Morgunblaðið - 24.05.2016, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.05.2016, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ | 23 Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is - V E R K S T Æ Ð I Ð - Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Bílar fyrirtækja eru atvinnutæki sem treysta þarf á og því mikilvægt að bilunum sé haldið í lágmarki og endursöluvirði í hámarki. • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen og Skoda. • Bein tölvutenging við upplýsingabanka framleiðenda. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. • Bílson býður þjónustuskoðanir, smurþjónustu og allar almennar bifreiðaviðgerðir. SÉRSNIÐIN ÞJÓNUSTA AÐ BÍLAFLOTA FYRIRTÆKJA Atvinnubílar og Volkswagen að innkalla um 630.000 bíla til að ráða bót á þessu vandamáli. Að sögn Der Spiegel og Monitor var útblástursstjórnbún- aður Opel Astra forritaður á þann veg að hann virkaði aðeins þegar lofthiti væri yfir 17°C, sem í raun þýðir að hann hefur verið óvirkur mestan part ársins. Hreinsibúnaðurinn bara í gangi í prófum? Ítalski bílsmiðurinn Fiat hefur ekki viljað tjá sig um hvers vegna hann er kallaður inn á teppið hjá KBA-nefndinni í Berlín í þessari viku. Hefur Fiat og ítrekað harð- neitað notkun ólöglegs búnaðar til að hagræða útblásturslosun bíla sinna með klækjabrögðum. Þýski samgönguráðherrann Alexander Dobrindt segir að taka þurfi eitt til- tekið Fiat-módel til rannsóknar en við skoðun þess hjá KBA-nefndinni kom í ljós að bíllinn slökkti á útblást- ursstýringunum rétt eftir hin op- inberu mengunarpróf nefndarinnar. Hermt er að bíllinn hafi verið af gerðinni Fiat 500X. Beinist athyglin að því hvort Fiat hafi brúkað sér- stakan búnað til að blekkja meng- unarmælitæki skoðunarstöðva. Op- inbert mengunarmælipróf tekur um 20 mínútur en í ljós kom að meng- unarvarnir nokkurra Fiat-bíla slökktu á sér eftir að hafa verið 22 mínútur í gangi. Af hálfu þýskra samgöngu- yfirvalda hefur því verið haldið fram að módelin Opel (og Vauxhall) In- signia og Opel Zafira losi of mikið af lofttegundinni nituroxíði (NOx). Síð- ar tilkynntu bílsmiðirnir að þeir hefðu ákveðið að innkalla viðkom- andi bíla og gera á þeim bragarbót. VW kallaði yfir sig mestu kreppu í sögu sinni í september í fyrra er af- hjúpað var að fyrirtækið hafði laum- að forritum inn í stjórntölvur um 11 milljóna dísilbíla í þeim tilgangi að blekkja mengunarmælibúnað. Sér enn ekki fyrir endann á afleiðingum þess fyrir þýska bílsmiðinn gam- algróna. agas@mbl.is Mengunarvarnabúnaður Opel Zafira reyndist aðfinnsluverður. meiri, eða 22% í fyrra, 2015. Og það sem af er ári þykir ljóst að rafbíl- arnir eru á frekari uppleið. Til þessa hefur rafgolf VW selst mest frá síðustu áramótum í Noregi. Nissan Leaf er enn sem komið er al- gengasti rafbíllinn þar í landi og er í öðru sæti það sem af er ári. Í þriðja sæti er BMW i3. Í fjórða sæti er svo Tesla Model S og í því fimmta Re- nault ZOE, sem aftur á móti er sölu- hæsti rafbíllinn í Evrópu allri. agas@mbl.is Áfram heldur rafbílasala að slá öll met í Noregi, engin þjóð kaupir eins mikið af rafbílum og Norðmenn, í hlutfalli við íbúafjölda. Rafbílar höfða hins vegar misjafnlega til kynjanna. Ný og víðtæk könnun, sem grein- ingafyrirtækið InFact gerði fyrir raforkudreifingarfyrirtækið Fjord- kraft, leiðir í ljós að hlutfallslega fleiri konur en karla langar í nýjan rafbíl. Einnig kemur fram að konur eru jákvæðari gagnvart rafbílum en karlar. Þegar á heildina er litið virðast rafbílar höfða nokkuð sterkt til Norðmanna. Meðan 43% sögðu raf- bílakaup af sinni hálfu tiltölulega líkleg, sögðu 14% þau afar líkleg. Öndverðrar skoðunar voru hins veg- ar 37% og skoðast jákvæðir því 63%. Sömuleiðis kom í ljós að konur eru jákvæðastar fyrir því að brúka rafbíl til daglegra nota. Sögðust 63% þeirra myndu gera það en hjá körl- um var hlutfallið 50%. Hlutdeild raf- og tvinnbíla í Evr- ópu er enn sem komið er aðeins rétt rúmlega eitt prósent af heildinni. Í Noregi var skerfur þeirra margfalt Konur sólgnari í rafbíla en karlar Renault ZOE er mest seldi rafbíllinn í Evr- ópu það sem af er ári en í Noregi er hann bara í fimmta sæti, á eftir VW e-Golf, Nissan Leaf, BMW i3 og Tesla Model S. Kynin hafa ólíkar áherslur í bílakaupum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.