Víkurfréttir - 27.03.2003, Síða 27
Stríðið milli Keflavíkur og
Njarðvíkur í 4-liða úrsl-
itum Intersport-deildar-
innar í körfuknattleik er hafið.
Keflvíkingar sigruðu fyrsta
leikinn með 44 stigum í Kefla-
vík en leikur tvö fór fram í
gærkveldi áður en blaðið fór í
prentun. Itarleg umfjöllun um
leikinn ásamt myndasyrpu er
að finna á www.vf.is!
Gunnar Einarsson, leikmaður
Keflavíkur, sagði í samtali við
VF-Sport að fyrsti leikurinn
hefði verið mjög auðveldur en
Keflvíkingar hefðu hins vegar
verið fljótir að koma sér niður á
jörðina. „Eg bjóst engan veginn
við þessu. Við vorum að spila
okkar besta leik í vetur og þegar
svo er þá getur ekkert lið stoppað
okkur. Við munum hins vegar
ekki fara svona létt í gegnum
þetta einvígi og því er mikilvægt
að koma sér niður á jörðina aft-
ur”, sagði Gunnar. Hann sagði að
allir leikir væru mjög mikilvægir
í úrslitunum og því þyrfti liðið að
rnæta í alla leiki og beijast til síð-
ustu sekúndu. „Það sem við þur-
fum að passa í leik Njarðvíkinga
er að loka á skotin þeirra, líkt og
við gerðum í leik eitt. Við þurf-
um einnig að passa að Teitur fari
ekki að hrökkva í gang“.
Tindastóll jafnaði metin
Grindavík tapaði gegn Tinda-
stóli,108:101, i 2. leik liðanna í
4-liða úrslitum á þriðjudag og
eru liðin því búin að vinna sinn
hvorn leikinn. Leikurinn var jafn
til að byija með og skiptust liðin
á að hafa forystuna. Tindastóll
náði hins vegar góðu forskoti í
hálfleik, 58:48, og eftir það létu
þeir forystuna aldrei af hendi og
sigruðu. Helgi Jónas Guðfinns-
son var bestur hjá gestunum með
33 stig en Darrell Lewis kom
næstur með 22 stig.
Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari
Grindvíkinga var ekki nógu sátt-
ur með sína menn eftir leikinn á
Króknum, þá sérstaklega vamar-
leikinn. “Þetta var mikill sóknar-
leikur hjá báðum liðum, nokkuð
hraður leikur. Hvað mitt lið
varðar þá var ég nokkuð sáttur
við sóknarleikinn, hann var betri
en í undanfomum leikjum. Það
sem ég var óánægður með var
hversu slaka vöm við lékum.
Finnst þér Tindastóll sterkara
Iið en þú bjóst við?
„I sjálfu sér ekki. Ég sá Tindastól
leika tvisvar í 8-liða úrslitum og
sá þá hversu vel þeir voru að
leika. Þeir em með fína blöndu af
leikmönnum, leikmenn sem
skora inn í teig og svo fyrir utan.
Þeir em með þetta kjöijafhvægi
sem getur verið svo mikilvægt
hjá liðum að hafa“.
Hvernig „peppar“ þú menn
upp fyrir þriðja Ieikinn?
„Það ætti ekki að vera erfitt, við
munum mæta tilbúnir að leika al-
mennilega vörn. Það þarf að
vinna þijá leiki og fyrr en það er
búið er ekki hægt að slaka á. Það
skipta allir leikir máli þó vissu-
lega sé hægt að segja að einhver
leikur skipti meira máli en ann-
ar“.
Hvaða lið fer í úrslit?
„Grindavik fer í úrslit".
Okkur langaði meira í úrslit
Keflavíkurstúlkur eru
komnar í úrslit 1. deild-
ar kvenna í körfuknat-
tleik eftir tvo sigra gegn
nágrönnum sínum úr Njarð-
vík. Þar mæta þær KR-ingum
sem hafa komið sterkar inn í
undanförnum Ieikjum en þær
sigruðu Grindavík í oddaleik í
4-liða úrslitum. Anna María
Sveinsdóttir, þjálfari Kefla-
víkurstúlkna saðist að vonum
ánægð með það að vera komin
í úrslit. „Við duttum út í fyrra
þannig að þctta var alveg
kærkomið", segir Anna María
í samtali við VF-sport.
Hún sagði að fyrri leikurinn við
Njarðvík hafi verið vel leikinn
hjá Keflavík og sigurinn
auðveldur. „I seinni leiknum
spiluðum við ekki eins vel, við
hittum mjög illa vorum að taka
léleg skot en þær aftur á móti
hittu mjög vel sérstaklega fyrir
utan 3ja stiga línuna. Þann leik
unnum við á fráköstunum og
baráttu. Okkur langaði meira í
úrslitin".
Hvernig lýst þér á Ieikina við
KR?
„Mér líst mjög vel á þá leiki.
Þetta hafa verið hörkuleikir þess-
ir tveir sem liðin hafa spilað eftir
að KR liðið varð fullmannað,
þannig að ég á ekki von á öðru
en að þetta verði skemmtilegir
úrslitaleikir".
Hvað leggur þú upp með fyrir
leikina?
„Þetta er allt undir okkur sjálfum
komið, við vitum að við erum
illviðráðanlegar þegar við náum
að spila okkar leik og allar spila
saman sem lið. Um leið og við
forum á eitthvað „egotripp" þá
lendum við í vandræðum. Við
verðum náttúrulega að stoppa
kanann þeirra. Hún er mjög
öflug inni í teignum og eins eru
þær með sterka leikmenn innan-
borðs. Við erum með meiri
breidd og við munum nýta okkur
það“.
Hefur þú áhyggjur af
einhverju fyrir leikina?
„Nei það er nú ekkert sem ég hef
stórar áhyggjur af, ef liðið mætir
tilbúið í leikina þá hef ég engar
áhyggjur".
Ætlið þið ykkur ekki sigur?
„Ekki spuming, ætlum við ekki
að vinna tvöfalt?"
Sport-Spurning
Úrslitakeppnin í körfunni er komin á fullt og nú gefst íþrótta-
áhugamönnum tækifæri á því aö spyrja körfuboltakappana á
Suðumesjum spurninga að eigin vali!
Ef þú hefur áhuga á því að spyrja uppáhalds leikmanninn í þínu
liði, t.d. Friðrik Stefánsson í UMFN, spurningar skaltu senda okkur
spuminguna á nctfangiö saevar@vf.is undir nafiiinu sportspurning.
Með þaif að fylgja nafn leikmanns, liðs og nafn spyrjanda.
Við á Víkurfréttum höfum svo sambandi við íþróttakappana og
leggjum fyrir þá spuminguna. Ein eða fleiri slíkar spumingar munu
svo birtast með svari í VF-sporti!
VÍKURFRÉTTIR 12.TÖLUBIA0 FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003 27