn. Bátamir fóm
allir til veiða snemma á þriðju-
dagsmorgun.
Grétar Þorgeirsson skipsstjóri á
Farsæl var ánægður með veið-
ina síðustu daga. Þegar VF
hafði samband við hann sl.
þriðjudag var hann við veiðar á
Garðsjó. „Ætli við séum ekki
komnir með tíu tonn núna en í
Baldur að leggjast aö bryggju. Aö
neðan má sjá Halldór Þórðar skip-
stjóra á spjalli við Hauk og félaga á
Benna Sæm.
gær vorum við með 13 tonn í
þremur köstum. Það lítur allt út
fyrir að við tökum þetta í fjór-
um núna“, segir Grétar. Hann
segir sandkolann sem veiðist
mjög góðan en það er meira af
rauðsprettu en verið hefur. „Eg
held það hafi ekki verið svona
góð byrjun á veiðum í 4-5 ár“,
segir Grétar að lokum.
Öminn var aftur aflahæstur eft-
ir túrinn á þriðjudaginn, með
14,8 tonn, Benni Sæm með 11
tonn, Ami með 7 tonn, Baldur
með 6,7 tonn og Eyvindur með
6,3 tonn. Að sögn Guðrúnar
var mest af sandkola en eitt-
hvað lítið af rauðsprettu, eða
innan við 10%. „Sjómennimir
voru ánægðir með aflann þegar
þeir komu í land í gær“, sagði
Guðrún í viðtali við VF á mið-
vikudagsmorgun. „Þetta er að-
eins minni afli en á mánudag
en aflinn í veiðiferð númer tvö,
skall mikið neðar í fyrra, þann-
ig að þeir em mjög sáttir."
Þrír bátar frá Reykjavík lönd-
uðu í Keflavík á þriðjudag.
Njáll RE kom með 10 tonn,
Reykjaborg RE með 6,5 tonn
og Sæljón RE með 10,2 tonn.
tHRINGBRAUTi92*KEFiLrAVlK<SlMI'42Í[360Ö;
VIKUR
FRÉTTIR
Útgefandi: Víknrfi-éttu- ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 2B0 Njarðvík, sími 421 4717, fax 421 2777
Flitstjóri: Páll Ketilsson, sími 893 3717 pket@vf.is • Framleiðslustjóri: Hilmar Bragi Báröarson, sími 838 2222 hbb@vf.is •
Fréttastjóri: Silja Dögg Gunnarsdóttir, simi 69D 2222 silja@vf.is • Blaöamaöur: Svandis Helga Halldórsdóttir, svandis@vf.is •
Auglýsingar: Jónas Franz Sigurjónsson, franz@vf.is, Kristin Njálsdóttir kristin@vf.is, Jófriður Leifsdóttir, jofridur@vf.is •
Hönnunardeild: Skarphéöinn Jónsson skarpi@vf.is • Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is Útlit, umbrot og prentvistim: Vikurfréttir
ehf. • F’rentvinnsla: Dddi hf • Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is eða vikurfrettir.is
2