Víkurfréttir - 06.09.2001, Qupperneq 15
Þurfa níu stig í viðbót
Keflvíkingar mæta Valsmönnum
nk. laugardag í Hlíðarenda. Nú
em 15. umferð íslandmótsins
lokið en lið Keflavíkur er í 6.
sæti deildarinnar með 19 stig.
Gunnar Oddsson segir mestu
vonbrigðin með gengi liðsins á
heimavelli. „Til að tryggja sæti
okkar í deildinni verðum við að
ná a.m.k. þremur stigum", segir
Gunnar en rifjar upp að þessi
staða er ekki alveg ókunn Kefla-
víkingum því liðið hefur lent í
neðri hluta deildarinnar síðustu
þrjú ár. „Við settum stefnuna á
það að vera í efri hluta deildar-
innar. Vlð ætluðum okkur stærri
hluti en ég veit ekki við hverju
við bjuggumst." I liðinu em
margir ungir strákar og segir
Gunnar það hafa verið ljóst í
upphafi að tímabilið yrði ekki
auðvelt fyrir liðið. „Við hugsum
um einn leik í einu, Valur er
næstur og það er leikur sem við
verðum að vinna til að dragast
ekki lengra aftur úr.“
Ætla að vinna
Grindvíkingar eiga erfiðan leik
við topplið Skagamanna á laug-
ardaginn. Þegar 15 umferðir em
búnar af Islandsmótinu er
Grindavík í 5. sæti með 21 stig.
Að mati Ólafs Amar Bjamason-
ar, fyrirliða Grindvíkinga hefur
gengi liðsins ekki verið nógu gott
að undanförnu. „Eg var mjög
ánægður með síðasta leik, góður
gangur eftir slæma leiki að und-
anfömu. Við ætlum að ná svip-
uðum árangri og í fyrra og tökum
einn leik fyrir í einu", segir Ólaf-
ur. Fyrirliðinn hefur sterka trú á
liðinu og telur þá vel geta farið
með sigur af hólmi í næstu leikj-
um. „Vlð eigum þrjá erfiða leiki
en þeir verða skemmtilegir ef
okkur tekst að spila eins vel og
síðast. Við getum unnið þá alla.“
Ólafur segir að nái liðið að hvíla
sig vel geti þeir mætt til leiks jafn
grimmir og þeir vom í leiknum
gegn Fylki.
Víðir tapar á Akureyri
Víðismenn sóttu Nökkva á Akur-
eyri heim á laugardag í 2. deild.
Leiknum lauk með 3-2 sigri
heimamanna en Víðir er nú í 7.
sæti 2. deildar með 19 stig. Guð-
mundur Einarsson og Bjöm Vil-
helmsson skoruðu mörk Víðis.
Aðalsteinn Sigurkarlsson, Óskar
Bragason og Sindir Ólafsson
vpru markaskorarar Nökkva í
leiknum. Næsti leikur Víðis er
við Borgnesingana í Skallagrimi
í Garðinum á laugardaginn.
Jafntelfi í bráttunni
um 2. deild
Njarðvíkingar fengu Völsunga í
heimsókn á sunnudag þegar liðin
bitust um sæti í 2. deild.Leiknum
lauk með jafntefli og verða
Njarðvíkingar að skora þegar lið-
in mætast næst en það er á Húsa-
vík fimmtudaginn 6. september.
Mörk Njarðvíkinganna skomðu
Bjarni Sæmundsson og Eyþór
Gunnarsson en Magnús Hall-
dórsson og Nikola Niksic skor-
uðu mörk gestanna.
Hausttvímenningur
Bridfélagsins
Bridsfélag Suðurnesja hefur
starfssemi á ný eftir sumarfrí
mánudaginn 3. setpember.
Fyrsta kvöldið verður upphitun
en 10. september byrjar fyrsta
verðlaunamótið, þriggja kvölda
hausttvímenningur. Mæting kl.
19:30.
ÞRÖSKULDURINN í LEIRU á laugardag
8. sept. - Hjóna og parakepnni GS
eiknar verða 18 holur- Fyrirkomulag:
Annað hvert hö
pútt\
teig
Móts
fyrir mótsgj., kvöldverð og di
Þröskuldar-nefndin
Franiiarsiiigar á Nesprýöis-lótbottarnótl
Það voru efnilegir knattspyrnumenn sem öttu kappi á Nesprýðimótinu sem fram fór í Keflavík
um þar síðustu helgi. Lið af Suðurnesjum skipuð leikmönnum 5. flokks karla mættust en
keppt var í þremur riðlum, A, B og C. I fyrsta sæti A-riðils var Grindavík, í B-riðli Reynir
Sandgerði og í C-riðli Haukar Town. I öðru sæti varð Keflavík í A-riðli, Keflavík City í B-riðli
og Njarðvík United í C. Að lokinni verðlaunaafhendingu gæddu strákarnir sér á dýrindir pizzu
enda svangir eftir leiki dagsins.
FJÖLBRAUTASKOLI SUÐURNESJA
.‘u.i'uldi'cJÍi::'! d u i
BoÓaÓ ertil kvöldfundar meó foreldrum/forráóamönnum
nýnema vió Fjölbrautaskóla SuÓurnesja. Fundurinn verður
haldinn, mánudaginn 10. september á sal skólans
[3ju hæó - gengið inn um vestur
dyrvió Faxabraut] og hefst kl. 20:00-22:00.
Dagskrá fundarins:
MarkmiÓ og áherslur skólans
Kynning á námi og námsframboói
Kynning á starfsfólki og þjónustu
UmræÓur og önnur mál
Ég hvet sem flesta foreldra/forráóamenn nýnema til þess aó
koma á þennan fund. ÞaÓ er reynsla okkar undanfarin ár
aó fundirnir hafa verió bæði líflegir og gagnlegir og ekki síst
hjálplegir okkur við aó mæta þörfum nemenda.
Þar sem nú eru liónar fyrstu vikur skólastarfsins getum
vió vonandi svarað öllum spurningum sem hafa vaknaó í
tengslum vió námió og lífió í skólanum og svo bjóðum vió aó
sjálfsögóu kaffi og meó því.
Bestu kveðjur,
Ólafur Jón Arnbjörnsson.
Skólameistari.
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
15