Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.04.2003, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 15.04.2003, Blaðsíða 12
Ljósmyndafyrirsæta Suðurnesja: Bjarney Lea Guðmundsdóttir Þriðja sæti: Brynja Dröfn Eiríksdóttir Annað sæti: Helga Jónasdóttir Vinsælasta stúlkan: Sigríður Vilma Úlfarsdóttir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir úr Keflavík var kjörin Fegurðardrottning Suðurnesja 2003 en keppnin var haldin í Bláa lóninu ás laugardagskvöld. Umgjörð keppninnar var glæsileg og var veitingasalur Bláa lónsins þétt setinn. Dagskrá kvöldsins var öll hin glæsilegasta og þóttu stúlkurnar tólf, sem þátt tóku í keppn- inni, allar hafa staðið sig með mikilli prýði. Önnur úrslit kvöldsins voru þessi: Annað sæti: Helga Jónasdóttir Þriðja sæti: Brynja Dröfh Eiríksdóttir Ljósmyndafyrirsæta Suðurnesja: Bjarney Lea Guðmundsdóttir Vinsælasta stúlkan: Sigríður Vilma Ulfarsdóttir K-sport stúlkan: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir Bláa lóns stúlkan: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir nýkrýnd fegurðardrottning Suðurnesja var að von- um ánægð með glæsilegan árangur í feg- urðarsamkeppni Suðurnesja sem fram fór sl. laugardag í Bláa lóninu. Hún sagði að tilfinning- in hefði auðvitað verið rosalega góð. „Ég hélt að brosið ætlaði heilan hring á andlitinu á mér. Þetta var alveg frábært“, sagði Steinunn í sam- tali við Víkurfréttir. Steinunn sagði að kvöldið hefði verið alveg yndis- legt. „Bæði Bláa lónið og aðstandendur keppninnar stóðu mjög vel að þessu og ég held að veislugestir ásamt okkur stelpunum hafi allir skemmt sér kon- unglega. Eg verð að viðurkenna að þetta var öðru- vísi en ég bjóst við. Mér fannst þetta skemmtilegt og auðvitað líka fyrst það gekk vel. Mig langar líka að þakka öllum sem studdu við bakið á mér, ég er rosalega þakklát fyrir stuðninginn". Hin sígilda spurning Steinunn, bjóstu við þessu? „Það er rosalega erfitt að spá fyrir um úrslit í svona keppnum. Það fer algjörlega eftir því hveiju dómar- amir eru að leita af hverju sinni. Þannig að ég held að engin búist við að vinna i svona keppni, ég reyndi bara að vera ég sjálf og brosa og krossaði svo fingur fyrir því að það væri nóg“. Hvernig var stemningin í hópnum? „Stemningin var fin baksviðs hjá okkur stelpunum, það fór mjög vel um okkur milli atriða.Við hlustuð- um á góða tónlist, spjölluðum saman og „peppuð- um“ hvor aðra upp“. Hvað var gert eftir krýninguna? „Eftir krýninguna fórum við ásamt ættingjum og vinum heim til tengdaforeldra minna, en þau voru svo yndisleg að bjóða heim til sín. Það var alveg frábært að hitta alla í ró og næði og vera í góðra vina hópi“. Hvernig hafa síðustu dagar verið? „Síðustu dagar hafa nú verið ansi annasamir og ég náði bara fimm klukkutíma svefhi fyrstu nóttina því síminn byijaði að hringja eldsnemma morguninn eftir. Annars fer þetta allt að róast á næstu dögurn". Hvað er svo næst á dagskrá? „Næst á dagskrá er langur og strangur próflestur í Háskóla íslands. Eg bytja í prófum eftir rúma viku og það er nóg að lesa fyrir þau. Eftir páska byijar svo undirbúningur fyrir Ungfrú Island sem verður 23. maí“. 12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.