Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 29.08.2002, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 29.08.2002, Blaðsíða 23
35. tölublað • fimmtudagurinn 29. ágúst 2002 SPORTIÐ Grindvíkingar völtuðu yfir Fylkismenn Grindvíkingar sigruðu Fylki 3-1 á heimavelli sl. sunnu- dag í Símadeildinni i knatt- spyrnu. Grindvíkingar léku á alls oddi í leiknum og unnu verðskuldaðan sigur. Mörk hcimamanna skoruöu Óli Stef- án Flóventsson, Grétar Hjart- arson og Scott Ramsey. Grindvíkingar eru sem stendur í 3. sæti deildarinnar með 25 stig og eiga því enn raunhæfa mögu- leika á titlinum þó svo það sé nokkuð langsótt að þeir nái að klófesta hann úr því sem komið er. KR er í efsta sæti með 31 stig og Fylkir í 2. sæti með 30 stig. Tap hjá lánlausum Keflvík- ingum gegn ÍA Keflvíkingar töpuðu, 2-0, gegn ÍA í Simadeild karla í knatt- spymu sl. sunnudag á heimavelli. Keflvikingar voru mjög daprir í leiknum og áttu til að mynda ekki eitt einasta marktækifæri allan leikinn að undanskildu ein- um skalla á markið undir lokin. Bæði mörk Skagamanna komu í seinni hálfleik en gestimir voru miklu betri í leiknum. Keflvíkingar em því enn með 16 stig i deildinni, jafnt og ÍBV, og eru sem stendur í 8. sæti. Þeir geta í raun þakkað fýrir það að liðin sem em fyrir neðan virðast ekki ætla að sækja mikið fleiri stig sem gæti orðið það sem tryggir þeim áffamhaldandi sæti í deildinni. Njarðvfkingar nánast öruggir með sæti í 1. deild Keflavík - I V: 0 - 2 Grindas ík - F\ Ikir: 3 - I VF-iiiaöur lciksins: Oinar .lóhaniissoii laraldur (iuömundsson (llafur Ivar Jónsson liysteinn I lauksson Seott Ramsey Grétar l Ijartarson l lelui Guðfinnsson BLAK 20 KONUM HÉR Á SUÐURNESJUM VANTAR BLAKÞJÁLFARA EINU SINNI í VIKU UM KLST. í SENN. ÆFT ER Á MÁNUDÖGUM KL. 21. ÁHUGASAMIR HAFI SAMBAND VIÐ KOLLU í SÍMA 895 6492. Júdó íVogum ]údó hefst aftur 3. september í íþróttahúsinu íVogum kl. 19. Þjálfari er Maggi Hauks. Ungmennafélagið Þróttur,Vogum. Njarðvíkingar sigruöu KS, 3-2, í 2. deild karla í knatt- spyrnu á Njarðvíkurvelli á laugardag þar sem mikill fjöldi áhorfenda mætti til að styðja þá grænklæddu. Mörk Njarð- víkinga skoruðu markamask- ínurnar Sævar Gunnarsson, með tvö mörk, og Eyþór Guðnason. Þessi sigur gerir það að verkum að Njarðvikingar em í mjög góð- um málum í 2. deildinni og nán- ast með ömggt sæti í 1. deild að ári. Njarðvíkingar eru með 36 stig í 2. sæti en KS er í 3. sæti með 32 stig og aðeins tveir leikir eftir. Næsti leikur Njarðvíkinga er gegn Leikni á heimavelli og sigur tryggir þeim sæti í 1. deild. Möguleikar á sæti í 2. deild úr sögunni Reyni Sandgerði tókst ekki að komast áfram í undan- úrslit 3. dcildarinnar í knatt- spyrnu í ár þrátt fyrir að tapa einungis cinum leik í allt sum- ar. Reynir lék við Leikni i 8-liða úr- slitum og töpuðu þeir fyrsta leiknum á útivelli, 1-0. Þýddi það að Reynir þurfti að sigra heimaleikinn með tveimur mörkum til að komast áfram. Reynismenn komu ákveðnir til leiks á heimavelli sínum en þrátt fyrir að sigra í leiknum, 3-2, komust þeir ekki áfram og Sandgerðingar komnir í fri. Vom það því Leiknismenn sem komust áfram á fleiri mörkum skomðum á útivelli. Mörk Reyn- is í leiknum skomðu Smári Guð- mundsson, Pálmar Guðmunds- son og Eysteinn Már Guðvarðar- son. Innritun Innritun í alla hópa hjá sunddeild Keflavíkur veröur föstudaginn 30. ágústfrá kl. 17-20 og laugardaginn 31. ágúst frá kl. 10-12 í Félagsheimili Keflavíkur að Hringbraut 108. Upplýsingar í síma 849 9040. SÚNDSKÖLI í HEIÐARSKÓLA (börn frá 1 árs til 5 ára) SUNDÆFINGAR í SUNDHÖLL ' (börn frá 6 ára til 12 ára) SUNDÆFINGAR í SUNDMIÐSTÖÐ t (börn frá 12 ára og eldri) FULLORÐINSSUND í SUNDHÖLL % (ath. hér er ætlunin að bjóða upp á 2 hópa, byrjendahóp fyrir fólk sem vill læra að synda, svo lengra komna) Við innritun verður að ganga frá æfingagjöldum. Ath. hægt er að staðgreiða eða greiða með Vísa/Euro. Stjórnin Sunddeild Keflavíkur 23

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.