Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.04.2003, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 15.04.2003, Blaðsíða 14
Páskatilboð hjá SG bílaleigu Kynntu þér málið í síma 421 3737 og 892 9700. Eigum 5 og 9 manna bíla við allra hæfi. SG BÍLALEIGA BÁSVEGI 8, KEFLAVÍK SÍMAR 421 3737 og 892 9700. Fréttir um páskana á www.vf.is ¥r Hagstofa fslands Spyrill Hagstofa íslands óskar eftir að ráða spyril í rannsókn á útgjöldum heimilanna. Viðkomandi þarf að hafa aðsetur í Reykjanesbæ. Starf spyrils er hlutastarf, vinnutími er áætlaður 25-35 tímar á mánuði. Vinnan fer aðallega fram á kvöldin og um helgar. Verkefnin felast í að hafa samband við þátttakendur í rannsókninni bæöi símleiðis og með heimsóknum. Hæfniskröfur: • Kurteisi, snyrtimennska og góðirsamskiptahæfileikar eru skilyrði • Reynsla af heimilisrekstri • Tölvukunnátta æskileg • Hafa bílpróf og bíl til umráða • Æskilegur aldur er 25 ára og eldri Umsjón með starfinu hefur Auður Bjarnadóttir (audur@mannafl.is) hjá Mannafli. Umsóknarfrestur er til og með 27. april n.k. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíöu Mannafis. Mannafl RÁÐNINGAR OG RÁÐGJÖF Mannafl: Smiðjuvegur 72 200 Kópavogur Sími 540 7100 mannafl@mannafl.is Mannafl: Skipagata 16 600 Akureyri Sími 461 4440 www.mannafl.is Maður vikunnar Slasaðist í golfi! Valdimar Einarsson sem hefur verið útibússtjóri Lands- banka íslands í Grindavík í tæp fimm ár eða frá 1998 sagði í samtali við Víkurfréttir að mikið h'f hafi verið í bankanum á fóstudag og að viðskiptavinir bankans hafi verið mjög ánægðir með þessa afmælisveislu. Hann segir rekstur úti- búsins hafa gengið afar vel og að afkoman hafi verið mjög góð. „Innlán hafa aukist sem og útlán til einstaklinga og fyrir- tækja“, segir Valdimar. Starfsfólk útibúsins þjónustar jafnt ein- staklinga sem fyrirtæki en í útibúinu eru átta starfsmenn. „Vöru og þjónustuframboð Landsbankans er mjög breitt og nær tii allra aldurshópa og erum við að horfa á heildarfjár- málaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki.Algengast er í dag að viðskiptavinir okkar séu með sín fjármál í greiðsluþjónustu enda gefur það þeim góða yfirsýni yfir fjármálin og viðskipta- vinir fá góð ráð frá starfsfólki útibúsins“. Valdimar er maður vikunnar. Nafn: Valdimar Einarsson Fæddur hvar og hvenær: 2. janúar 1956 í Reykjavík Atvinna: Utibússtjóri Landsbankans í Grindavík Maki: Fanný Þóra Erlingsdóttir Börn: Við eigum eina dóttur sem er 24 ára Hvaða bækur ertu að iesa núna? Ég er nú að lesa Suðumesja- menn sem Gylfi Guðmundsson skráði. Hvað er það fyrsta sem þér kemur í hug þegar þú vaknar á morgnanna? Verkefni dagsins. Ef þú gætir starfað við hvað sem er, hvað væri það? Þetta er erf- ið spuming sem ég á ekki svar við. Það kemur svo margt til greina Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að leika golf. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Óheiðarleiki og óstundvísi Hvað drevmdi þig síðast? Ég man aldrei eftir draumum. Ef þú værir forseti Bandaríkjanna i einn dag hvað myndirðu gera? Nota daginn í að afstýra striði. Hvað gerir þú til að láta þér líða vel? Fer nánast daglega í „rækt- ina“, mér líður mjög vel á eftir Hvað er með öllu ónauðsynlegt í lífl þínu? Ég man ekki eftir neinu. Gætir þú lifað án síma, tölvu og sjónvarps? Nei! Mikilvægasta heimilistækið? Sjónvarpið. Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur gert? Það var í sumar í miðju golfmóti (á góðu skori), í framsveiflu sleit ég vöðva í fæti og var fluttur slasaður í golfbil i gólfskálann og þaðan á sjúkrahús. Golf er almennt ekki talið hættulegt sport. Lífsmottó? Að njóta lífsins. Gaddavírsstrengir sem eru stórhættulegir fyrir fullorðið fólk sem ekki gætir að sér. Þarna þýðir lítið að horfa niður á tærnar á sér. Hættan er í augnhæð! VF-mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson Hættulegur gaddavír á úti- vistarsvæði Utivistar- og skógræktar- svæðið að Háabjalla hef- ur hlotið taisverða at- hygli síðustu daga. Nokkrir dagar eru síðan Guðni Ágústs- son landbúnaðarráðherra var þarna á ferð og veitti fé til skógræktarinnar á svæðinu. Féð verður m.a. notað til að girða af svæðið. Um helgina voru sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar að Háa- bjalla að eyða virkri sprengju frá því eftir stríð. Það eru ekki bara sprengjur sem eru hættu- legar á svæðinu. í dag eru leif- ar af girðingu á svæðinu sem í raun er stórhættuleg. Gadda- vírsstrengir eru í andlitshæð hjá fullorönu fólki. Þegar gengið er um svæðið þá horfir fólk frekar niður fyrir sig, enda stórgrýtt að hluta og þama er einnig drullusvað eftir rigning- ar. Foreldri sem fór á svæðið þegar rökkva tók á föstu- dagskvöld til að skoða sprengju sem böm voru að leika sér með á svæðinu gekk á gaddavírinn án þess þó að hljóta af þvi skaða. Myndatökumaður Stöðvar 2 og Víkurffétta sem var við mynda- tökur á svæðinu um helgina var varaður við gaddavímum á „ell- eftu stundu“. Það er vonandi að þeir sem nú hafa tekið við svæðinu til frekari uppbyggingar fjarlægi gaddavír- inn hið fyrsta. Svæðið er vinsælt útivistarsvæði og daglega er fólk á ferðinni þama til að njóta nátt- úmnnar og kyrrðarinnar. Löggufréttir Ölvaður maður í sjóinn í Sandgerði: Björgunarlið á bryggjunni Aföstudagskvöld féll ölvað- ur maður í sjóinn í Sand- gerði. Svo vildi til að slökkvilið og lögregla voru stödd á bryggjunni og með snöggum og öruggum hand- tökum var manninum kippt i land. Manninum varð ekki meint af volkinu, en hann get- ur þakkað fyrir skjót viðbrögð. Kveikt í þvotti á snúru Aðfaranótt laugardagsins var kveikt í þvotti á þvottasnúru við Heiðar- holt í Keflavík. Einhverju af þvotti var stolið af snúrunni, en eigandi snúrunnar varð var við að kveikt hafði verið í þvottin- um um miðjan dag á laugar- dag. 14 VIKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.