Víkurfréttir - 14.03.2002, Side 2
VIKUR
FRÉTTIR
Utgefandi:
Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319,
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík
Sími 421 4717 (10 línur)
Fax 421 2777
Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 893 3717 pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222 hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Siguijónsson, franz@vf.is
Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir kristin@vf.is,
Jófriður Leifsdóttir, jofridur@vf.is
Blaðamaður: Kristlaug Sigurðardóttir, kristlaug@vf.is, sími 691 0301
Hönnunarstjóri: Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is
Hönnun/umbrot: Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is,
Skarphéðinn Jónsson skarpi@vf.is, Hilmar Bragi Bárðarson hbb@vf.is
Skrifstofa: Stefanía Jónsdóttir, Aldís Jónsdóttir
Útlit, umbrot og prentvistun (pdf): Vikurfréttir ehf.
Prentvinnsla: Prentsmiójan Oddi hf. / Dreifing: íslandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar Víkurfrétta ehf. eru: Tímarit Víkurfrétta,
The White Falcon og Kapalsjónvarp Víkurfrétta.
Tónleikar í Njaróvíknrkirkjn
laugardaginn 16. mars kl. 16.
Fjölbreytt söngskrá.
Heimisfélagar.
Sveinn Örvar Steinarsson, 19 ára og Hlynur Ólafur Pálsson,
björgunarmaður hans.
Hallgrímur leiðir lista fram-
sóknarmanna í Grindavík
Hallgrímur Bogason, bæjarfulltrúi leiðir íramboðslista framsókn-
armanna til bæjarstjórnakosninga 25 mai 2002. Listi var
samþykktur á félagsfundi í fyrradag.
1. Hallgrímur Bogason, bæjarfulltr.
2. Dagbjartur Willardsson, bæjarfulltr.
3. Gunnar Már Gunnarsson, bankastarfsm.
4. Dóra Bima Jónsdóttir, gjaldkeri.
5. Guðmundur Gr.. Karlsson, háskólanemi.
6. Jónas Þórhallsson. skrifst.maður.
7. Páll Gíslason, verktaki.
8. Sigríður Þórðardóttir, verslunarmaður.
9. Kristín Þorsteinsdóttir, skólaliði.
10. Einar Lámsson, verkstjóri.
11. Vigdís Helgadóttir, húsmóðir.
12. Kristrún Bragadóttir, verslunarmaður. Bogason,
13. Agnar Guðmundsson, bifrstj. bæjarfulltrúi.
14. Bjarni zkndrésson, netagerðamaður.
Hlynur Pálsson bjargaði skipsfélaga sínum þegar hann datt útbyrðis í
Garðsjó. Ótrúleg björgunarsaga ÍTVF, Tímariti Víkurfrétta
Rétt fyrir síðustu jól féll mað-
ur fyrir borð af bátnum
Hólmsteini GK 20 um það bil
fjórar til fimni sjómflur úti í
Garðssjó. Sveinn Örvar
Steinarsson, 19 ára, hélt að
hann væri að ljúka jarðvist-
inni en bátsfélagi hans, Hlyn-
ur Ólafur Pálsson, náði að
bjarga honum aftur um borð
í Hólmstein, eftir röð mistaka
að eigin sögn.
Sveinn Örvar heldur áfram að
segja frá þessum spennu-
þmngnu andartökum af mikilli
innlifun í viðtali í nýju TVF,
tímariti Víkurfrétta. „Það var
svo mikill straumur að mig bar
alltaf lengra og iengra frá bátn-
um. Ég var í gúmmígalla og
manni er kennt í Slysavama-
skólanum að koma sér úr gall-
anum þegar maður fellur út-
byrðis, en ég get sagt ykkur
það að það er ekki hægt, maður
kemst ekki úr gallanum. Ég
reyndi þrisvar sinnum að kom-
ast úr honum en ekkert gekk,
ég sökk bara dýpra við það, um
leið og ég hætti að synda þá
sökk ég bara niður. Báturinn
var á hraðferð frá mér og svo
loksins sá ég Hlyn koma aftur á
og hann kveikti strax á pemnni
hvað hafði gerst. Ég sá að hann
fékk algert sjokk og fór að æpa
og kalla, þetta gerist klukkan
átta um morgun 20. desember
Lekinn ekki meiri eða
minni en síðustu ár
Viðgerð á íþróttahúsinu í
Njarðavík kostar 1.155.300
krónur ef gert er við suður-
gluggana til bráðabirgða,
til að stöðva lekann sem er
að eyðileggja parketgólf
íþróttahússins.
