Víkurfréttir - 29.08.2002, Page 12
Lestu Víkurfréttir a Netinu daglega a sloðinm www.vf.is
35. tölublað • fimmtudagurinn 29. ágúst 2002
UMHVERFISMAL
UMHVERFISMAL
Verðlaunagarðurinn fyrir árið 2002 er að
Oddnýjarbraut 1. Eigendur hans eru María
Björnsdóttir og Birgir Kristinsson.
Verðlaunahafar með viðurkenningar sínar.
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Snyrtilegt umhverfi í Sand-
gerði fær viðurkenningar
Umhverfisráð Sandgerðis-
bæjar veitti íu gærkvöldi
umhverfisverðlaun Sandgerð-
isbæjar fyrir árið 2002 á veit-
ingarhúsinu Vitanum og af því
tilefni var bæjarstjórn og verð-
launahöfum boöið til kaffisam-
sætis.
Sólrún Anna Símonardóttir og
Jóhann Harðarson hafa unnið
ótrauð að endumýjun húsnæðis
og umhverfis húss síns við
Strandgötu 18 sem nú hýsir fyrir-
tækið Jöklaljós. Húsið er orðið
hið glæsilegasta og umhverfið í
kring er til sóma. Umhverfisráð-
ið er sammála um að fleiri mættu
taka sér þau til fyrirmyndar og er
stolt að því að veita þeim viður-
kenningu fyrir snyrtilegt um-
hverfi, húss og lóðar fyrirtækis.
Valborg Jónsdóttir og Högni
Jensson eru eigendur Hjarðarholt
sem er hús númer 19 við Tún-
götu. Þetta er gamalt hús sem
búið er að taka miklum breyting-
um. Lóðin í kring er stór og til
mikills sóma og ber þess merki
að mikil alúð er lög í vinnuna.
Þau fengu viðurkenningu fyrir
endurbætur á eldra húsnæði og
lóð.
Friðrik Björnsson og Þórhildur
Sigurðardóttir eru nýflutt að Suð-
urgötu 22. Allir Sandgerðingar
hafa séð þetta hús risa á mettíma
og er hreint unun að sjá hve allt
hefúr gegnið vel. Þama er allt til
fyrirmyndar, bæði hús og lóð.
Með þessari viðurkenningu vill
ráðið hvetja fleiri til að taka þau
sér til fyrirmyndar en þau hafa
sýnt okkur að lóðin þarf ekki að
bíða lengi þegar nýbygging hefur
risið, eins og svo oft vill verða.
Þau fengu viðurkenningu fyrir
skjótan og góðan frágang á ný-
byggingu og lóð.
Verðlaunagarðurinn fyrir árið
2002 er að Oddnýjarbraut 1. Eig-
endur hans eru María Björns-
dóttir og Birgir Kristinsson. Það
er ekki hægt að segja annað en
að þessi garður sé hreint listaverk
þar sem hugsað hefur verið fyrir
öllu. Lýsingin er falleg þannig að
garðsins er hægt að njóta jafnt að
kvöldi til sem og að degi. Hann
er vel skipulagður og hönnunin
hreint frábær.
Umhverfisráð Sandgerðisbæjar
sér fram á að hafa nóg að gera í
framtíðinni þar sem umhverfis-
mál voru ofarlega á lista hjá
flestum í nýliðnum kosningum
og telur afhendingu viðurkenn-
inganna ágætis byrjun á sam-
starfinu. Ráðið er stolt að því að
veita þessar viðurkenningar og
vonar um leið að þær verði öðr-
um til hvatningar.