Víkurfréttir - 15.04.2003, Blaðsíða 12
Ljósmyndafyrirsæta
Suðurnesja:
Bjarney Lea Guðmundsdóttir
Þriðja sæti:
Brynja Dröfn Eiríksdóttir
Annað sæti:
Helga Jónasdóttir
Vinsælasta stúlkan:
Sigríður Vilma Úlfarsdóttir
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir úr Keflavík
var kjörin Fegurðardrottning Suðurnesja
2003 en keppnin var haldin í Bláa lóninu
ás laugardagskvöld. Umgjörð keppninnar var
glæsileg og var veitingasalur Bláa lónsins þétt
setinn. Dagskrá kvöldsins var öll hin glæsilegasta
og þóttu stúlkurnar tólf, sem þátt tóku í keppn-
inni, allar hafa staðið sig með mikilli prýði.
Önnur úrslit kvöldsins voru þessi:
Annað sæti: Helga Jónasdóttir
Þriðja sæti: Brynja Dröfh Eiríksdóttir
Ljósmyndafyrirsæta Suðurnesja: Bjarney Lea
Guðmundsdóttir
Vinsælasta stúlkan: Sigríður Vilma Ulfarsdóttir
K-sport stúlkan: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
Bláa lóns stúlkan: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir nýkrýnd
fegurðardrottning Suðurnesja var að von-
um ánægð með glæsilegan árangur í feg-
urðarsamkeppni Suðurnesja sem fram fór sl.
laugardag í Bláa lóninu. Hún sagði að tilfinning-
in hefði auðvitað verið rosalega góð. „Ég hélt að
brosið ætlaði heilan hring á andlitinu á mér.
Þetta var alveg frábært“, sagði Steinunn í sam-
tali við Víkurfréttir.
Steinunn sagði að kvöldið hefði verið alveg yndis-
legt. „Bæði Bláa lónið og aðstandendur keppninnar
stóðu mjög vel að þessu og ég held að veislugestir
ásamt okkur stelpunum hafi allir skemmt sér kon-
unglega. Eg verð að viðurkenna að þetta var öðru-
vísi en ég bjóst við. Mér fannst þetta skemmtilegt
og auðvitað líka fyrst það gekk vel. Mig langar líka
að þakka öllum sem studdu við bakið á mér, ég er
rosalega þakklát fyrir stuðninginn".
Hin sígilda spurning Steinunn, bjóstu við þessu?
„Það er rosalega erfitt að spá fyrir um úrslit í svona
keppnum. Það fer algjörlega eftir því hveiju dómar-
amir eru að leita af hverju sinni. Þannig að ég held
að engin búist við að vinna i svona keppni, ég
reyndi bara að vera ég sjálf og brosa og krossaði svo
fingur fyrir því að það væri nóg“.
Hvernig var stemningin í hópnum?
„Stemningin var fin baksviðs hjá okkur stelpunum,
það fór mjög vel um okkur milli atriða.Við hlustuð-
um á góða tónlist, spjölluðum saman og „peppuð-
um“ hvor aðra upp“.
Hvað var gert eftir krýninguna?
„Eftir krýninguna fórum við ásamt ættingjum og
vinum heim til tengdaforeldra minna, en þau voru
svo yndisleg að bjóða heim til sín. Það var alveg
frábært að hitta alla í ró og næði og vera í góðra
vina hópi“.
Hvernig hafa síðustu dagar verið?
„Síðustu dagar hafa nú verið ansi annasamir og ég
náði bara fimm klukkutíma svefhi fyrstu nóttina því
síminn byijaði að hringja eldsnemma morguninn
eftir. Annars fer þetta allt að róast á næstu dögurn".
Hvað er svo næst á dagskrá?
„Næst á dagskrá er langur og strangur próflestur í
Háskóla íslands. Eg bytja í prófum eftir rúma viku
og það er nóg að lesa fyrir þau. Eftir páska byijar
svo undirbúningur fyrir Ungfrú Island sem verður
23. maí“.
12
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!