Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.09.2001, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 06.09.2001, Blaðsíða 4
■ Vika símenntunar:_______________________ ttrnámskeið unt tölvur og tungumál „Vits er þörf þeim er víða ratar“ og „Menntun er skemmtun“ eru slagorð viku símenntunar 3.-9. september 2001 sem Menntamálaráðu- neytið stcndur fyrir. Mark- mið vikunnar, sem haldin á Suðurnesjum, í samstarfi við Miðstöð símenntunar (MSS), er að hvetja fólk til að auka við þekkingu sína og færni. „Menntun er skemmtun" vísar til ánægjunnar við að læra og ná tökum á nýjum viðfangsefn- um. Námskrá MSS hefur verði dreift í öll hús á Suðumesjum og er fólk kvatt til að kynna sér námskeiðin sem í boði eru. I viku símenntunar er áherslan * MENNTUN ER SKEMMTUN 3.- 9. september 2001 lögð á nám tengdu íslandi og umheiminum, þ.e. tungumála og tölvukunnáttu. I Bókasafni Reykjanesbæjar, Hafnargötu 57 er sýning á náms- og kennslugögnum vegna tölvu- og tungumálanáms og þar fara einnig fram örnámskeið í tungumálum í tilefni Evrópsks tungumálaárs 2001. Á mánudag sóttu 15 manns námskeið í spænsku, á þriðju- dag og miðvikudag voru ensku- og frönskunámkeið. I dag fimmtudaginn 6. septem- ber kl. 17:15- 18, verður dönskunámskeið og föstudag- inn 7. september kl. 17:15- 18, þýska. Málþing um mikilvægi tungu- mála verður í bókasafninu fimmtudaginn 6. sept. kl. 20-22 þar sem Jórunn Tómasdóttir, Birna Arnbjörnsdóttir, Eríkur Hermannsson, Kjartan Már Kjartansson, Kristín Jóhannes- dóttir, Robert Klukowski og Bjöm Bjamason, menntamála- ráðherra mun ræða mikilvægi tungumála frá mismunandi VF MENNTUN sjónarmiðum. Em allri áhuga- menn um tungumála hvattir til að koma og taka þátt í mál- þinginu. Viku símenntunar lýk- ur svo í Fjölbrautaskóla Suð- umesja v/Sunnubraut þar sem haldin verða örnámskeið í tölvunotkun fyrir almenning laugardaginn 8. september kl. 13-16. Það em allir velkomnir á ömámskeiðin meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis. Vígsla nýnema við Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram sl. fimmtudag. Vígslan fór vel fram og allir skemmtu sér vel. Nýnemar og áhorfendur söfnuðust saman við skólann þar sem eldri nemar iásu yfir hausamótunum á þeim. Síðan var haldið af stað fótgangandi í lögreglufylgd um bæinn en þeirri göngu lauk við smábátahöfnina. Þar voru nýnemar vígðir inn í samfélag eldri nema. Eftir hamaganginn var boðið upp á pylsu og kók en busarnir þurftu að safna orku fyrir ball Miklll uppgangur í Tölvuskóla Suöurnesja -skólinn er fluttur í nýtt húsnæði að Hafnargötu 51 Tölvuskóli Suðurnesja er loksins kominn í nýtt húsnæði eftir mikið flakk á undanfömum árum. Skólinn var fyrst á Hafnar- götu 35, síðan Hafnargötu 34 en er nú kominn á Hafnar- götu, fyrir ofan 10-11. í nýja húsnæðinu sameinast Tölvu- skóli Suðurnesja og teikni- og Ijósritunarstofan Aðstoð. Að sögn Sigurðar Friðriksson- ar, eiganda hefur verið mikil uppsveifla í Tölvuskólanum síðustu tvö ár. Kennt er í skól- anum frá kl. 9-23 á daginn en samtals eru 8 kennarar við skólann sem kenna 13-30 kennslustundir á viku. „Við erum í mikill samkeppni við Hafnarfjarðar og Reykjavíkur- svæðið og það heldur manni við efnið“, segir Sigurður. í september hefja um 160 nem- endur nám við skólann í nám- skeiðum sem eru ffá 30 stund- um og upp í 200 stundir auk þess sem Varnarliðið býður starfsmönnum sínum upp á kennslu á ensku og íslensku, starfsmenn Flugleiða og Svæð- isvinnumiðlumu Suðumesja fá einnig kennslu. Námskeið í Tölvuskólans er mörg og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi hvort sem menn eru byrjendur, vilji læra kerfis- fræði, skrifstofu og bókhalds- nám eða vefsíðugerð. Tölvu- skóli Suðumesja býður upp á einn besta aðbúnað til tölvu- kennslu á landinu en þeir nota sk. Smart board sem er eina sinnar tegundar á Islandi en er notað til tölvukennslu víðsveg- ar um Evrópu. Kennarar skól- ans em reyndir á sínu sviði en Sigurður hefur sjálfur stundað kennslu í 20 ár auk þess sem hann hefur gengt stöðu skóla- stjóra. Skólinn er lítið einka- hlutafélag í eigu Sigurðar, Ragnars sonar hans og Iðu Brár Vilhjálmsdóttur. Aðgengi að skólanum er mjög gott og er aðgengi fatlaðra til fyrirmynd- ar. Aðstoð býður upp á stafræna prentun bæklinga og ljósritun í svart/hvítu og lit auk þess sem fyrirtækið annast alla teikn- ingaþjónustu, útprentun á teikningum og ljósritun. Nk. laugardag gefst gestum kostur á að heimsækja skólann og líta á aðstöðuna en skólinn verður opinn frá kl. 14-16 á laugardag. BOX • BOX • BOX • BOX • BOX • BOX $ CRÁNING á eftiKtalinn námskeið stendur yfiv Old boys (35 ára og eldri) • Unglingar (10-14 ára) Byrjendur (15 ára up) • Kvennabox UpplýsingaK í símum: 421 8444, 899 8087, 697 3492, 695 0789 Hnefaleikafélag Reykjanes Hafnargötu 23 • 230 Keflavík • www.boxing.is • boxing©boxing.is Utgafutonleikap Svenna Björgvins Svenni Björgvins. og félagar verða með útgáfutónleika á N1 bar fimmtu- daginn 6. september. Húsið opnar kl. 22:00 og tónleikamir hefjast um kl. 23:00. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en hægt verður að kaupa geisladiskinn á kynningarverði á i staðnum. Auk Svenna leika Vignir | Bergmann á gítar, Guðbrandur Einars- son á hljómborð, Árni Björnsson áJ bassa og Davíð Karlsson á trommur.l Söngvarar eru Tómas Malmberg, Rúnar Júlíusson, Guðmundur Her- mannsson og Gunnella Hólmarsdóttir. 4

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.