Víkurfréttir - 27.03.2003, Side 9
Hlutabréf í eðli sínu
langtímafjárfesting
Sl. fimmtudag hélt íslandsbanki í
Keflavík morgunverðarfund á
Flughótelinu fyrir viðskiptavini
og aðra áhugasama. Yfirskrift
fundarins var „Efnahagshorfur
og eignastýring í breyttu um-
hverfi".
Una Steinsdóttir, útibússtjóri setti
fundinn, en síðan íjallaði Ingólf-
ur Bender hagfræðingur hjá
Greiningu Islandsbanka og fjall-
aði um helstu þætti í umhverfi ís-
lenskra fyrirtækja og hvernig
bankinn telur líklegt að þeir rnuni
þróast næstu árin í ljósi væntan-
legra stóriðjuframkvæmda á
Austfjörðum. I umfjöllun Ing-
ólfs kom m.a. fram að álvers-
framkvæmdir kæmu á mjög
heppilegum tíma fyrir þjóðarbúið
og þrátt fyrir gríðarlega stærð
þess væri nægur tími til að
bregðast við því með réttum hag-
stjórnaraðgerðum. Hann var
m.a. spurður hvort hann héldi að
þetta hefði áhrif á fyrirtæki hér á
Suðurnesjum. Ingólfur taldi að
það væri kannski erfitt að sjá
beina tengingu, en margfeldisá-
hrifin væru mikil og hefðu áhrif
á alla landsmenn og landshluta í
mismiklum mæli þó. Það væri
einnig mjög mikilvægt að hvert
og eitt fyrirtæki athugaði vel
hvort þarna væru einhver raun-
hæf tækifæri og gerði áætlanir i
samræmi við það. Jóhann
Omarsson forstöðumaður hjá
Eignastýringu íslandsbanka tal-
aði síðan um breytt umhverfi á
verðbréfamörkuðum og þróun
hlutabréfa almennt. Jóhann lagði
mikla áherslu á að hlutabréf
væru í eðli sínu langtímafjárfest-
ing og að menn ættu að forðast
að kúvenda um íjárfestingasteíhu
þrátt fyrir tímabundna niður-
sveiflu. Það væri einfaldlega eðli
hlutabréfamarkaða að sveiflast
mikið.
VINSTRIHREYFINGIN
grœnt framboð
Virkar velferðarkerfið?
Opinn fundur Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs í Suðurkjördæmi
í kosningamiðstöðinni, Hafnargötu 54, Keflavík
fimmtudaginn 27. mars
Frummælendur:
Harpa Njálsdóttir, félagsfræðingur: Fátæktá íslandi.
Hjördís Árnadóttir, félagsmálastjóri: Hvernig bregst
félagsþjónustan í Reykjanesbæ við þegar að þrengir?
Fundarstjóri:
Þórunn Friðriksdóttir,
frambjóðandi í 2. sæti
Fundurinn hefst klukkan 20 - Allir velkomnir
Fjöltefli
Björn Dúason,
sjómaður í Sandgerði og frambjóðandi
býður í fjöltefli í kosningamiðstöðinni
Föstudaginn 28. mars.
Fjölteflið hefst klukkan 20 - Allir velkomnir
Súrefnisvörur
KarinHerzog^
20%
o
kynningarafsláttur
afallri
Karin Herzog
línunni
I Hollywood eru „OXYGENS BARS“ þar sem stjörnurnar koma í „l\
FACIALS“ frá KARIN HERZOG og endurheimta ferskleikann eftir
strangar upptökur. Nú gefst þér líka tækifæri að prófa án endurgjalds,
svo komdu og leyfðu okkur að dekra við þig. ...fegurð og ferskleiki
Kynning á morgun
föstudag. r
aemmmmmmmmaammmmmnmemaammmmmmamamtammaaÆ
Verið velkomin,
Apótek Keflavíkur
Snyrtivörudeild
Félag Alzheimerssjúklinga stofnað
Þriðjudaginn 18.febrúar sl. var haldinn fundur í
Kirkjulundi og stofnuð deild FAAS (Félag áhuga-
fólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og ann-
ara minnissjúkra) og mætttu um 40 manns á fund-
inn. María T. Jónsdóttir formaður félagsins í
Reykjavík kynnti starfsemi félagsins og G. Gerður
Sæmundsdóttir hjúkrunarfræðingur á Landspítala
Háskólasjúkrahúsi kynnti hlutverk og starfsaðferðir
minnismóttöku á Landakoti. Kosin var neíhd til að
halda utan um starfsemi deildarinnar og ákveðið var
að fundir skyldu haldnir fyrsta þriðjudag hvers
mánaðar yfir veturinn. Tilgangur deildarinnar er að
koma saman og fá fræðslu um sjúkdóminn og
knýja á úrbætur fyrir sjúklinga.
Næsti fundur verður haldinn í Kirkjulundi þriðju-
daginn l.april n.k kl. 20. Allir þeir sem áhuga hafa
eru hvattir til að mæta.
LEIKFÉIAG KEFLffllíNIR
Unglingadeild
Leikfélags Keflavíkur
sýnir í Frumleikhúsinu
w
Þetta er allt
Snjólfur“
Höfundur: Guðjón Sigvaldason.
Leikstjóri: Kjartan Guðjónsson.
Frumsýning föstudaginn 28. mars, kl. 20.
2. sýning laugardaginn 29. mars, kl. 20.
3. sýning sunnudaginn 30. mars, kl. 20.
Miðasalan opnuð kl.18. sýningardagana.
Miðaverð kr. 1200.-
Miðapantanir í síma 421 2540.
VÍKURFRÉTTIR 12.TÖLUBLAÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 9