Víkurfréttir - 10.01.2002, Síða 10
Kjarakaup
VW Transporter árg. 12.2000, bensín.
VW Caravelle árg. 1995, diesel.
Seljast á góöum afslætti, aöeins bein sala kemur
til greina. Bílarnir verða til sýnis aö Holtsgötu 56,
Njarðvík föstudaginn 11. janúar 2002 til kl. 15.
Síminn er 421 5566 og 892 0112, Hilmar.
Fréttavaktin 898 2222
Leikskólakennarar athugið!
Leikskólinn Gefnarborg í Garði
óskar eftir deildarstjóra,
leikskólakennurum eða öðru starfsfólki.
Leikskólinn er í nýlegu húsnæði og öll
vinnuaðstaða er mjög góð.
Nánari upplýsingar veitir rekstraraðili
og leikskólastjóri í síma 422 7166.
Uppljjsincjargcfur Freyja
í síma 8674869
Vercí kr. 13.900.-
Hefst Iq-.janúar
oj verðnr í 8 vikar
Styídwnœting 4x í vikn
þar af2 ftjátsir tímar.
1 tími í einkaþjálfan,
1 tími í spinning
ocj 2 frátsir tímar í vikn
V k k * * * 4
S 6
Ökumaður lítillar fólksbifreiöar var fluttur á sjúkrahús eftir að
hafa ekið bifreið sinni á umferðarskilti á mótum Seylubrautar og
Reykjanesbrautar á tíunda tímanum sl. fimmtudagsmorgun.
Hann mun ekki hafa slasast mikið. Lögreglan rannsakar óhappið.
LESENDALEIKUR TVF
Fékk 70.000 kr.
þvottavél fyrir 459 kr.!
Kveikt í Lödu
milli Garðs og
Keflavíkur
Kveikt var í Lada bifreið við
fiskhjalla í Leiru milli Garðs
og Keflavíkur í síðustu viku.
Slökkvilið Brunavarna Suður-
nesja fékk boð frá Neyðarlínunni
um eldinn og sendi slökkvibíl á
staðinn. Fljótlega gekk að
slökkva eldinn og er talið að ein-
hver hafi verið að losa sig við
eðalvagninn með þessum hætti.
Opið prófkjör
Samfylkingin í Rcykjanes-
bæ efnir til opins próf-
kjörs laugardaginn 23.
febrúar 2002 til að ákvarða
lista fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar 25. maí 2002. Kosn-
ingarétt í prófkjörinu hafa allir
íbúar Reykjancsbæjar 18 ára
og cldri ásamt þeim félögum
Samfylkingarinnar í Reykja-
nesbæ sent eru 16-18 ára.
Fimni efstu sæti í prófkjörinu
verða bindandi.
Rétt til þess að bjóða sig fram
hafa allir íbúar Reykjanesbæjar
sem eru á kjörskrá og em skráðir
félagar í Samfylkingunni í
Reykjanesbæ.
Frestur til þess að skila inn fram-
boðum rennur út 27. janúar
2002. Framboðin skuiu afhent
kjörnefnd að Hafnargötu 26,
Reykjanesbæ.
'lK
J
L
Kíktu á Netið
www.vf.is
Erna Árnadóttir vann
70.000 kr. þvottavél í les-
endaleik Heklu og TVF,
sem fram fór í októberblaði
Tímarits Víkurfrétta.
Fjölmargir sendu inn svarseðla
enda til mikils að vinna og var
Ema ein af þeim sem vom með
rétt svar í leiknum. Lesendaleikir
sem þessi em mjög vinsælir og
með nýjasta hefti TVF, sem kom
út í desember, fylgir skafmiði þar
sem 700 vinningar em í boði og
aðalvinningar þar eru 16 utan-
landsferðir með Flugleiðum.
Blaðið fæst enn á blaðsölustöð-
um um öll Suðumes.
Á meðfylgjandi mynd afhendir
Kjatann Steinarsson fram-
kvæmdarstjóri K. Steinarssonar,
sölu- og þjónustuumboðs Heklu
á Suðurnesjum, heppnum les-
andaTVF glæsilega þvottavél.
FRÉTTIR FRÁ GRINDAVÍK
Þrettándagleði tókst vel
rettándagleði tókst vel í
Grindavík. Það leit þó
ekki sérlega vel út með
veður skömmu áður en gleðin
átti að hefjast. Gekk á með
roki og rigningu. En rétt áður
en bæjarbúar lögðu af stað í
göngu sem hófst við Kvennó
með álfakóng og álfadrottn-
ingu í broddi fyikingar, breytt-
ist veðrið skyndilega nijög til
hins betra. Ein hugsanleg skýr-
ing er sú að álfar hafl gripið í
“veðurtauntana”.
Skemmtidagskrá við höfhina fór
því fram í „rjómablíðu". Fólst
dagskráin m.a. í kórsöng og
heimsókn jólasveina sem komu
við á leið sinni heim í fjöllin og
einnig tóku viðstaddir nokkur
viki-vaka dansspor undir leið-
sögn Estherar Guðmundsdóttur
kórstjóra. Flugeldasýning á veg-
um björgunarsveitarinnar var svo
ágætur endapunktur.
Nánast strax að skemmtun lok-
inni versnaði veður nokkuð aft-
ur... enda jólasveinar, álfar, tröll
og aðrar vættir farnar til síns
heima.
Vitlaust veður fyrir grindvíska flotann
Aðeins höfðu tvö skip land-
að í Grindavík frá ára-
móturn og þar til í
fyrradag. Ástæðan er vitlaust
veður á grindvískan ntæli-
kvarða. Sturla sem kom inn
vegna bilunnar í spili og var
með um 40 tonn og Kópur sem
landaði um 30 tonnum eftir
tt'ær lagnir, sem verður að telj-
ast mokafli. Aðrir Grindavík-
urbátar hafa orðið að Ieita
hafnar og landa í Njarðvík
vegna veðurofsa og brims hér
og verið að landa góðunt afla.
Þriðja janúar var eini dagurinn
sem aðeins lygndi og tókst þá að
skipa út rúmlega 600 tonnum af
frystum síldarflökum og hefúr þá
alls verið skipað úr rúmlega 900
tonnum af þeirri vöru sem þykja
nokkur tíðindi, því langt er síðan
skipað hefúr verið út frystum af-
urðum í Grindavík.
14