Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 29.08.2002, Side 4

Víkurfréttir - 29.08.2002, Side 4
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is ÚTGÁFAN Útgefandi: Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 260 Njarðvik Simi 421 0000 (15 línur) Fax 421 0020 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, simi 421 0007, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, simi 421 0002, hbb@vf.is Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigurjónsson, sími 421 0001, franz@vf.is Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir, sími 421 0008, kristin@vf.is, Jófriður Leifsdóttir, sími 421 0009, joftidur@vf.is Blaðamaður: Sævar Sævarsson, simi 421 0004 sjabbi@vf.is Hönnunarstjóri: Kolbrún Pétursdóttir, simi 421 0005, kolla@vf.is Hönnun/umbrot: Kolbrún Pétursdóttir, kolla@vf.is, Stefan Swales, stefan@vf.is Skrifstofa: Stefania Jónsdóttir, sími 421 0012, stebba@vf.is Aldís Jónsdóttir simi 421 0010, Útlit, umbrot og prentvistun: Víkurfréttir ehf. Prentvinnsla: Prentsmiójan Oddi hf. Dreifing: íslandspóstur Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is Aðrir fjölmiðlar Vikurfrétta ehf. eru: Timarit Víkurfrétta, The White Falcon og Kapalsjónvarp Víkurfrétta. MUNDI Ætlar Grétar Óla að leggjast á hnén hjá Jóni Sýsla FRÉTTR Hitaveita Suðurnesja hf. skoðar virkjun á Reykjanesi Hitaveita Suðurnesja hf. vinnur nú að umhverfis- mati á borsvæðum á Reykja- nesi og vegna 220 kV iínu í tengslum við raforkuöflun fyr- ir stækkun álvers Norðuráls. Rannsóknir eru að hefjast á hvernig best verði að vinna orkuna úr svæðinu, en vegna hærra hitastigs, seltu og meira cfnainnihalds er svæðið á Reykjanesi að ýmsu leyti erfið- ara til virkjunar en Svartseng- issvæðið. Þá er unnið að áætl- unargerð um kostnað og fyrir- komulagi fjármögnunar slíkr- ar virkjunar, því að sjálfsögðu verður þessi virkjun að vera arðbær til að í hana verði ráð- ist, segir Júlíus Jónsson for- stjóri HS á vefsvæði fyrirtækis- ins. Nú hafa aukist líkur á því að stækkun álvers Norðuráls geti átt sér stað innan þeirra tímamarka sem miðað hefur verið við, þ.e. á árinu 2005. Landsvirkjun og Norðurál hafa undirritað viljayfirlýsingu þar sem fram koma þau meginatriði sem semja þarf um en eftir úr- skurð Skipulagsstofnunar um Norðlingaöldu virðast miklar lík- ur á að sá íyrirvari í viljayfirlýs- ingunni reynist óþarfur, en Norð- lingaalda hefur verið talin helsti þröskuldur þess að af stækkun- inni geti orðið. Landsvirkjun hefur síðan verið að ræða við HS hf. og Orkuveitu Reykjavíkur um þátttöku í orku- öfluninni og heflir þeim viðræð- um miðað ágætlega. Helstu álitamál svo sem flutn- ingskostnaður raforkunnar virð- ast vera leyst og vandséð að samningar geti ekki gengið upp. Miðað er við að 70 MW komi frá Landsvirkjun og um 40 MW frá Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja hf. hvoru fyrir sig, en 150 MW þarf vegna stækkunar álversins um 90 þús. tonn. Miðað við 40 MW virkjun má telja líklegt að virkjunin verði hönnuð a.m.k. tvisvar sinnum stærri en síðan í þessum áfanga einungis gert það sem nauðsyn- legt er vegna 40 MW áfanga. Fyrri áfanginn verður þá tiltölu- lega dýrari, en tvöfóldunin þá þeim mun hagkvæmari. Kennarar búnir að stilla saman strengi sína Kennarar í grunnskólum á Suðurncsjum eru búnir að stilla saman strengi sína fyrir skólaárið sem var að hefjast á mánudag. Þann 21. ágúst var haldinn samráðs- fundur kennara á þjónustu- svæði Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar þ.e. úr Reykjanesbæ, Sandgerði Garði og Vogum. Fundurinn var haldinn í Heið- arskóla og sóttu hann hartnær 200 kennarar. Aðalfýrirlesari var Jón Bald- vin Hannesson sem kallaði er- indi sitt: Betri skóli - betra samfélag. Mjög góður rómur var gerður að framlagi hans. Að fyrirlestri hans loknum var kennarahópnum skipt upp í vinnuhópa sem fjölluðu bæði um erindi Jóns og samstarf kennara og skóla. Harður árekstur á Reykjanesbraut við Voga Harður árekstur varð laust fyrir klukkan fimm á sunnudag á Rcykjancsbraut við Voga. Ekki fengust upplýs- ingar um tildrög slyssins en talsvert eignatjón varð. Þá var þrennt flutt á Heilbrigðisstofn- un Suðurnesja með áverka eft- ir slysið. Fjarlægja þurfti bíl- ana af vettvangi með kranabif- reið._____________________ Fjórtán kærðir fyrir umferðarlagabrot í Keflavík Lögreglumenn á vakt í Kefla- vík í dag voru í sektarham svo margir fengu það óþvegið. Fjórtán trassar, sem ekki höfðu fyrir þessu handtaki að fcsta á sig bílbelti, geta nagað sig í handarbakið yfir myndar- legri sekt fyrir athæfíð. Alltaf má þó leggjast á hnén hjá Jóni Fysteinssyni sýslumanni eöa starfsfólki hans og fá afslátt, sé greitt innan fárra daga. Það kostar hins vegar ekki neitt að festa á sig beltið og heimilis- bókhaldið má örugglega ekki við útlátum sem þessum. Spennum beltin! Clinique ráðgjafi verður í Apóteki Keflavíkur, föstudaginn 30.ágúst kl. 12-18. NYTT! Long Pretty Lashes Mascara Verið velkomin, Apótek Keflavíkur Snyrtivörudeild Suðurgötu 2 - Keflavík Ef þú kaupir tvo hluti frá Clinique, er þessi gjöf þín: • Long Pretty Lashes Mascara 4.g • Dramatically Different Moisurizing Lotion 15. ml. • 7 Day Scrub Cream Rinse-Off Formula 30.ml. • High impact Eye shadow Duo 1.1 g. • Different Lipstick Rasperry Glace 4.g. • Healthy Shine Serum for Hair 15.ml. • Asamt renndri fyrir förSunarvörur og aðrar nauðsynjar. • VerSgildi gjafarinnar er kr. 6.900,- 4

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.