Morgunblaðið - 24.05.2016, Side 19
Dacia á siglingu í Danmörku
Dacia Duster hefur reynst geysivinsæll jepplingur.
Rúmenski bílaframleiðandinn Dacia
er að ná föstum tökum á Dönum,
sem sýnt hafa ódýrum bílum dóttur-
fyrirtækis hins franska bílsmiðs Re-
nault vaxandi áhuga.
Staðreyndin er sú að Dacia er það
merki sem vaxið hefur hraðast í
Danmörku fyrstu þrjá mánuði árs-
ins; um 48% frá sama tímabili á fyrra
ári. Seldust 1.267 eintök af Dacia--
bílum frá áramótum til marsloka, en
þau voru 833 á sama tímabili í fyrra.
Nýskráðum Dacia-fólksbílum
fjölgaði um 31%, úr 765 í 1.005, og
hefur Dacia Duster-jepplingurinn
verið vinsælasta módelið. Þá þykir
eftirtektarvert að Dacia seldi 262
Dokker-atvinnubíla á fyrsta fjórð-
ungi í ár miðað við 68 í fyrra.
agas@mbl.is
Rúmenarnir á blússandi ferð
MORGUNBLAÐIÐ | 19
Trygglyndur Toyota-eigandi frá
bænum Houma í Louisiana-ríki í
Bandaríkjunum hefur dottið í
lukkupottinn. Bílsmiðurinn jap-
anski hefur verðlaunað hann fyrir
að hafa ekið Toyota Tundra pall-
bíl milljón mílur, eða rúmlega 1,6
milljónir km, á undanförnum níu
árum.
Victor Sheppard hefur ekið um
200 þúsund kílómetra á ári, aðal-
lega á ferðum sínum milli ríkjanna
Virginíu og Norður-Dakóta.
Sheppard keypti bíl sinn nýjan ár-
ið 2007, en bíllinn var með þeim
fyrstu sem smíðaðir voru í sam-
setningarverksmiðju Toyota í Tex-
as. Upprunaleg vél er enn í hon-
um, gírkassi og lakk.
Sheppard hefur hugsað vel um
bíl sinn, því hann hefur 117 sinn-
um komið til eftirlits hjá þjónustu-
fyrirtæki einu frá því hann eign-
aðist hann. Nú eru verkfræðingar
og tæknimenn Toyota ólmir í að
fá Tundruna til að taka bílinn í
sundur og rannsaka hvort þeir
geti fundið út hvers vegna allir
íhlutir hans hafa enst svo vel hina
gríðarlegu notkun. Sú þekking
ætti að geta komið sér vel til að
búa til og þróa enn endingarbetri
bíla í framtíðinni, segja fulltrúar
Toyota.
„Að hafa í höndunum milljón
mílna bíl sem er nánast eins og
nýr eftir alla þessa notkun, með
upprunalegum íhlutum, er eins og
að finna nál í heystakki,“ segir
fulltrúi tæknideildar Toyota í
Bandaríkjunum. „Mannskapurinn
áformar að rífa bílinn í sundur
eins og hann leggur sig, frá toppi
til táar og frá framstuðara til aft-
urstuðara, til að meta hvernig
gæði og öryggi við smíði bílsins
hafa gert honum kleift að þola
meira en milljón mílur á veg-
unum,“ bætir hann við.
Fyrir þennan notaða en vel með
farna bíl fær Sheppard annan bíl
að launum. Það þarf svo sem ekki
mikið hugarflug til að ímynda sér
hvaða bíl hann valdi. Auðvitað
splunkunýjan Toyota Tundra og
verður það sextándi pallbíllinn af
þessari gerð sem hann eignast um
ævina. Toyota Tundra er betur
þekkt utan Bandaríkjanna sem
Toyota Hilux.
agas@mbl.is
Toyotan eins og ný eftir
milljón mílur á vegunum
Victor Sheppard við Tundruna sem rifin verður í rannsóknarskyni.
Mílumælirinn að detta í milljónina
eftir níu ár í umferðinni.
Lögreglan í Mílanó á Ítalíu hefur
tekið kraftmikla Alfa Romeo Giulia
Quadrifoglio bíla í þjónustu sína.
Ekki til að eltast við illvirkja eða
aðra þrjóta á vegum landsins, held-
ur til að bjarga mannslífum.
Quadrifoglio er sérstaklega
kraftmikil sérútgáfa af Giulia bíln-
um frá Alfa Romeo. Mílanólög-
reglan mun brúka tvo slíka fyrst og
fremst til að flytja líffæri og blóð
vegna neyðaraðgerða á sjúkra-
húsum. Einnig munu þeir gegna
hlutverki fylgdarbíla þegar um sér-
stakar opinberar athafnir er að
ræða.
Engar fregnir fara af vélbúnaði
bílsins aðrar en þær að vélin sé 505
hestafla V6-vél með tvöfaldri for-
þjöppu. Dugar hún til þess að koma
bílnum úr kyrrstöðu í 100 km hraða
á aðeins 3,8sekúndum sem segir að
snerpan sé all veruleg. Quadrifol-
gio er aflmesti Giulia-bíllinn í bíla-
línu Alfa Romeo.
agas@mbl.is
Á fleygiferð með líffæri
Lögreglubílar til bjargar lífum
Lögreglan mun komast hratt yfir á
nýja Alfa Romeo Giulia Quadrifog-
lio bílnum kraftmikla.