Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 29.08.2002, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 29.08.2002, Blaðsíða 20
VANGAVELTUR í VIKULOKIN Það er af sem áður var Hefur haustið færst fram eða er þaö bara skólaganga barnanna sem hringir inn þessa árstíð. Mig minnir að við hufum bara verið að tína ber í rólegheitunum í enduðum ágúst hér áður fyrr. Einhvern veginn fannst manni að haustið næði hámarki l.okt. þegar skólarnir byrjuðu já svona eft- ir réttirnar. En það var auðvit- að i fornöld eins og börnin scgja. Bæjarfélagið tekur á sig nýja mynd þegar skólarnir byrja og allt heimilislifið fer að snúast um nesti, nýja skó og heimanámið. Mér varð á að minnast á vekjara- klukku um daginn, hvort nem- andinn þyrfti ekki vekjara- klukku? Spurningin þótti mjög hallærisleg því nú væru allir með gemsa. En greinarhöfundur hefur þann meingalla að geta ekki náð tök- um á tækninni með sama hraða og aðrir heimilismenn. Hef ekki enn lært að finna út þetta með SMS og gengur illa að læra að chilla. Spurði meira að segja bamið um daginn hvernig þetta orð chilla væri skrifað og fékk mikinn vandlætingarsvip og umvöndun- arræðu. Hver man ekki eftir íýrsta skóla- deginum sínum? Við sem fædd erum um miðja síðustu öld segj- umst stundum muna hvað allt virtist einfalt i þá daga. Maður fór í gamla bamaskólann og þar var tekið lestrarpróf hjá Guð- laugu og Jónu og eftir því var raðað í bekki. Ekki þurfti að hafa áhyggjur af miklum bókakaup- um, vasatölvum, matarkortum, strætókortum, umferðaröryggi, kennaraskorti, einelti eða þess háttar samfélagsvanda. í minn- ingunni virkar þetta allt svo ein- „Mér varð á að minnast á vekjara- klukku um dag- inn, hvort nem- andinn þyrfti ekki vekjaraklukku? Spurningin þótti mjög hallærisleg því nú væru allir meðgemsa. “ WKBBBBtSKISStBSUBSBSt falt en kannski var það bara ein- fold veröld bamsins sem maður man. Foreldramir voru eflaust í sambærilegu basli með að lifa af og nú. Auðvitað er það nostalgía að vera að rifja upp svona atburði sem eru síðan sautján hundruð og súrkál eins og afleggjarnir kalla það. Eg hef alla vega lært það núna þegar ungamir em að fljúga úr hreiórinu að röksemda- færslan um að þetta hafi nú ekki verið svona eða hinsegin í mínu ungdæmi er úreld og steingeld. Svo er það þetta með að keyra og sækja. Ef ég voga mér að segja að ég hafi notað fætuma og labb- að í skólann og meir að segja á handboltaæfingar í gamla Kross- inum alla leið út í Njarðvík og hafi ekki talið það eftir mér. Fæ ég alltaf sama svarið. Þaó var bara af því pabbi þinn átti ekki Stórviðburðir í menningar- lífi Reykjanesbæjar Já það cr óhætt að hefja skrif mín á þessari yfirskrift. Kosningar nýafstaðnar, nýr bæjarstjóri nieð nýjar hug- myndir og nýjar áherslur sem eiga eflaust eftir að koma þessu bæjarfélagi til góöa í náinni framtið, enda mikil þörf á ef litið er á þróun versl- unar og þjónustu við Hafnar- götuna þar sem allt viröist í dauðateygjunum eða þannig! Sömu sögu er ekki hægt að segja um vakninguna í iista og menningargeiranum. Þar eru Itlutirnir að gerast. Má af mörgu taka þar en hæst stendur náttúrulega val á lagi fyrir þessa hátíð okkar sem fór vonum framar, 52 lög send inn auk beinnar útsendingar á Skjá einum. Ljósanótt verður haldin nú í þriðja sinn vonandi enn glæsilegri en áður enda úrval manna og kvenna þar við stjóm ásamt mörgum öðrum bæði ein- staklingum og fýrirtækjum sem unnið hafa hvíldarlaust að því að gera þetta að stórviðburði ! Já ég segi stórviðburði því þessi fyrsta helgi í september hér i bæ er orðin það vel þekkt og góð afspurnar fýrir okkur bæjarbúa að undrun sætir. Ég held að fólk eigi eftir að tala um Ljósanótt okkar löngu eftir að menning- arnótt í Reykjavík verður löngu gleymd, á því er ekki nokkur vafi í mínum huga.“ Hvað hald- ið þiö t.d. að flugeldasýningin í Reykjavík hafi staðið lengi"? Við getum öll verið stolt af þessum aðilurn öllum sem hönd hafa iagt á plóginn til að gera þennan menningarviðburð að því sem hann er í dag. Með samstilltu átaki gerast hlutimir. Ég sit nú annað árið í röð í stjóm Félags myndlistarmanna í Reykjanesbæ. Okkur þ.e stjóm- inni hefur tekist að rífa félagið úr þeirri lægð sem það var í með samstilltu átaki og sam- vinnu, vekja áhuga fólks á list og menningu, verið í samstarfi við önnur féiög til að setja sam- an eitthvað gaman og skemmti- legt. Sem dæmi má nefna uppá- komuna í portinu við Svarta pakkhúsið í fýrra en þar vorum við í samstarfi við leikfélagið. Nú verðum við með kynningu á Ljósanótt nteð verkum sem staðsett verða víða í bænum sem síðan verða boðin upp 7. sept.væntanlega undir stjórn Kjartans Más Kjartanssonar enda stóð hann sig eins og hetja í fyrra. Þá verður galleríið í fremri sal pakkhússins og sam- sýning nokkurra valinna lista- manna í innri sal, Júlíus Samú- elsson sýnir ein 50 verk á efri hæð hússins og ég ætla ekki að láta mitt eftir liggja. Ég ætla að ríða á vaðið og opna myndlista- sýningu undir yfirskriftinni „Böm náttúrunnar" fimmtudag- inn 5. september kl.20.00 - 22.00 í vetrarsal gólfklúbbs Suðurnesja inn í portinu gengt Svarta pakkhúsinu. Hún verður að sjálfsögðu öllum opin alla ljósahelgina fi-á kl. 14.00 og eitt- hvað ffameftir næstu viku þar á eftir. Auk þess veit ég af sýningum m.a hjá Guðrúnu Baðstofufor- manni og sjö eldri baðstofu- meðlimum.Það verður því nóg að gera fýrir alla listunnendur af öllu landinu vonandi að sjá, heyra og njóta alls þess er i boði verður þessa miklu og stóru helgi sem framundan er. Ágætu bæjarbúar við skulum síðan öll fýllast stolti þegar ís- lendingur siglir inn Keflavíkina, vikjunt á burt öllu svartsýnis- bauli og afturhaldshugsunum og stöndum saman að því að gera þennan bæ að þvi sem hann á að vera, okkur öllum til sóma. Góða skemmtun Hermann Árnason Hermann Árna- son situr í stjóm Félags mynd- listamianna í Reykjanesbæ. 20

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.