Víkurfréttir - 06.09.2001, Page 11
Gangsetning
Tilraunaverksmiðja
BioProcess var gangsett sl.
þriðjudag. Verksmiðjan sér-
hæfir sig í ræktun smáþömnga
sem gefa frá sér virka andox-
unarefnið astaxanthin sem er
notað í fóður. Efnið er talið
geta valdið byltingu í lækna-
vísindum og snyrtivömiðnað-
inum. A þriðjudaginn var tekin
í notkun ný verksmiðju eining
með 10.000 og 3000 lítra tönk-
um. „Þessi búnaður er sérstkur
að því leiti að hann framleiðir
BioProcess
dauðhreinsaðar fmmur. Dauð-
hreinsaðar frumur gera það að
verkum að afköstin verða meiri
og framleiðslan hreinni", segir
Ragnheiður Asta Magnúsdótt-
ir, rannsóknarstofustjóri
BioProcess. Davíð Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri og
Poul Andersen, stjórnarfor-
maður fluttu ræðu af tilefninu.
Hjá fyrirtækinu starfa nú sex
starfsmenn, tveir erlendir og
fjórir íslenskir.
Lyngsel fær 70 bækur aö gjöf
Bókakostur Lyngsels í
Sandgerði tók aldeilis
breytingum í síðustu
viku þegar útgáfufyrirtækið
Skjaldborg færði heimilinu
70 bækur sem vísi að bóka-
safni.
Skjaldborg mun síðan bæta við
bókum jöfnum höndum.
Starfsmenn heimilisins hafa
undanfarin ár farið þess á leit
við útgáfufyrirtæki að þau
gæfu tvær til þrjár bækur til
heimilisins til að bæta bóka-
kostinn. Forsvarsmenn Skjald-
borgar tóku vel í þessa hug-
mynd og ákváðu að gera mun
betur en tvær til þrjár bækur.
Eigandi Skjaldborgar, Björn
Eiríksson og aðstoðarkona
hans Anna Fr. Kristjánsdóttir
heimsóttu dvalargesti heimilis-
ins og færðu þeim gjafabréf
upp á 70 bækur. Lyngsel fær
allar bækur í bókaflokknum
Lestrarhestar en Skjaldborg
gefur út 6 bækur í þessum
flokki á ári. Bækurnar eru
fræðslubækur en þeim fylgja
verkefni sem hægt er að nálg-
ast á Intemetinu.
,T>etta er frábær gjöf og á eftir
að koma sér mjög vel“, segir
Kolbrún Marelsdóttir, for-
stöðumaður Lyngsels. „Eg
vona bara að fleiri fyrirtæki
fylgi í kjölfarið og bæti við
bókasafnið okkar.“
Björn Eiríksson og aðstoðarkona hans Anna Fr. Kristjánsdóttir
heimsóttu dvalargesti heimilisins og færðu þeim gjafabréf
upp á 70 bækur.
SaLsandmskeið
Þann 17. september n.ti. befst námsfieiff í
salsadansi í íþróttaíiúsinu við Jvíyllubaíikasfióla.
SNámsfleiðið er fweii mánudagsRvöld og stendur
í 6 vifuir. Carlos og ‘Rannveig laka við skráningu
og veita nánari upplýsingar
í síma 86g ogy6 eða g6g 552.7 eftir kl. 18.
Leitin að
Herra Suður-
nes er hafln!
Leitin að „Herra Suður-
nes“ er hafin. Abendingar
berist til Jóns Freys Hjart-
arsonar, núverandi Herra
Suðurness en hann er
stílisti keppninnar. Síminn
hjá honum er 691-9888.
Þetta er í fjórða sinn sem
keppnin Herra Suðurnes
er haldin. Vinningshafar
frá Suðurnesjum hafa í
framhaldinu tekið þátt í
keppninni Herra ísland og
staðið sig vel. Þátttaka í
keppni sem þessari er kjör-
ið tækifæri fyrir ævintýra-
gjarna unga menn sem
vilja prófa eitthvað nýtt og
vera í kringum skemmti-
legt fólk.
REYKJANESBÆR
TJARNARGÖTU 12
230 KEFLAVÍK
Styrkir til
menníngarmála
Menningar- og safnaráð Reykjanesbæjar óskar eftir
umsóknum um styrki til menningarmála.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu bæjarskrifstofunnar
í Kjama, Hafnargötu 5 7.
Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöðin og frekari
upplýsingar á upplýsingarvef Reykjanesbæjar,
www.reykjanesbaer.is.
Umsóknum skal skilað til menningarfulltrúa í Kjama fyrir
6. október næstkomandi.
Menningar- og safnaráð.
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
11