Víkurfréttir - 29.08.2002, Qupperneq 17
35. tölublað • fimmtudagurinn 29. ágúst 2002
TITILL SÍÐU
5. umferð íslandsmóts Lýsingvr
^ % torfœrujer frdm við Stapafell,
^x\ laugardaginn 31. ágúst.
Keppnin hefst klukkan 13.
Styttist í Bláa lónshlaupið 2002
Jakob Hermansson, betur þekktur sem Kobbi í Töff, opnaði nýja
tískufataverslun sl. föstudag á sama stað og Töff var áður til
húsa. Nýja verslunin heitir Park og er ætluð báðum kynjum á
öllum aldri en eins og flestir vita var Töff eingöngu herrafataver-
slun. í versluninni verður boðið upp á bæði hversdagsföt sem
og spariföt ásamt hinum ýmsu smávörum. Eru Suðurnesjamenn
hvattir til að líta við og skoða úrvalið.
í september eða á meðan
birgðir endast.
Til afgreíðslu í
Samkaup, Njarðvík.
Fyrsta Bláa lóns hlaupið
vcrður haldið laugardaginn
31. ágúst. Boðið verður upp á 6
og 12 km hlaup. Bláa lóns
hlaupið er samvinnuverkefni
Bláa lónsins og Grindavíkur-
bæjar og er haldið í tilefni opn-
unar nýs vegar milli Grinda-
víkur og Bláa lónsins. Aðrir
styrktaraðilar hlaupsins eru:
Flugleiðir, Sparisjóðurinn í
Keflavík, Þingvallaleiö og Vífil-
fell.
Skráning hefst kl 11:00 á bað-
staðnum við Bláa lónið. Að
skráningu lokinni verður þátttak-
endum ekið með Þingvallaleið til
Grindavíkur og hefst hlaupið þar
kl 13:00. Hlaupið endar á bað-
staðnum við Bláa lónið þar sem
öllum þátttakendum verður boð-
ið í lónið. Þátttakendur fá einnig
Powerade drykkinn í boði Vífil-
fells og auk þess verðlaunapen-
ing og bol.
Keppt verður í 6 og 12 km vega-
lengdum karla og kvennaflokki
og verða verðlaun veitt fyrir fyrs-
ta, annað og þriðja sæti. Aðal-
verðlaun hlaupsins eru úrdráttar-
verðlaun sem eru ferð fyrir tvo
að eigin vali til einhvers áfanga-
staðar Icelandair i Evrópu. Verð-
launin eru í boði Icelandair.
Tveir handteknir
við neyslu fíkniefna
í Keflavík
Lögreglan í Keflavík stóð tvo
menn að neyslu fíkniefna
við eftirlit í bænum aðfar-
arnótt laugardags. Lögreglu-
menn gengu framhjá tveimur
mönnum sem voru að neyta
fíkniefna skammt frá veitinga-
stað. Þeir reyndu að fela efnið
þegar lögregla hafði afskipti af
þeim.
Við leit fannst lítilræði af efhi
sem er talið vera amfetamín.
Mennimir voru teknir höndum,
en sleppt að lokinni skýrslutöku.
Gærdagurinn var síðan rólegur
eftir því sem fram kemur á
fréttasíma lögreglunnar.
Þátttökugjald er kr. 1.000,- fyrir
fullorðna og kr. 500,- fyrir böm.
Nánari upplýsingar em veittar í
síma 420 8800 og á netfanginu
lagoon@bluelagoon.is
Dregið hefur verið í netleik Glóðarinnar og vf.is
og hafa eftirtaldir aðilar trnnið hádegisverð fyrir tvo:
Netleikur Glóðarinnar Arna Björk Hjörleifsdóttir Berglind Kristinsdóttir
og vf.is Arnar Bjarki Arnoddsson Guðmundur Kristmundsson
Aðgangseyrir er krónur 1.000,-
Frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
Verið velkomin
Akstursíþróttafélaq Suðurnesja.
Heimasíða Samkaupa er: www.samkaup.is
17