Víkurfréttir - 10.01.2002, Qupperneq 14
i umsja
Unglingaráðs Knattspyrnudeildar Keflavíkur
Reykjaneshöll 2. hæð.
OPIÐ
föstudaga kl. 20-22 og laugardaga frá kl. 10.
Keflvíkingar munið númerið okkar 230
OPIÐ PROFIOOR
Samfylkingin í Reykjanesbæ efnir til opins
prófkjörs laugardaginn 23. febrúar 2002
til að ákvarða Lista fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar 25. maí 2002.
Rétt til þess að bjóða sig fram hafa aLLir
íbúar Reykjanesbæjar sem eru á kjörskrá
og eru skráðir féLagar í
SamfyLkingunni í Reykjanesbæ.
Frestur til þess að skila inn framboðum
rennur út 27. janúar 2002.
Framboðin skuLu afhent kjörnefnd að
Hafnargötu 26, Reykjanesbæ.
Samfylkingin
ímRevMcmesbæ*
KRIPALU-JÓ6A
- Framhaldsnámskeið mánud./miðvikud. kl. 1730. og 18.45.
-Morguntímar þriðjud./fimmtud. kl. 0830.
-Byijpndanámskeið hefst mánudaginn 14. janúar nk. kl. ZO.
-Slökunamámskeið hefst þriðjudaginn 15. janúar nk. kl. 20.
Innritun í síma 4211124 eða 8641124.
Meginþættirjóga: Teygjuæfingar, öndunaraefingar og slökun.
Þrír UMFNsigrar á ísaftrði
túlkurnar í UMFN
komust í undanúrslit bik-
arkcppni KKI með sigri á
KFÍ á ísafirði 48-56 sl. sunnu-
dag en stelpurnar i UMFG
steinlágu hins vegar á móti ÍS í
sömu keppni á þriðjudag.
Ungu stúlkumar í liði Njarðvíkur
fóm um helgina í bílferð til ísa-
fjarðar þar sem þær spiluðu þrjá
leiki við KFÍ. Skemmst er frá því
að segja að þær gerðu sér lítið
fyrir og unnu alla leikina en með
sigri í þriðja leiknum, 48-56,
tryggðu þær sér sæti í undanúr-
slitum bikarsins. Atkvæðamestar
í þeim leik voru Helga Jónsdóttir
með 16 stig og Guðrún Karls-
dóttir með 13.
Grindvíkingum gekk ekki eins
vel því þær steinlágu fyrir
spræku liði Stúdina 72-37. Leik-
urinn var jafh til að byija með en
í 2. leikhluta tóku Stúdínur öll
völd og sigmðu mjög ömgglega.
Þess ber að geta að besti leik-
maður Grindarvíkurliðsins hing-
að tál, Jessica Gaspar, gat ekki
leikið með vegna meiðsla og
munar greinilega mikið um hana.
Sólveig Gunnlaugsdóttir stóð sig
þó ágætlega og skoraði 13 stig.
KARFAN
Klúðruðum
góðu tækifæri
Keflvíkingar töpuðu gegn
Tindastól sl. laugardag og
sagði Gunnar Stefánsson
einn af leikmönnum Keflvík-
inga það hafa verið gífurlega
svekkjandi.
„Það sem gerðist var einfaldlega
það að við klúðruðum þama
góðu tækifæri til að komast á-
fram i bikamum. Leikurinn var
jafri allan tímann. Við höfðum
leikinn í hendi okkar þegar stutt
var eftir en misstum við hann fra
okkur því við gerðum ekki það
sem Siggi þjálfari sagði okkur að
gera, en það var að stilla upp og
taka góð skot“.
Munaði miklu um að Jón
Norðdal var ekki með í þessum
leik? „Já auðvitað munaði mikið
um hann, sérstaklega í vöminni
gegn stóru mönnunum í Tinda-
stóli. Við áttum samt að ráða við
þetta sjálfir en hreinlega klúðmð-
um þvi“.
Þú hefur spilað meira á þessu
tímabili en áður, hverju viltu
þakka það? „Ég hef reynt að
setja mér hærri markmið á hvetju
ári og auðvitað reynir maður að
ná þeim. Ég gerði mér grein fyrir
því að með meiri metnaði myndu
tækifærin aukast og er ég nokkuð
sáttur við mitt það sem af er, þó
alltaf sé hægt að gera betur“.
Hvernig leggst lcikurinn á móti
Hamri í þig? „Þetta er auðvitað
„must win“ leikur ef við ætlum
okkur að vera í toppbaráttunni.
