Morgunblaðið - 24.05.2016, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 24.05.2016, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ | 17 Flestar kvartanir sem berast norsku neytendasamtökunum varða bíla. Á toppi lista yfir bíla sem mest er kvartað vegna eru BMW og Tesla. „Þetta eru dýrar vörur sem dýrt er að gera við og margir eru háðir. Því geta þær auðveldlega orðið að bitbeini og efni í rifrildi,“ segir Inge- borg Flønes, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, við blaðið VG. Að hennar sögn bárust ráðinu um 8.000 kvartanir á árinu 2015 og snerust 1.897 þeirra um kaup og sölu bíla. „Merkið sem oftast var klagað yfir var BMW. Og í öðru sæti er Tesla. Vörðuðu kvartanir vegna Tesla nær allar afköst bílsins. Eigendur sögðu þau í engu samræmi við það sem inn- flytjandinn hefði auglýst,“ segir Flø- nes. Í sætum þrjú til fimm yfir um- kvörtuð bílmerki voru Audi, VW og Mercedes. Flønes segir að útblást- urshneykslið tengt Volkswagen hafi lítil sem engin áhrif haft á tölfræði þessa. agas@mbl.is Loforð seljenda standast ekki Tesla Model S skilar norskum eigendum ekki afköstunum sem auglýst eru. Mest verið kvartað undan BMW og Tesla Dýrar viðgerðir geta orðið bíleig- endum til mikils ama. Í framhaldi af útblásturshneykslinu sem kennt er við Volkswagen og upp komst í fyrrahaust hafa yfirvöld víða veitt því nánari athygli hvort losun gróðurhúsalofts og eldsneyt- isnotkun bíla séu í samræmi við það sem framleiðendur hafa gefið upp. Þetta hefur þýtt að nokkrir bíl- smiðir hafa lent í vandræðum, nú síðast Mitsubishi og Suzuki. Banda- ríski bílrisinn General Motors (GM) er heldur ekki óhultur en þar á bæ hefur orðið uppistand eftir að ljóstr- að var upp um að framleiðandinn hafði gefið upp rangar tölur um eldsneytisnotkun stórs jeppa. Reyndar er um að ræða bíl sem seldur er undir þremur nöfnum, sem Chevrolet Traverse, GMC Acadia og Buick Enclave. Stöðvaði GM sölu á öllum þessum módelum í síðustu viku sem þýddi í raun að 60.000 eintök voru dregin af mark- aði. Fyrsta dómsmálið hefur verið hafið á hendur GM vegna þessa og í ljósi þess að jafnan er krafist him- inhárra bóta í bandarískum dóms- málum hefur General Motors brugð- ist skjótt við stefnunni. Að sögn fagrita hefur GM dregið upp áætlanir sem fela í sér að 170.000 eigendum framangreindra bíla verða hverjum og einum boðnar bætur að upphæð sem svarar um 2,6 milljónum íslenskra króna. Bílrisinn bandaríski heldur því fram að hinar röngu bensín- eyðslutölur hafi orðið til fyrir yf- irsjón. Sökinni er skellt á íhluti í vél- búnaði sem brúkaður var í bílunum í fyrra og tengist mengunarvörnum í þeim. Segist GM hafa uppgötvað mistökin sjálfur þegar unnið var að útreikningum á losun 2017- módelanna á gróðurhúsalofti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem það uppgötvast í Bandaríkjunum að raunveruleg eldsneytisnotkun er ekki í samræmi við uppgefnar tölur framleiðanda. Árið 2012 þurftu kór- esku bílsmiðirnir Hyundai og Kia að greiða himinháar bætur vegna slíkra mála en þar áttu í hlut um 900.000 bílar. Hópmálsókn leiddi til þess að bílsmiðurinn varð að punga út sem svarar um 50 milljörðum ís- lenskra króna í bætur til kaupenda bílanna. agas@mbl.is Kenna yfirsjón um rangar eyðslutölur Notar of mikið bensín Chevrolet Traverse er meðal jeppanna sem málið varðar. Margir láta eyðslutölurnar ráða valinu á bíl. Fjölbreytt þjónusta við bíla og tæki » VERSLUN » DIESELVERKSTÆÐI » VARAHLUTAÞJÓNUSTA » TÚRBÍNUVIÐGERÐIR OG SALA » SÉRPANTANIR Dvergshöfða 27 - 110 Reykjavík - blossi.is - blossi@blossi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.