Víkurfréttir - 15.11.2001, Qupperneq 2
Útgefandi: Víkurfráttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 2E0 Nfarðvík, sími 421 4717, fax 421 2777
Ritstjori: Páll Ketilsson, sími 893 3717 pket@vf.is • Framleiaslustjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, simi 898 2222 hbb@vf.is •
Fréttastjóri: Silja Dögg Gunnarsdóttir, simi 690 2222 silja@vf.is • Blaðamaður: Svandis Helga Halldórsdóttir, svandis@vf.is •
Auglýsingar: Jonas Franz Sigurjónsson, franz@vf.is, Kristin Njálsdóttir kristin@vf.is, Jófríður Leifsdóttir, jofridur@vf.is •
Hönnunardeild: Skarphéðinn Jónsson skarpi@vf.is • Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is Útlit, umbrot og prentvistun: Víkurfréttir
ehf. • Prentvinnsla: Oddi hf • Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is eða vikurfrettir.is
Opið hús hjá frímúr-
urum á Suðurnesjum
legum deilum í þjóðfélaginu.
Hún er óháð öllum valdhöfbm
öðrum en löglegum yfirvöld-
um landsins.
A sunnudaginn mun verða
opið hús hjá frímúrarastúkunni
ffákl. 14:00-17:00 í húsnæði
þeirra að Bakkastíg 16 , Njarð-
vík. Þar verður birtur ýmis
fróðleikur um Frímúrararegl-
una og Stúkuna Sindra og fer
fram sýning á minjum og
kynning á sögu Stúkunnar. Þá
verður hljóðfæraleikur og boð-
ið upp á kaffi og meðlæti.
Suðumesjamenn eru velkomnir
og hvattir til að mæta.
CLÆS\LEC BORÐSTOFUHÚSGÖ6N
FRABÆR SJÓNVARPSSKÁPUR
COÐ VERÐ
.^naversVk
Radgreidslur III alll að 36 mán.
Sími 421 1099 0tr
Hafnargata 57 • Keflavík
(Flug Hóteli)
Opið hús verður hjá Frí-
múrarastúkunni
Sindra í Keflavík næst-
kontandi sunnudag 18. nóv-
eniber frá kl. 14:00-17:00, í
húsnæði stúkunnar að
Bakkastíg 16, Njarðvík.
Frimúrarareglan á íslandi er 50
ára á þessu ári. Lögð er áhersla
á að Frímúrarareglan er sjálf-
stætt félag eða samtök karl-
manna úr öllum hópum þjóðfé-
lagsins, sem hefur mannrækt
að markmiði. Reglan byggir
starfsemi sína á kristnum
gmndvelli. Hún tekur ekki af-
stöðu í stjómmála- eða trúar-
Með heilahristing eftir fall
Slys varð við Myllubakkaskóla í Keflavík sl. föstudag. Ungur drengur hafði
falliö aftur fyrir sig, 1,30 cm fall, yfir steyptan kant við kjallaratröppur og
lent á andlitinu. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðumesja og var
lagður inn að skoðun lokinni, en hann var með stóra kúlu á enni og mun
hafa hlotið heilahristing.
■ Dópaður undir stýri
Þá var ökumaður stöðvaður við akstur grunaður um að vera undir áhrifum
fíkniefna á laugardag. Tæki og tól til fíkniefnaneyslu fundust í bifreiðinni
og lítilsháttar af efnum, líklega hass.
■ Bærinn fullur af lögbrjótum
Alls voru 18 voru kærðir fyrir of hraðan akstur og fjórir fyrir stöðvunar-
skyldubrot auk þess sem 25 voru kærðir fyrir vanrækslu á aðalskoðun
ökutækja.
■ Traktor og fólksbíll í hörðum árekstri
Umferðaróhapp varð í Vogum sl þriðjudagsmorgun. Traktorsgrafa og
fólksbifreið lentu saman á gatnamótum Tjarnargötu og Stapavegar. Fólks-
bifreiðin var talsvert mikið skemmd og var tekinn af vettvangi með drátt-
arbil. Engin slys uröu á fólki.
