Víkurfréttir - 29.08.2002, Blaðsíða 8
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
FRETTIR
MANNLÍF
Ferðamaður í ógöngum
og skemmdi bílaleigubíl
Björgunarsveitin Þorbjörn
fékk á sunnudag bciðni
um aöstoð við vegfaranda á
ísólfsskálavcgi. Ferðamaður á
bíialeigubifreið hafði misst
stjórn á bifreiðinni og ekið
útaf.
Þegar björgunarsveitarmenn
höfðu dregið bifreiðina upp á
veg kom í ljós að tjón hafði
orðið á bifreiðinni við útafakst-
urinn og var hún óökufær.
Björgunarsveitarmenn óku því
með ferðamanninn til Hafnar-
íjarðar. Þetta var annað slysið
sama daginn á ísólfsskálavegi.
Hafnaði langt
utan vegar
Mildi er að ekki varð slys á
fólki þegar fólksbifreið
hafnaði langt utan vegar á
mótum Djúpavatnsvegar og
ísólfsskálavegar, austan
Grindavíkur síðdcgis á
sunnudag.
Kona með þrjú börn missti
stjóm á bifreiðinni en það
varð fólkinu til happs að bílnum
hvolfdi ekki. Tilkynnt var um
óhappið til lögreglunnar í
Keflavík.
800 ökumenn sektað-
ir á Reykjanesbraut
Samtals er búið að stöðva
og sekta 800 ökumenn
sem óku of hratt á Reykja-
nesbraut þaö sem af er þessu
ári. Það á við hlutann sem
liggur frá Keflavíkurflugvelli
að Hvassahrauni.
Talsvert hefur verið um
hraðakstur á brautinni að und-
anfömu að sögn lögreglunnar í
Keflavík.
Erill hjá lögreglu
og þjófar á ferð!
Nokkuö erilsamt hefur ver-
ið hjá lögreglunni í Kefla-
vík um helgina. Næturvakt-
irnar hafa haft í nógu að snú-
ast í tengslum við skemmt-
anahald á Suðurncsjum en
skemmtistaöirnir voru vel
sóttir þessa helgina. Þá hafa
þjófar einnig verið á ferðinni
og hafa lögreglumenn fengið
tilkynningar í morgunsárið
um innbrot og skemmdar-
verk á bílum.
Brotist var inn í bifreið við
Hólmgarð síðustu nótt og úr
henni stolið myndavél og
hljómdiskum. Þá var farið inn í
gröfur, bæði í malarnámum í
Stapafelli og einnig í Keflavík
og hljómtækjum og fjarskipta-
búnaði stolið. Þessi innbrot em
ennþá óupplýst og þeir sem
upplýsingar geta gefið eru
hvattir til að hafa samband við
lögregluna í Keflavík.
DAGLEGAR FRETTIR
Á VF.IS
austvörurnar strevma ínn
Kvenpeysur frá Skovhuus
Kvenbuxur frá Cero
Útigallar, úlpur j
og flísfatnaður
%
'alóma
Víkurbraut 62 - sími 426 8711
2
GERÐAHREPPUR
Gerðaskóli
Skólaliða vantaií 60% starf, þarf
að geta hafið störf sem fyrst.
Skólastjóri
ASMUNDUR LEIKUR „U0SALAGIГ
FYRIR LEIKSKÓLABÖRN
Ásmundur Valgeirsson, höfundur „Velkomin á Ljósanótt" mætti
með gítarinn á leikskólann Gimli fyrir helgi og spilaði sigurlagið
og nokkur önnur fyrir börnin á leikskólanum. Mikil gleði var á
leikskólanum og börnin tóku undir í viðlaginu og mátti heyra
sönginn út á götu. (samtali við Víkurfréttir sagði Ásmundur að
„bókanir fari hægt af stað" en fyrirhugað væri að spila lagið fyrir
vistfólk á Hlévangi á Ljósanótt. Aðrir leikskólar hafi ekki verið í
sambandi, enda segir Ásmundur að Gimli eigi í sér hvert bein,
þar sem hann hafi verið á Gimli sem patti.
Víkurfréttamynd/Hilmar Bragi.
Námsáætlun 2002-2003
Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ
Námskeið/kúrsar í myndlist á vegum Félags myndlistarmanna
í Reykjanesbæ starfsárið 2002-2003.
FYRIR ARAMOT:
Miövikudagar
11.09-23.10= 7 vikur:
Módelteikning - kennari Jón Ágúst Pálmason
30.10-11.12= 7 vikur:
Vatnslitir - kennari Ásta Árnadóttir
Fimmtudagar
12.09-24.10= 7 vikur:
Byrjendur í olíumálun - kennari EiríkurÁrni Sigtryggsson
31.10-12.12= 7 vikur:
Abstrakt málun - kennari Kristinn Pálmason ____
EFTIR ÁRAMÓT:
Miðvikudagar
15.01-05.03= 8 vikur:
Vatnslitir - kennari Eric Hearn
12.03-30.04= 8 vikur:
Málun með áherslu á litameðferð og spaða - kennarí Sossa
Almennt verð:
7 vikna námskeið kr. 7.000.
8 vikna námskeið kr. 8.000.
Félagar:
7 vikna námskeið kr. 6.000.
8 vikna námskeið kr. 7.000.
Öll námskeiðin standa
frá kl. 20-23.
Fimmtudagar
16.01-06.03= 8 vikur:
Abstrakt - kennari Kristinn Pálmason
13.03-24.04= 7 vikur:
Portrait teikning og málun - kennari Eric Hearn
Skráning er hjá formanni félagsins,
Hjördísi Árnadóttur í síma 421 3389
eða 862 5299 og varaformanni
Þóru Jónsdóttur ísíma 421 5197.
Stjórnin
Skaut með loftbyssu
í andlit drengs
Fimmtán ára piltur skaut
með loftbyssu í andlit ellefu
ára drengs á Suðurnesjum á
þriðjudagskvöld. Plastkúla var
í loftbyssunni og hafnaöi hún í
andliti drengsins, rétt fyrir
neðan auga.
Atvikið var tilkynnt lögreglunni
í Keflavik og mætti hún á stað-
inn og gerði þijár loftbyssur upp-
tækar.
Með höfuðáverka eftir
bílveltu á Garðvegi
■ ■
Okumaöur og farþegi voru
fluttir á Heilbrigðisstof-
nunar Suöurncsja eftir bílveltu
á Garðvegi í Berghólabeygj-
unni, skammt frá golfvellinum
í Leiru, skömmu eftir miönætti
í fyrrinótt. Farþegi í bílnum
hlaut höfuðáverka í slysinu og
liggur á sjúkrahúsi.
Ökumaður bifreiðarinnar fékk
að fara heim að lokinni skoðun.
Bifreiðin er ónýt og var flutt á
brott með kranaþifreið.
NYTT TIMARIT
VÍKURFRÉTTA
KEMUR ÚT
FÖSTUDAGINN
6. SEPTEMBER
8