Við höfúm ekki ennþá tapað á
heimavelli í vetur og ætlum ekki
að bytja á því núna. Við eigum
harma að hefha“
Að lokum, hverjir verða bikar-
meistarar? „Tindastóll vann
auðvitað besta liðið (Gunnar
hlær) en ég held að vinur minn
hann Hjörtur Harðarsson muni
Ieiða Þórsarana til sigurs að
þessu sinni“.
Njarðvíkingar
áfram í bikarnum
Njarðvík vann Reyni í 8-
liða úrslitum bikar-
keppni KKÍ 65-122 (35-
66) en leikurinn fór fram í
Sandgerði sl. laugardag.
Það var í raun aldrei spurning
hvetjir myndu fara með sigur af
hólmi í þessum nágrannaslag því
Njarðvíkingar höfðu mikla yfir-
burði allan tímann. Þeir mættu
mjög grimmir til leiks og voru
staðráðnir i því að klára þennan
leik strax og koma sér í undanúr-
slit. Allir sterkustu leikmenn
Njarðvíkinga voru með að und-
anskildum Teiti Örlygssyni, sem
hvíldi. Gæði leiksins voru ekki
mikil enda mikill munur á liðun-
um. Þessi leikur var þó sérstakur
á einn hátt þvi með Reyni spila
fjórir „gamlir" Njarðvíkingar og
létu þeir talsvert að sér kveða.
Þetta voru þeir Ingvi Jóhannson,
Örvar Ásmundsson, Ásgeir Guð-
bjartsson og Skúli Sigurðsson, en
hann var stigahæstur Reynis-
manna með 14 stig. Hjá Njarð-
víkingum voru Logi Gunnarsson
og Sævar Garðarsson bestir með
sín 20 stigin hvor. Einnig var
hinn ungi Sigurður Einarsson
mjög góður en hann skoraði 19
stig og greinilegt að þarna er
efnilegur piltur á ferð.
„Við áttum aldrei möguleika í
þessum leik enda mikill styrk-
leikamunur á liðunum. Ég tel að
Njarðvíkingar vinni þennan bikar
enda var ég búinn að tala um það
að liðið sem myndi slá okkur út
myndi verða bikarmeistari“,
sagði Jón Guðbrandsson, þjálfari
Reynis, að leik loknum og verður
gaman að sjá hvort hann verði
sannspár.
Körfuboltinn
um helgina
Nokkrir leikir munu fara fram
um helgina í körfúbolta, bæði hjá
körlunum og konunum. I kvöld,
fimmtudag, taka Njarðvíkingar á
móti Skallagrími og Grindvík-
ingar fá Hauka í heimsókn. Báðir
þessir leikir hefjast kl. 20.00.
Á föstudagskvöldið kl. 19.00
taka svo Keflvíkingar á móti
Hamri fra Hveragerði og má bú-
ast við griðalega spennandi leik
þar enda töpuðu Kefvíkingar fyr-
ir þeim i Hveragerði í fyrsta leik
tímabilsins. I kvennaboltanum
taka Keflvíkurstelpurnar á móti
grönnum sínum úr Grindavík og
fer sá leikur ffam kl. 14 i íþrótt-
arhúsinu við Sunnubraut.
Tveir Keflvík-
ingar í lands-
liðinu á móti
Kuwait
Tveir Keflvíkingar léku í
landsliði Islands í knattspyrnu
sem mætti liði Kuwait á
þriðjudag í Oman.
Þeir Jóhann B. Guðmundsson,
leikmaður Lyn í Noregi og fyrr-
verandi leikmaður Keflavíkur og
Hjálmar Jónsson, Keflvikingur,
voru valdir í bytjunarlið íslenska
landsliðsins. Leikurinn endaði
með markalausu jafntefli.
Liðið er á ferðalagi í Saudi-
Arabiu og mun spila þar nokkra
leiki. Þetta eru gleðitíðindi fyrir
okkur Suðurnesjamenn enda
langt síðan tveir Keflvíkingar
hafa verið inná í landsleik í
knattspymu.
Elísabet Þórhallsdóttir
verður 85 ára 15. janúar nk.
í tilefni af tímaniótum
þessum ætlar hún að halda
upp á afmælið sitt laug-
ardaginn 12. janúar kl. 17 í
Samkomuhúsinu í Garði.
Elsku Ingi
Rúnar
Til hamingju
með níu ára
afmælið 11
janúar
Mamma,
[tabbi og
Álffún Marta
18