Víkurfréttir - 14.03.2002, Qupperneq 12
Leikfélagið Vox Arena frumsýnir söng-
leikinn GRETTI í Frumleikhúsinu í Keflavík
að er geysivinsælt í
framhaldsskóium að
setja upp sönglciki.
Dæmi eru jafnvel um að
nemendur velji sér ákveðna
framhaldsskóla sem eru
frægir fyrir það að setja upp
metnaðarfullar leiksýningar.
Fjölbrautaskóli Suðumesja
ætlar ekki að láta sitt eftir liggja
núna og í samstarfi við
Leikfélag Keflavíkur verður
söngleikurinn Grettir frumsýn-
dur í Frumleikhúsinu fös-
tudagskvöldið 15. mars. Það er
reyndar leiklistarklúbburinn,
Vox Arena í FS, sem er form-
lega í samstarfinu en nýtur
stuðnings skólayfirvalda. Vox
Arena hefúr áður sett upp leik-
sýningar en aldrei í þessum
stærðarflokki sem nú er í væn-
dum. Sýningin er „grand“ eins
og einhver orðaði það og gefur
hinum framhaldsskóla-
sýningunum ekkert eftir.
Við tókum nokkra leikara tali
og spurðum þá spjömnum úr;
Hildur Bjamey Torfadóttir er
20 ára Keflvíkingur og vinnur í
Hagkaup. Hún leikur Sif
gengispíu. „Eg var dregin hing-
að af Höllu Sverris sem vinnur
með mér en hún hefur oft leik-
ið með LK. Mig og vinkonu
mína langaði að prófa eitthvað
nýtt og ákváðum báðar að slá
til. Ég hef aldrei áður leikiðl",
segir Hildur.
Brynja Dögg Jónsdóttir er 18
ára Sandgerðingur og er nemi
við FS. Hún leikur Breddu
gengispíu. „Mig hefur alltaf
langað til að leika í svona stórri
sýningu," segir Brynja, „og
greip tækifærið þegar það
gafst. Ég vissi eiginlega ekki
hvað ég var að fara út í. Það var
búið að vara mig við vinnunni
sem fylgir þessu en maður
neyddist bara til að skipuleggja
tíma sinn betur. Ég á ömgglega
eftir að sakna þessarar vinnu og
félagsskaparins þegar þetta er
allt búið.“
„Mér finnst sjálfshaustið hafa
aukist alveg rosalega við
þetta,“ segir Hildur brosandi
og ég heföi aldrei trúað því að
ég ætti eftir að þora þessu.
Þetta er rosalega gaman og
gefandi. Hópurinn er skemmti-
legur og maður er búinn að
kynnast fúllt af nýju fólki.
Öllum er tekið eins og þeir
em.“
Þær segjast báðar vera búnar að
eignast fúllt af nýjum vinum og
horfa svo hvor á aðra og segjast
ekkert hafa þekkst áður en þær
tóku þátt í söngleiknum. Þær
em famar að hlakka til ffum-
sýningarinnar en þær em líka
aðeins kvíðnar sem þær segja
bara eðlilegt. Þær vonast eftir
ffábærri aðsókn svo þær fái að
sýna sem oftast!
Allir í Frunileikhúsið!
Samstarf lengi staðið til
ormenn félaganna eru
ánægðir með samstarf
Leikfélags Keflavíkur og
Vox Arena. Guðný Kristjáns-
dóttir er formaður LK og
Hildur Helgadóttir hjá Vox
Arena og Hjördís Rós Egils-
dóttir varaformaður Vox
Arena.
„Þetta samstarf hefúr lengi
staðið til,“ segir Guðný, „og nú
er þetta orðið að vemleika.
Þetta er mjög spennandi verk-
efhi og gengið hefúr á ýmsu.
Þessi vinna er allt öðmvísi en
þegar LK hefúr starfað eitt að
sýningu. Þegar svona margir
koma að sýningunni þá þarf
skipulag að vera gott. Fram-
kvæmdastjóm var skipuð og
hefúr hún fúndað reglulega og
tekið púlsinn á stöðu mála.
Þetta hefúr bara gengið alveg
ofboðslega vel. Vonandi verður
þessi vinna til þess að við eign-
umst stærra leikaralið í LK og
þá að þetta unga fólk gerist
einnig meðlimir Leikfélags
Keflavíkur."