■ Kastaðist út úr bil við veltu á Sandgerðisvegi
Um kl. hálf átta á þriðjudagsmorgun valt fólksbifreið út af Sandgerðisvegi
en hálka var á veginum. Ungur maður var einn í bílum og kastaðist hann
út úr honum við veltuna og var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.
Meiðsli mannsins eru ekki talin lífshættuleg.
Lestu allar fréttirnar á vikurfrettir.is
Dýpkun hafin í Sandgerði
Síðasta vika var heldur
risjótt hjá flotanum í
Sandgcrði að sögn hafn-
arstjóra.Alls komu um 300
tonn á land í miöri viku.Tog-
skipin koniu nieö 120 tonn og
netabátar um 50. Línuskip og -
bátar komu samtals með 130
tonn að landi cn þar af var
Kristinn Lárusson með 40
tonn eftir eina ferð og Sigþór
með 20. Frckar dræm veiði
hefur verið hjá netabátum að
undanfornu en togarar komust
lítið á sjó í síöustu viku sökum
veðurs.
í vikunnu voru hafhar fram-
kvæmdir við dýpkun við Norð-
urgarð og vestur undir Norður-
garði. Dýpkunin mun bæta að-
stöðu stærri loðnuskipa til mik-
illa muna.
NÝ ÍTÖLSK LÍNA FRÁ
OLCA
Það er nóg um að vera í menningarlífi í Reykjanesbæ þessari viku.
A mánudag hófst norræn bókasafnsvika. Þema vikunnar er orð og
tónar í norðri og tók opnunarhátíðin mið af því. Leikskólabörn
sungu piparkökusönginn, skáld lásu ljóð og sungið var og spilað.
Myndin var tekin við setningu hátíðarinnar en lesið var við
kertaljós. Það er Svanhildur Eiríksdóttir sem tendrar kertaljósin.
Fólk í sjokki og götum lokað
- Þrír starfsmenn Keflavíkurverktaka í World Trade Center
Rétt rúmum tveimur mán-
uðum eftir hrjðjuverkin
hræðilegu á sér aftur
stað hræðilegur atburður í
Bandaríkjunum. Flugvél hrap-
ar með 255 farþega innan-
borðs í Queens í Nevv York.
Þrír Suðurnesjamenn á veg-
unt Keflavíkurverktaka, Kári
Arngrímsson,Albert B. Hjálni-
arsson og Iris Sigtryggsdóttir
voru í New York en þau voru
að skoða rústirWorldTrade
Center bvggingarinnar þegar
flugvél American Airlines
stevptist niður í borgina.
„Þetta er mjög furðulegt. Það var
mikil öryggisgæsla í botginni
fýrir slysið en núna er þetta allt
mjög skrítið", segir Kári. „Á
milli kl. 9 og 9:30 varð allt vit-
laust en við vorum þá stödd í
World Trade Center. Við fréttum
síðan af því að flugvél hefði
hrapað.“ Öllum götum borgar-
innar hefur verið lokað og útilok-
að að komast á milli staða nema
fótgangandi að sögn Kára. Þau
náði hins vegar að komast í
leigubíl affur á hótelið áður en
götum borgarinnar var lokað.
Þremenningamir áttu flug til ís-
lands daginn sem slysið varð en
öllum flugvöllum í New York var
lokað. Þau vonuðust hins vegar
effir því að komast heim á mið-
vikudag með flugi í gegn um
Baltimore. „Það eru allir í rniklu
sjokki héma. Fólk var rétt að
jafna sig á atburðunum fyrir
tveimur mánuðum og það er
ótrúlegt að borgin skuli yfirleitt
vera virk“, segir Kári. „Við vilj-
um bara komast heim sem fýrst,
það er ekkert gaman að vera
héma úti í þessum aðstæðum.“
Kári
Arngrímsson
Albert B.
Hjálmarsson
Sigtryggsdóttir
SUÐURNESJAMENN í NEW YORK:
VIKUR
FRÉTTIR
2