Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.04.2003, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 15.04.2003, Blaðsíða 11
 DAGUR í LÍFI ÚTFARARSTJÓRA • UNGT FÓLK ( ÚTLÖNDUM 1. tölublað 5. árgangur Blað nr. 19 • apríl 2003 Verð kr. 459,- m/vsk. Bakarahjónin úr Grindavik misstu 40 kg. Keflvískur aðstoöar- forstjóri Orkuveitu 1 Reykjavíkur Vmkonur í Keflavík: Setja vinina á veraldarvefinn! Siggi Ingimundar: Gifti sig í laumi! ÁRSHÁTÍÐIR GÓUGLEÐILIONESSA UTSKRÚÐUGT Ódýrasta tímarit á íslandi Aðeins 459 kr. Kristín María Birgisdóttir 23 ára Grindavíkurmær hefur verið á Ítalíu síðustu 5 mánuði þar sem hún vinnur með samtökum sem vilja stuðla að sann- gjarnari viðskiptum við Afríku. í skemmtilegu viðtali segir hún frá Iffsreynslu sinni með mannúðarsam- tökum á Ítalíu. Karen Lind Tómasdóttir og Björg Áskelsdóttir af Suður- nesjum sem hafa verið dugleg- ar við að taka myndir á djamminu á Suðurnesjum. Þær segjast hafa gaman af því að mynda fólk skemmta sér, en segja að ekki sé hægt að birta allar myndirnar. Bakarahjónin í Grindavík, Sig- urður Enoksson og Ásgerður Helga Kroknes hafa losað sig við 40 kíló á síðustu mánuð- um. Þau segja frá átakinu í TVF. Einar Magnússon skipstjóri og útgerðarmaður á Ósk KE 5 hefur stundað sjóinn frá 15 ára aldri. Þann 8. janúar árið 1988 varð hrikalegt sjóslys þegar Berg- þór KE 5 fórst úti fyrir Reykjanesi og með honum tveir menn. Einar Magnússon skipstjóri og útgerðar- maður á Ósk KE 5 var einn þeirra þriggja sem björguðust, en faðir Einars, Magnús Geir Þórarins- son og Elvar Jónsson fórust með bátnum. Þann 8. janúar síðastliðinn voru 15 ára liðin frá þessu hrikalega slysi. Þar til nú hefur Einar ekkert viljað ræða um slysið. í gegnum árin hefur hann lokað þessar sáru minningar djúpt í sálinni og haft þær út af fyrir sig. Skipsfélagi Einars á Ósk er Gunnar M. Magnússon sem bjargaðist einnig úr skipsskaðan- um, en einnig bjargaðist Sverrir Víglundsson sem nú starfar sem vélstjóri á Sigga Bjarna GK 5. í TVF er ítarlegt viðtal við Einar Magnússon og Gunnar M. Magnússon sem björguðust úr skipsskaðanum og viðtal við Árna Vikarsson skipstjóra á Akurey sem bjargaði skipbrotsmönnum. „Maður verður að átta sig á því að sá látni var persóna sem átti sitt líf og sína erfiðleika. Mér finnst ekkert erfitt að fást við dauðann sjálfan því hann er eðlilegur hluti af lífinu," segir Ric- hard Woodhead útfararstjóri í Reykjanesbæ sí opinskáu viðtali við TVF. 64 blaðsíður! 15 ár frá því Bergþór KE fórst út af Garðskaga: Sárt að sjá pabba fara niður með bátnum Hrikateg lífsreynsla Einars Magnússonar, sem missti föður sinn og annan skipsfélaga í sjóslysi fyrir 15 árum „Ég vil hvetja ungt fólk sem langar til að læra og koma sér á framfæri að huga að sjálfum sér og hugsa markvisst. Það skiptir mestu máli að setja sér markmið í upphafi, en það er erfitt að setja sér markmið ef maður veit ekki hvað maður vill læra,“ segir Keflvíkingur- inn Ásgeir Margeirsson að- stoðarforstjóri Orkuveitu Reykjavíkur í viðtali við TVF þar sem hann ræðir um æsk- una í Keflavík, námið, starfið og skólakerfið. VlKURFRÉTTIR 16.TÖLUBLAÐ FIMMTUDAGUR16. APRÍL 2003 11

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.