„Mér finnst þetta samstarf flott
tilbreyting," segir Hildur, „og
krefjandi fyrir FS-inga. Gaman
að geta sýnt nemendum aðra
hlið á leiklist og frabært að fá
að leika á sviði í alvöru leik-
húsi!“
„Þetta er rosalega gaman,“ seg-
ir Hjördís Rós, „samt krefjandi
og tímafrekt en vel þess virði
að leggja þetta allt á sig.“
Þær vona allar að framhald
verði á samstarfi leikfélaganna
og þar sjá þær fyrir sér sameig-
inlegt leiklistamámskeið sem
endað gæti með sýningu. Það
er hagstætt að sameina þessi fé-
lög. Guðný segist vera þakklát
fyrir allan þann krafl og aðstoð
sem fylgt hefúr öllu tæknilið-
inu sem em nemendur FS en
þeir hafa séð um að búa til
sviðsmynd o.fl. Fjölmiðlaá-
fangi skólans og myndlistar-
deildin hafa einnig tengst þess-
ari sýningu og svo allir þessir
efnilegu ungu leikarar bæði úr
skólanum og annars staðar sem
hafa staðið sig frabærlega. All-
ir í Frumleikhúsið!
að eru eitilhressir
strákar sem láta Ijós sitt
skína í Gretti; Jóhann
Már Smárason er 16 ára
Njarðvíkingur, nemi í Versló.
Hann leikur aðalhlutvcrkið í
söngleiknum, Gretti sjálfan!
Óttar Guðbjöm Birgisson er 18
ára Sandgerðingur, nemi í FS.
Hann leikur drauginn Glám og
gengismeðliminn, Gengis Kan.
Jóhann Már, sem er í námi og
vinnur svo hjá DHL hraðsend-
ingum eftir skóla til klukkan
20.30 á kvöldin, haföi þetta að
segja um þátttöku sína í sýn-
ingunni. „Mig langaði að hafa
eitthvað gaman að gera á
kvöldin og helgar og þetta er
gaman. Ég hef nokkrum sinn-
um áður tekið þátt í leiksýning-
um LK og líkað vel.“
Óttar sem tók þátt í uppfærslu
Vox Arena á söngleiksbroti úr
Hárinu síðastliðið vor vildi
endilega prófa meiri leiklist.
„Eftir að ég tók fyrst þátt í
svona leiklistarvinnu langaði
nrig að prófa að leika í sýningu
sem væri í fúllri lengd. Þetta er
svona rannsóknarvinna hjá
mér, ég er að gá hvort ég sé
leikaraefni!", segir Óttar með
glettni í augum. „Sá sem ég
leik núna er óþokki að nafni
Gengis Kan og ég vona að ég
líkist honum ekki! Ég leik
einnig skugga Grettis, Glám en
þar er ég örlagavaldur drengs-
ins. Mér finnst gaman að leika
Glám en kann ekki við mig í
hlutverki Gengis."
„Ég og Grettir erum stundum
líkir“, segir Jóhann Már íbygg-
inn á svip,“mér finnst gaman
að fylgjast með fjölskyldu
Grettis í söngleiknum því hún
er ffekar klikkuð, svona ekki
eins og fólk er flest! Þessi
vinna er rosalega skemmtileg
og vel þess virði að leggja eitt-
hvað á sig fyrir hana. Ég læt
fátt sitja á hakanum og er frek-
ar langt ffam á nótt að læra!“
„Já, tími manns er fúljskipaður
þessa dagana,“ segh Óttar „ég
er líka í hljómsveit í Reykjavík
og ég á kærustu en þessi leik-
húsvinna er samt búin að gefa
mér rosalega mikið. Það er
gaman að kynnast fúllt af nýju
fólki og fá að láta eins og asni
öðru hvoru.“
Þeir félagar hvetja alla til að sjá
söngleikinn Gretti. „Sýningin
er flott! Hún er upplifún fyrir
áhorfendur. Þeir finna alls kon-
ar lykt í salnum á meðan á sýn-
ingu stendur og því má segja
að hún sé konfekt fyrir næstum
öll skynfæri, alla vega augu,
eyru og nef!“ segja þeir Ottar
og Jóhann Már að lokum.
Guðný Kristjánsdóttir er tormaður LK og Hildur Helgadóttir
hjá Vox Arena og Hjördís Rós Egilsdóttir varaformaður Vox
Arena.
12