Víkurfréttir - 27.03.2003, Blaðsíða 18
Fermingarmyndirnar
tilbúnar í veisluna!
Fermingarmyndir lifa og
fylgja einstaklingnum
lengi eftir, enda er ferm-
ingin stór tímamót í lífi hvers
og eins. Víkurfréttir ræddu við
Oddgeir Karlsson og Sólveigu
Þórðardóttur og spurðu þau út
í fermingarmyndatökumar.
Oddgeir Karisson, Ljósmynda-
stofu Oddgeirs
„Það er engin ein tíska í gangi í
dag í sambandi í fermingar-
myndir og það er mjög skemmti-
legt, ijölbreytileikinn er mikill.
Það koma þó ár þar sem einhver
ein tíska er ráðandi," segir Odd-
geir, en í dag eru fermingar-
myndirnar oft teknar áður en
fermingin fer ífam: „Fólk er far-
ið að notfæra sér það að láta
mynda fermingarbamið og jafn-
vel fjölskyldur áður en ferming-
ardagurinn rennur upp. Með
þessu er fólk að losna við stressið
á fermingardegi og að vera jafn-
vel komin með myndirnar í
hendumar á fermingardaginn."
Hafnargötu 52 • 230 Keflavík • Sfmi 421 3337
Kaffitár gerir gott boð betra
Góðir gestir fá gæðakaffi sem hæfir kræsingum fermingarborðsins.
Hátíðakaffi, Ijúft og gott með tertum og brauði.
Sólarglóð, bragðmikið og einstakt kaffi með konfekti eða kransaköku.
ATH! Þessar tegundir eru á sérstöku fermingartilboði í 500g pokum.
liflfflTÍH
www.kaffitar.is
Kringlan 588 0440
Bankastræti 511 4540
Njarðvík 421 2700
'f s r / / i' 1 / j £| ii jr £jj íj *f á'
Sléttujárn
kr. 2.980,-
Skrifborðslampar
frá kr. 2.360.-
Hárblásarar
frá kr. 2.580.-
FERMINGINARGJAFIRNAR
Heimbíóin frá Sony
vinsælar gjafir
■ Samhæfni í Reykjanesbæ
I er hægt að fá margt til
U fermingargjafa. Þar eru hin
ýmsu tölvutilboð ef fólk vill fá
mikið fyrir peninginn. Sam-
hæfni er þjónustuaðiii fyrir
HP-Compac og eru þeir með
góð tiiboð á ferðartölvum frá
þeim. „Við erum einnig með
hijómtæki, sjónvörp, vid-
eótæki, dvd spiiara og digital
myndavélar svo dæmi séu tek-
in“, segir Bjarni Sigurðsson
hjá Samhæfni.
Hann segir að heimbíóin frá
Sony séu vinsælar gjafir en þau
eru á mjög góðu verði. „Við
erum með X-box leikjatölvuna
og mikið úrval tölvuleikja. Hægt
er að láta sérsmíða tölvur eftir
ósk en þá kemur viðskiptavinur-
inn til okkar með verðhugmynd
og hvað hann vilji í tölvuna og
við smíðum hana“. Úrvalið í
Samhæfni er mjög fjölbreytt og
er sjón í raun sögu rikari.
Ingibjörg Jónsdóttir
í Apóteki Keflavíkur.
Snyrtivörur vinsælar
fermingargjafir
Apótek Keflavíkur er í
raun eina alvöru snyrti-
vöruverslunin í Reykja-
nesbæ. Snyrtivörur eru vinsæl-
ar fermingagjafir, sérstaklega
þar sem krakkar byrja oft að
nota slíkar vörur á fermingar-
aldrinum.
Ingibjörg Jónsdóttir í Apóteki
Keflavíkur segir að verslunin sé
með alhliða snyrtivörur fyrir
dömur og herra og þar sé mjög
gott úrval. „Hjá dömunum er Na-
omi Campell-Mystery ilmurinn
og body-lotion mjög vinsælt
ásamt Cindy Crawford og Glow
frá J-Lo. Hjá strákunum er
Tommy T og Clinique Happy
inni. Einnig eru góðir dömu og
herra ilmirnir frá DKNY og
Ralph Lauren ásmt fjölmörgum
öðrum góðum“, segir Ingibjörg.
Hún segir að það sé mjög vinsælt
að viðskiptavinimir láti starfsfólk
Apóteksins gjafapakka vörunum
íýrir sig því að kostnaðarlausu.
18
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!