Morgunblaðið - 24.05.2016, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11
Kemi ehf | Tunguhálsi 10 | 110 Reykjavík | S: 415 4000 | kemi@kemi.is | www.kemi.is
LYKTAREYÐANDI NIÐURBROTSEFNI Í FERÐASALERNI
Inniheldur öfluga náttúrulega ensímblöndu sem vinnur á
úrgangi og pappír á 24 klst og skiptir þá engu hvaða gerð
pappírs er. Hentar mjög vel þar sem þarf að tæma ferða-
salernið á hverjum degi. BIO-PAK veitir hratt niðurbrot og
góða lyktareyðingu.
Inniheldur einstaka efnablöndu sem vinnur á úrgangi og
pappír á 3-4 dögum og hefur einstaklega mikla og góða
virkni í lyktareyðingu. Hentar vel þar sem ekki þarf að
tæma ferðasalernið á hverjum degi.
Inniheldur næringarefni fyrir bakteríur ásamt
ensímum til að fjarlæga ólykt. Brýtur hratt og vel niður
úrgang og klósettpappír. Smyr ventla og heldur skynja-
rafbúnað hreinum. Hentar fyrir húsbíla, rútur, báta, skip,
safntanka og rotþrær. BIO-ACTIVE er vistvænt efni.
BIO-PAK - Tropical og Fresh Scent
PORTA-PAK - Lavender og Fresh Scent
BIO-ACTIVE - Tropical og Fresh
PORTA-PAK Lavender Vörunúmer: PPRV10LAV
PORTA-PAK Fresh Scent Vörunúmer: PPRV10
BIO-PAK Tropical Vörunúmer: BIOTROPBG
BIO-PAK Fresh Scent Vörunúmer: BIOPPBG
BIO-ACTIVE 4,9L Vörunúmer: BAHT168
BIO-ACTIVE 1,8L Vörunúmer: BAHT40
botn í farangursrýminu. Einhverjir
kunna að fetta fingur út í geymslu-
rýmið sem glatast en sá sem þetta
ritar lítur á það sem vel ásætt-
anlegan fórnarkost þegar litið er til
þess sem fæst í staðinn, auk þess
sem skottið er eftir sem áður býsna
plássgott. Koltvísýringsgildið er
nefnilega ekki nema 84 g á kílómetr-
ann sem þýðir að GLE 500e fellur í
núllflokk í innflutningi og er því á
einkar hagstæðu verði. Grunngerð
GLE kostar 10.990.000 krónur og
það telst gjafverð fyrir þennan bíl.
Sá sem reynsluekinn var er reyndar
með áðurnefndu AMG-útliti sem
kostar aukalega ásamt ýmsum öðr-
um búnaði og kostar rétt um 14
milljónir. Alvörupeningur, víst er
það, en það fæst mjög ríflega fyrir
verðið og díllinn telst hreint fyrirtak.
Of langt mál er að telja upp allan
búnaðinn sem bíllinn hefur til að
bera en þó er vert að minnast á
bakkmyndavélina, sem er eiginlega
loftmyndavél, réttara sagt. Myndin
sem fæst á skjáinn í mælaborðinu er
sumsé eins og mynd úr lofti tekin og
sýnir ekki bara það sem fyrir aftan
bílinn er, heldur líka það sem er sitt
hvorum megin við hann – sem dróni
flygi í 5 metra hæð yfir bílþakinu og
sendi upptökuna rakleiðis í bílinn.
Fyrir bragðið er hægastur vandinn
að bakka inn í hvaða stæði sem vera
skal og munar um slíkt þegar ekið er
um á jeppa.
Og þakið, vel á minnst; víðfeðmt
glerþak sem gerir farþegum kleift
að strjúka frjálst höfuð. Að minnsta
kosti líður manni þannig.
Verulega sterkur kostur
Undirrituðum tókst að aka á raf-
magni einu saman í röska 20 kíló-
metra (framleiðandinn segir að
hægt sé að ná 30) og það er út af fyr-
ir sig gott og blessað. Þeim er þetta
ritar finnst engu að síður stærstu
punkturinn fólginn í því að sportj-
eppi frá Mercedes-Benz, gersam-
lega hlaðinn búnaði af öllu tagi og
hreint út sagt stórkostlega skemmti-
legur í akstri, er tollaður í núllflokk
og er eftir því á hagstæðu verði.
Samkeppnin í þessum flokki er hörð
og helstu keppinautarnir, einkum
Porsche Cayenne og BMW X5,
munu þurfa að taka á honum stóra
sínum í samkeppninni við hann
þennan.
Í AMG-pakkanum eru meðal ann-
ars þessar hörkuflottu felgur. Bíll-
inn steinliggur á vegi og beygir
sem á brautarteinum væri.
Farangursrýmið líður aðeins fyrir plássið sem rafhlaðan tekur en skottið
er engu að síður býsna rúmgott, ekki síst ef aftursætin eru felld niður.
Margir bílar í núverandi Benz-fjölskyldu hafa einkar fallega innfelld púst
og þar á meðal eru GLE-jepparnir. Virkilega haganleg hönnun.
Mercedes-Benz
GLE 500e
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Reynsluakstur
3.0LV6 bensínvél
333 hö / 480 Nm
7 gíra sjálfskipting
(7G Tronic Plus)
0-100km: 5.3 sek
Hámarkshraði: 245 km/klst
Fjórhjóladrifinn
19“ álfelgur
Eigin þyngd: 2.465kg
Farangursrými: 480l
Mengunargildi: 78g-84gCO/km
Verð frá: 10.990.000 kr
3.3-3.7 l/100 km
Umboð: Askja