Víkurfréttir - 06.09.2001, Blaðsíða 9
Hefur áhrif á markaðssetn-
ingu Suðurnesja
Johan D. Jónsson, ferðamála-
fulltrúi Reykjanesbæjar og
fulltrúi í undirbúningsnefnd
Ljósanætur sagði að þátttaka
hefði farið fram úr björtustu
vonum. „Það hefur mikið gildi
að sá gestafjöldi sem kom,
upplifi bæinn á svo jákvæðan
hátt sem raun bar vitni. Þetta
hefur vissulega áhrif á markað-
setningu samfélagsins hér suð-
urfrá í heild sinni en vert er að
geta þess að þessi eina kvöld-
stund hjá okkur, dró að sér
fleiri gesti en fjölmennustu úti-
hátíðir, eða um 15-20 þúsund
manns“, segir Johan.
„Það var rosalega hlýtt að
ganga í gegnum mannfjöldann.
Allir sem ég ræddi við sögðust
vera mjög ánægðir og glaðir
með hvemig til tókst. Eftir á að
hyggja, voru ýmsir hnökrar í
framkvæmdinni en þeir voru
samt svo smáir að það fór lítið
fýrir þeim. Eitt af jjví sem við
þurfum að athuga á næsta ári
er að hafa fyrirtæki, sýnining-
ar, verslanir o.fl., opið lengur
fram á kvöld og fjölga kafft-
stöðum um helming og rúm-
lega það.“
Brjálað að gera
Fjölbreytt dagskrá var allan
daginn á svokölluðu Duus-
svæði. Kaffi Duus var því þétt-
setið frá morgni og langt fram
á nótt að sögn Sigurbjöms Sig-
urðssonar veitingamanns, eða
Bóa á Duus.
„Við vorum með kaffihlaðborð
eftir hádegi og hlaðborð um
kvöldið, bæði fisk- og kjötrétti.
Við vorum líka með útigrill og
hoppukastala allan daginn. Það
var brjálað að gera og tvísetið í
matnum. Mummi Hermanns
spilaði undir dansi um kvöldið
og þá var dansað á veröndinni
og inni í salnum. Stemningin
var góð og allt kjaftfullt af
fólki“, segir Bói og bætir við
að hann sé sérstaklega ánægð-
ur með skipulagningu og fram-
kvæmd Ljósanætur. „Skipu-
lagið var gott og dagskráin
skemmtileg. Slíkur atburður
hefur gífurlega þýðingu fyrir
fyrirtæki og þjónustu í bæjarfé-
laginu, þar sem við fáum góða
kynningu á því sem við emm
að gera hér og auk þess þá
hvetur þetta fólk sem er með
rekstur, til nýbreytni."
Löng röð í kaffið
Verslunin Stapafell er í alfara-
leið við Hafnargötu og Guðrún
Hákonardóttir, verslunarmaður
var sömuleiðis mjög ánægð
með daginn. „Eg var að kynna
kaffivél en margir misskildu
auglýsinguna og héldu að ég
væri að kynna kaffi. Þar af
leiðandi myndaðist löng röð til
að fá frítt kafft“, segir Guðrún
og hlær en henni fannst gaman
að sjá hve margir brottfluttir
Keflvíkingar létu sjá sig. „Það
var eins konar Þorláksmessu-
stemning og mér fannst fólk
almennt mjög ánægt. Drykkju-
skapur var lítið áberandi sem
er mjög jákvætt en það var t.d.
mun meira áberandi á Menn-
ingamótt Reykjavíkur. Ljósa-
nótt hefur tvímælalaust jákvæð
áhrif á bæjarlífið og mér finnst
að þessu eigi að halda áfram
og efla Ljósanótt“, segir Guð-
rún að endingu.
Þusundir gesta nut
skemmtunar og
menningará Ljósa-
nótt í Reykjanesbæ
sem haldin var sl
laugardag en taliö er
aö um 20.000 manns
hafi verið viðstaddir
þegar Ijósin á Berg
inu voru kveikt um
kvöldið. Veðurguð-
irnj| léku við gestina
sem fylgdust irTeö
tdhdrun Ijósanna og
glæsilegri flugelda-
sýnjngu í logni og
mildu veðri.
jdK
-r-r Jf
Við gerum Ljósanótt enn betri
skil í næsta tímariti okkar, TVF.
r7j - ] TWii \
U /i - 11 Ll * |n il l\
Ásta Einarsdóttir, ekkja
Magnúsar Þórarins-
sonar kveikti á lýsingu
minnismerkis sjóman-
na sem nú hefur verið
flutt. Henni til halds og
trausts voru sonur hen-
nar Einar og Steínþór
Jónsson, formaður
; undirbúningsnefndar
I; Ljósanætur.
a
Fjölbreytnin var í fyrirrúmi á Ljósanótt, bátasýning, gamlir 1 \ al
bílar og eldhugar. ' æ:
Ný-ungarfeðgar,
Oddgeir og Garðar
Oddgeirsson keyptu
og pað er staðsett
~ fyrirframan-gömlu
y^ejarskrifstofurnar.
Reykjavík síðdegis á
Bylgjunni fjallaði um
Ljósanótt. Hér er Þorgeir
Ástvalds á tali við Steinþór
Jónsson og Smára
Sævarssonar, óperustjóra.
IVIörg hundruð krakkar
fe'ngu andlitsmálun í-
Gallery Förðun.ás*
Hér má sjá fjöldann um kvöldið,skömmu áður en kveikt var á
lýsingu sjómannamerkisins og Keflavíkurbergsins.
Mesti mannfjöldi sem verið hefur í miðbænum sótti vel
uppákomur og viðburði.Þessi myntLer tekin upp eftir
__________________________ Haf narnntnnni
Leiktæki og skemmtileg heit voru margvísleg og
krakkarnir kunnu vel að meta fjörið.
8
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
9