Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.04.2003, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 15.04.2003, Blaðsíða 19
VF SPORT Umsjón: Sævar Sævarsson saevar@vf.is Guðjón Skúlason, fyrirliði Keflavíkur, sem leikið hefur yfir 700 leiki fyrir Keflavík hitti einstaklega vel í úrsiitakeppninni. Hann var mjög sáttur í leikslok og sagði að þetta hefði verið mjög ljúft. „Þetta var svakalega ljúft. Þetta er einn flottasti titill sem við höf- um unnið. Þetta voru einstaklega flottir og góðir leikir. Við vorum með mjög gott lið í ár og unnum þetta sannfærandi”, sagði Guðjón i samtali við Víkurfréttir. Hann sagði að liðið í ár væri ekki siðra en liðið sem hirti alla titlana sem í boði voru 1997. „Ætli liðið í ár sé ekki betra ef eitthvað er. Við vorum með meiri ógn inni í teig en þá og betra varnarlið. Bæði þessi lið gátu þó tekið leiki með stæl og átt hálfleiki þar sem þau gerðu út um leiki”. Hann tók undir það að það væri einstakt að fara í gegnum undanúrslit og úr- slit án þess að tapa. „Þetta var bara einstakt og eitthvað sem við gerðum ekki ráð fyrir áður en úr- slitakeppnin hófst. Við fengum hins vegar mikið sjálfstraust eftir fyrsta leikinn gegn Njarðvík og þá var ekki aftur snúið. Lið þurfa að vera helvíti sterk til að fara í gegnum úrslitakeppni 8-1.” Aðspurður hvað tæki núna við hjá Guðjóni svaraði hann því að nú væri hann kominn í fri. „Núna er komið grilltímabil hjá mér en svo veit maður ekki. Það gerist varla betri endir á ferlinum en þetta og ekki hægt að stíga frá liði með betri árangur”. Grét gleðitárum í leikslok Magnús Þór Gunnarsson grét gleðitárum í leikslok þegar honum varð Ijóst að hann væri orðinn íslandsmeistari í fyrsta sinn með meistaraflokki. Hann iék einstaklega vel í úrslitarimmunni og var eins og félagi sinn, Guð- jón Skúlason með frábær nýtingu í þriggja stiga skotum. „Þetta var alveg frábært, miklu skemmtilegra en maður bjóst við. Það er ekki á hverjum degi sem maður upplifir slíka tilfinn- ingu og ég grét eins og ég veit ekki hvað í leiks- lok”, sagði hann í samtali við Víkurfréttir. Magnús Þór sagði að liðið hefði allan tímann hafi trú á því að þeir færu með 3-0 sigur af hólmi í serí- unni. „Eftir að hafa tekið Njarðvík 3-0 vorum við staðráðnir í því að taka þetta með trompi í eitt skipti fyrir öll. Mér fannst ég bara spila nokkuð vel og átti jafha leiki sem skiptir máli, ekki 20 stig i einum og ekkert í öðrum”. Hann þakkaði stífum æfingum, ffábærum þjálfara og mjög góðum hópi af góðum og skemmtilegum strákum árangur liðsins í vetur. Um framhaldið hafði hann þetta að segja. „Ég ætla að að æfa með landsliðinu og reyna að komast á Smáþjóðleikana í júní. Það verður æft held ég alla dagana ffam að móti, tekið smá ffí við æfingar 7. maí-19. maí, en síðan allt á fullt aftur”. * Brugöu blysum ú loftl Keflvíkingar voru í sigurvímu eftir að hafa tryggt sér íslandsmeist- aratitilinn í körfuknattleik karla með sigri á Grindavík á fimmtu- dag. Mikil móttökuathöfn var við félagsheimili Keflavíkur þegar sigurliðið kom í lögreglufylgd á svæðið með (slandsmeistarabikar- inn. Stuðningsmenn Keflavíkur brugðu blysum á loft og flugeld- um var skotið til himins. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar liðið kom út úr rútunni með bikarinn, allir fengu koss á kinn og var gleðskapur fram eftir nóttu. tesprýöi] íesprýðij iesprýðij 'espryái; VÍKURFRÉTTIR 16. TÖLUBLAÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2003 19

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.