Éf hins vegar gert er við til
frambúðar og álgluggar settir
í suöurhlið hússins, eins og
umhverfis- og tæknisvið
mælir með, þá mun við-
gerðin kosta 4.400.000
krónur.
Við úttekt á húsinu sögðu
fyrrverandi og núverandi
forstöðumenn hússins, Ste-
fán Bjarkason og Hafsteinn
Ingibergsson, að lekinn í
húsinu væri hvorki meiri né
minni en undanfarin ár. Þeir
tóku einnig fram að ástandið
væri misjafnt milli ára og
færi það eftir veðráttu hvað
það iæki mikið inn.
Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um það hvenær
verður farið í að gera við
Ljónagryfjuna í Njarðvík.
og það var kolniðamyrkur og
ísjökulkalt. Ég átta mig ekki á
því hvað þetta tók langan tíma,
kannski nokkrar sekúndur eða
mínútur. Ég var farinn að
drekka ansi mikinn sjó og var
að drukkna þegar björgunin
barst, en hún gekk heldur ekki
alveg þrautalaust fyrir sig“,
segir Örvar og það fer um hann
við tilhugsunina um ískaldan
sjóinn. Hlynur skipsfélagi hans
segir að það hafi verið eitthvað
sem kallaði hann aftur á. Hann
viti ekki hvað það hafi verið en 1
skyndilega hafi hann fundið-
sterka þörf til að fara aftur á
bátinn.
Leitað sátta
í máli Lands-
bankansí
Sandgerði
Fulltrúar Bæjarstjórnar
Sandgerðis voru á fundi í
aðalstöðvum Landsbanka
íslands í Reykjavík síðdegis i
gær. Ekkert markvert gerðist
á fundinum í málinu að sögn
fulltrúa Landsbankans og
niun bankaráð ræða þaö
frekar í dag.
Bæjarstjóm Sandgerðis hafði
lagt íram harðorða bókun á
aukafúndi bæjarstjómarinnar
um málefni Landsbankans
þann 3. mars síðastliðinn. Þar
kom fram að ef Landsbankinn
myndi skerða þjónustu við
Sandgerðinga og Sand-
gerðisbæ myndu bæjaryfirvöld
hefja viðræður við aðra banka
eða sparisjóði til að kanna
opnun útibús eða afgreiðslu
sem þjónaði Sandgerðingum
og Sandgerðisbæ með sóma.
Suðumesjaskipin gera það gott á loðnuvertíðinni
Grindvíkingur GK lagði af stað frá Sigluilrði sl. þriðjudag á loðnumiðin, Grindvíkingur landaði
1077 tonnum af loðnu í Siglufirði og fór það allt í bræðslu. Rúnar Björgvinsson, skipstjóri, segir
að Suðurnesjaskipin hafi verið að gera það gott á vertíðinni og sjálfur segist hann eiga eftir að
fara þrjár ferðir til að klára kvótann.
Aflinn sem hann landaði í Sigluftrði veiddist tólf mílur vestur af Garðskaga, en vegna löndunarbiðar í
nálægum höfnum varð Grindvíkingur að sigla til Siglufjarðar með aflann. Enn á flotinn eftir að veiða
yfir 100 þúsund tonn af loðnukvótanum og er Rúnar ekki bjartsýnn á að það náist og segir hann
sérstaklega bagalegt að geta ekki losað skipin fljótt og örugglega þegar komið er að landi. Venjulega
líkur loðnuvertíðinni um mánaðarmótin mars-april en eftir 20. mars gengur veiðin frekar treglegar.
Grindvíkingur er á leið á miðin undan Snæfellsjökli og vonast Rúnar til að þeir geti næst landað í
Helguvík. Hann sagðist hafa frétt af loðnutorfu undan Bolungarvík og ætlaði að athuga hvort eitthvað
væri til í þeirn féttum í leiðinni vestur eftir landinu frá Sigluftrði.
2