Morgunblaðið - 24.05.2016, Side 12
Þ
að er óneitanlega tilhlökk-
unarefni þegar út spyrst
að von sé á nýjum sportara
frá Porsche. Þó setti und-
irritaður í brýrnar þegar hann fékk
pata af því að hinn nýi Boxster væri
fjögurra strokka, í stað sex sem hann
var síðast, og óttaðist að einhver
bannsett reglugerðin hefði sniðið
honum svo þröngan stakk vegna út-
blásturs eða einhvers annars. Það
reyndust með öllu ástæðulausar; að
sönnu er hinn nýi Boxster fjögurra
strokka en það kemur síst að sök því
bæði eru hestöflin fleiri, togið meira
og útblástursgildið lægra. Þýsk
hönnun og hugvit heldur áfram að
koma á óvart.
Þvílíkur gírkassi,
þvílíkar skiptingar!
Iðulega fer reynsluakstur fram í
sjálfskiptum bílum en í þetta sinnið
mátti velja um beinskiptan 6 gíra eða
sjálfskiptan 7 gíra með PDK
(Porsche Doppel-Kupplungs-
getriebe) skiptiflipum í stýri. Að
fenginni reynslu kaus ég beinskiptan
því það verður að segjast eins og er
að Þjóðverjarnir í Zuffenhausen-
hverfi Stuttgart búa til óviðjafn-
anlega gírkassa. Þvílík skemmtun,
þvílíkar skiptingar! Öll virkni og
svörun er svo hnökralaus að eftir
stutta stund finnst manni nánast
sem hugarorkan sé að skipta um gír.
„Að verða eitt með með bílnum“ er
óttalega lummuleg klisja en hér er
satt að segja innistæða fyrir þessum
frasa.
Vélin er sem fyrr segir flöt fjög-
urra strokka, grunngerðin í Boxster
er 2.0 lítra og skilar 300 hestsöflum á
meðan Boxster S er 2.5 lítra og skil-
ar 350 hestum með túrbínu. Búið er
að endurhugsa undirvagninn frá
grunni (ha ha ha) til að ráða betur við
skarpar beygjur og snúninga. Það er
óhætt að segja að verkfræðingar
Porsche hafa hér haft erindi sem erf-
iði því bíllinn liggur hreint maka-
laust vel og sú beygja fyrirfannst
ekki í Portúgal þar sem undirrit-
aður varð að draga úr hraða til að
höndla beygjuna; að því gefnu að
engin væri fyrirstaðan þá sigldi bíll-
inn áfram á sínum hraða – og bara
beygði. Áreynslulaust. Sérstaklega
á þetta við þegar bíllinn er stilltur á
Sport eða Sport +, þegar fjöðrunin
er hert til almennilegs hraðaksturs.
Þess má geta að hnappinn fyrir
þessar akstursstillingar er að finna
á nýjum stað í stýri Porsche 718
Boxster og er það vel. Í stað þess að
þurfa að fálma í miðjustokkinn þarf
ekki annað en að teygja þumal
Leiktæki fyrir lengra
Því verð
Eitt af því sem gerir nýja Boxsterinn svipmeiri eru loftinntökin.
Boxsterinn er ekki síðri þegar hann er í góðviðrisstillingu, án þaksins.
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Porsche 718
Boxster
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Reynsluakstur
2,497 cm3 bensín
350 Hestöfl /420 Nm
PDK 7- gíra sjálfskipting
4,2 sek 0-100km
m/Sport Chrono pakka
Hámarkshraði 285km/klst
Afturdrif
19“ álfelgur
Eigin þyngd: 1.385kg
Farangursrými: 150l skott að
framan og 125l skott að aftan.
Samtals: 275l
Mengunargildi: 167g/kg
Verð á 718 Boxter frá:
10.770.000 kr
Eyðsla: 7,3 l/100 í bl. akstri
Umboð: Bílabúð Benna
Það þarf ekki að fjölyrða um útlitið